Gola og hlýnandi veður á kjördegi Atli Ísleifsson skrifar 14. maí 2022 08:02 Hiti á landinu verður fimm til tíu stig síðdegis. Veðurstofan Veðurstofan spáir austlægri átt í dag, golu eða kalda og skúrum á sunnanverðu landinu, einkum austantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði dálítil snjókoma í fyrstu norðaustanlands, annars úrkomulítið norðan heiða. „Hlýnandi, hiti 5 til 10 stig síðdegis. Austan strekkingur í kvöld, með rigningu sunnanlands. Suðaustan 5-13 m/s og víða rigning í fyrramálið, en skýjað síðdegis og dálítil væta á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7 til 14 stig. Ákveðin austanátt á mánudag, bjart með köflum og fremur hlýtt, en skýjað og lítilsháttar súld suðaustanlands og á Austfjörðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðaustanátt, víða 5-10 m/s. Þurrt að kalla á Norðurlandi, annars súld eða rigning með köflum, hiti 7 til 14 stig. Dregur úr vætu seinnipartinn. Á mánudag: Austlæg átt 3-10, en 10-15 syðst á landinu. Dálítil súld suðaustantil og þokuloft við austurströndina, en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti frá 6 stigum austast, upp í 16 stig á Norður- og Vesturlandi. Á þriðjudag: Austan strekkingur og dálítil rigning um tíma sunnanlands, en hægari og skýjað með köflum norðan heiða. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt, rigning með köflum og milt veður. Á fimmtudag: Norðaustanátt og rigning eða súld norðanlands, en yfirleitt þurrt sunnantil. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á föstudag: Austlæg átt, skýjað og dálítil rigning með suðurströndinni.
Veður Mest lesið Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Erlent Ísraelar gera loftárásir á Katar Erlent Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Innlent Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Erlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Erlent Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Innlent Útsending komin í lag Innlent Opinbera bréf Trumps til Epsteins Erlent Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Innlent Fleiri fréttir Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Gul viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris Kröpp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Litlar breytingar á hlaupi í Hvítá við Húsafell frá því í gær Skýjað, lítilsháttar væta og temmilega hlýtt Hiti að 21 stigi í dag Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Hægviðri og hiti að nítján stigum Norðlæg átt og víðast hvar væta Hlýjast suðaustantil Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Hitamet aldarinnar slegið Gular viðvaranir öðrum megin og 28 stiga hiti hinum megin Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Gular viðvaranir í dag en hiti að 27 stigum á morgun Gular viðvaranir í þremur landshlutum Þungbúið norðantil en bjart og hlýtt sunnan heiða Úrkoma í öllum landshlutum „Það er nóg eftir af sumrinu“ Sjá meira