Segir að Liverpool hefði frekar átt að kaupa Toney Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. september 2022 13:31 Ivan Toney hefur byrjað tímabilið af krafti. getty/Steve Bardens Liverpool hefði frekar átt að kaupa Ivan Toney en Darwin Nunez. Þetta segir stjórnarformaður Peterborough United, Darragh MacAnthony.
Málið er MacAnthony vissulega mjög skilt enda spilaði Toney með Peterbrough um tveggja ára skeið. Þar skoraði hann 49 mörk í 94 leikjum. Brentford tók í kjölfarið upp veskið og keypti Toney. Hann hefur skorað 52 mörk í 96 leikjum fyrir Brentford, þar af fimm mörk í sex leikjum í vetur. MacAnthony, sem er stuðningsmaður Liverpool, segir að Rauði herinn hefði betur keypt Toney en Nunez. Liverpool greiddi Benfica 85 milljónir punda fyrir Nunez í sumar. „Leyfðu mér að spyrja þig að þessu. Darwin Nunez, 85 milljóna punda maður, eða Ivan Toney. Hvor er betri framherji?“ sagði MacAnthony í hlaðvarpinu The Hard Truth. „Nunez gæti átt frábæran feril og gert vel fyrir Liverpool. Liðið er mjög beinskeytt og öll mörkin okkar koma í gegnum bakverðina og lágar fyrirgjafir. Segðu mér að Ivan Toney myndi ekki skora 25 mörk fyrir Liverpool með þessa bakverði. Láttu ekki svona!“ Toney, sem er 26 ára, skoraði þrennu þegar Brentford sigraði Leeds United, 5-2, í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Talið er að hann eigi fína möguleika á að vera valinn í enska landsliðið fyrir næstu leiki þess.
Enski boltinn Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Leik lokið: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Sjá meira