Veður

Lægð færir okkur stífa norð­austan­átt með vætu víða

Atli Ísleifsson skrifar
Gul viðvörun er í gildi á suðaustanverðu landinu í dag.
Gul viðvörun er í gildi á suðaustanverðu landinu í dag. Vísir/Vilhelm

Suður af landinu liggur nú víðáttumikil 964 millibara lægð og færir hún okkur stífa norðaustanátt í dag með vætu víða. Þó verður þurrt um landið suðvestanvert og líklega bjart á köflum.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að vindurinn nái stormstyrk á suðaustanverðu landinu og er gul viðvörun í gildi þar fram á kvöld.

Hvassast verður í Öræfum þar sem búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metra á sekúndu, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

Veðurstofan gerir ráð fyrir að hiti á landinu verður á bilinu núll til átta stig, hlýjast syðst.

„Á morgun bætir í vindinn norðvestantil og verður allhvass eða hvass vindur þar næstu daga með slyddu. Hægari annars staðar og víða væta. Hiti að mestu 2 til 7 stig að deginum.“

Spákort fyrir klukkan 16 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðaustlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum fyrir norðan, einkum í fyrstu, en dálítil væta sunnantil. Vaxandi austanátt sunnanlands um kvöldið. Hiti 1 til 7 stig.

Á fimmtudag: Norðaustan hvassviðri á Vestfjörðum, en hægari vindur annars staðar. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en úrkomuminna syðra. Hiti 2 til 7 stig.

Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s á Vestfjörðum með slyddu eða snjókomu og hiti um frostmark, en suðlæg eða breytileg átt annars staðar og rigning eða slydda með köflum. Hiti 2 til 7 stig.

Á laugardag: Gengur í stífa suðaustanátt með dálítilli rigningu, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 3 til 8 stig þegar líður á daginn.

Á sunnudag: Áframhaldandi stíf suðaustlæg átt með rigningu víða. Hlýnar heldur.

Á mánudag: Útlit fyrir minnkandi suðlæga átt og væta um landið sunnanvert, annars þurrt. Kólnar lítillega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×