Langur ferill að baki
Áður en Guðrún fór að gefa út tónlist undir nafninu ЯÚN var hún í hljómsveitunum White Signal og Náttsól. Sú fyrrnefnda var tilnefnd sem bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum vorið 2012 og sú síðarnefnda sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2016.
Einnig sigraði hljómsveitin White Signal Jólalagakeppni Rásar 2 árið 2011 og 2012 með lögum sem Guðrún samdi. „Ég hef alltaf haft mikla ástríðu fyrir söng í mörgum röddum og breiðum harmoníum sem gjarnan einkenna tónlist mína,“ segir hún.
Ný plata með lögum við ljóð
Guðrún hefur undir nafninu ЯÚN meðal annars gefið út lagið Það vex eitt blóm fyrir vestan við ljóð Steins Steinarrs. Bæði lögin tilheyra komandi concept-plötu hennar með lögum við bæði þekktar og minna þekktar íslenskar ljóðlistarperlur. Platan mun bera heitið Gleym mér ei og segir Guðrún það enga tilviljun:
„Gleym mér ei er skírskotun í þá ósk mína að þessi dýrmæti menningararfur muni ekki gleymast heldur lifa áfram með komandi kynslóðum.“
Tíu ár síðan hún byrjaði að semja lagið
„Ég hef aldrei setið jafn lengi á einu lagi áður og Móðurást, enda er það mér afar kært og á sér mikla sögu,“ segir hún. Grunninn að laginu samdi Guðrún í tíunda bekk og flutti á degi íslenskrar tungu á samkomu sem var haldin fyrir grunnskóla í hverfinu hennar. „Því fannst mér við hæfi að gefa það loks út á sama degi, tíu árum seinna!“