Mbappe kláraði Pólverja í síðari hálfleik og Frakkar komnir í 8-liða úrslit Smári Jökull Jónsson skrifar 4. desember 2022 17:00 Frakkar fagna hér öðru marka Kylian Mbappe. Vísir/Getty Frakkland er komið í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins í Katar en liðið lagði Pólland 3-1 í 16-liða úrslitum í dag. Oliver Giroud skoraði fyrsta mark Frakka og er nú markahæsti landsliðsmaður Frakklands frá upphafi. Heimsmeistarar Frakka enduðu riðlakeppnina á því að hvíla aðalliðið sitt og tapa en Pólverjarnir skriðu áfram í sextán liða úrslitin þrátt fyrir tap í sínum leik. Frakkar voru sterkari í upphafi en eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn komust Pólverjar aðeins betur inn í leikinn. Oliver Giroud fékk dauðafæri um miðjan hálfleikinn og þá fengu Pólverjar tvö frábær færi í sömu sókninni stuttu síðar, fyrst varði Hugo Lloris og síðan bjargaði Raphael Varane á línu frá Matty Cash. Oliver Giroud skorar hér fyrsta mark Frakka í þessum leik á 43. mínútu - þetta er 52 mark hans fyrir franska landsliðið. pic.twitter.com/51bIBCIzEN— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) December 4, 2022 Rétt fyrir hálfleik komust Frakkar hins vegar í 1-0. Þá skoraði Oliver Giroud með góðu skoti eftir sendingu frá Kylian Mbappe. Markið þýðir að Giroud er nú búinn að skora flest mörk allra fyrir franska landsliðið. Staðan í hálfleik var 1-0 en í síðari hálfleik kláraði Mbappe síðan leikinn með tveimur mörkum. Hann skoraði á 74.mínútu með bylmingsskoti eftir sendingu frá Ousmane Dembele og á 89.mínútu skoraði hann frábært mark og gulltryggði sigur Frakka og sætið í 8-liða úrslitum. Mbappe er þar með búinn að skora níu mörk á tveimur heimsmeistaramótum en hann er aðeins 23 ára gamall. Kylian Mbappe passes Pele for most World Cup goals scored by a men's player before turning 24 years old (8) pic.twitter.com/uJLZDH6LWO— ESPN FC (@ESPNFC) December 4, 2022 Í uppbótartíma fengu Pólverjar vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Upamecano varnarmanns Frakka. Robert Lewandowski steig á punktinn en Hugo Lloris varði slaka spyrnu hans. Lewandowski fékk hins vegar annað tækifæri því Lloris var löngu farinn af marklínunni auk þess sem varnarmenn Frakkaa voru komnir vel inn í teiginn. Framherjinn sterki skoraði af öryggi úr seinni spyrnunni og klóraði þar með í bakkann fyrir Pólverja. Frakkar mæta sigurvegurum úr leik Englands og Senegal sem mætast í kvöld. HM 2022 í Katar