Gjaldskrá Lyfjastofnunar hækkar um 10,6 prósent Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. janúar 2023 06:37 Hækkunin nær bæði til lyfja og lækningatækja. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið gjaldskrá Lyfjastofnunar 2023 sem hækkar að meðaltali um 10,6 prósent miðað við síðasta ár. Breytingin mun taka gildi 1. mars næstkomandi.
Hækkunin nær bæði til lyfja fyrir menn og til lækningatækja. Frá þessu er greint á vef Lyfjastofnunar. Þar er fjallað um ákvörðun sem Lyfjastofnun tók 20. maí í fyrra um breytingu á smásöluálagningu lyfseðilsskyldra lyfja. Ákvörðunin var þríþætt og fól meðal annars í sér að verðþrepum og smásöluálagningu var breytt 1. júlí sama ár. Þá var ákveðið að greiða sérstakt þjónustugjald til lyfjaverslana, 120 krónur, fyrir afgreiðslu ódýrasta lyfs og innan við 5 prósent frá ódýrasta verði í viðkomandi viðmiðunarflokki. Þessi ákvörðun tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Lyfjastofnun ákvað einnig að 1. mars 2023 myndi smásöluálagning ávísunarskyldra lyfja hækka sem samsvaraði verðlagsforsendum fjárlaga 2023. Það er á þeim forsendum sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið hina 10,6 prósent hækkun. „Tilkynnt verður innan nokkurra vikna hvernig hækkun smásöluálagningarinnar mun dreifast á verðbil smásöluálagningar,“ segir á vef stofnunarinnar.
Lyf Verðlag Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Sjá meira