Innlent

Reiðin kraumar í leigu­bíl­stjórum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Daníel O. Einarsson er formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra.
Daníel O. Einarsson er formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra. Aðsend

Leigubílstjórar fordæma ný lög um leigubifreiðar og segja ítrekuð aðvörunarorð hafa verið hunsuð. Þeir efast um öryggi almennings og segja peningahyggju ráða för. Þrátt fyrir að reiðin kraumi í leigubílstjórum beri þeir enn von í brjósti.

„Segja má að það hafi verið táknrænt fyrir skeytingarleysi ráðamanna í okkar garð að við – fulltrúar stéttarfélaganna – vorum látnir hýrast úti í nepjunni utan við Ráðherrabústaðinn þegar við hugðumst koma mótmælum okkar á framfæri. Lítilsvirðing ráðamanna þar var í stíl við þann atvinnuróg sem kynt hefur verið undir gegn okkur að undanförnu,“ segir Daníel O. Einarsson, formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra í aðsendri grein á Vísi.

Nýju lögin opni fyrir svindl og mismunun

Stjórnvöld eru harðlega gagnrýnd og segir formaðurinn að lágmarkskjör og réttindi á vinnumarkaði megi sín minna. Með nýjum lögum ætli Íslendingar að feta í fótspor nágrannalanda, þar sem þjónusta „farveitna“ á borð við Uber og Lyft, hafi verið stórt skref aftur á bak.

„Nýju lögin opna fyrir svindl og mismunum, sem meðal annars kann að birtast í miklum mun milli rekstraraðila, annars vegar einyrkja og hins vegar fyrirtækja með mikið fjármagn á bakvið sig. Fjársterkari aðilar munu hæglega geta tælt neytendur með gylliboðum á eigin kostnað með hagnað í framtíðinni að leiðarljósi. Rétt eins og farveiturnar erlendis hafa stundað; að hækka og lækka verð eftir markaðshegðun og álagstímum til að drepa niður starfsemi einyrkja.“

Óttast um öryggi almennings

Leigubílstjórarnir segjast óttast um öryggi almennings. Gera þurfi kröfu um íslenskukunnáttu bílstjóra og hafa hreint sakavottorð að skilyrði. Enn megi takmarka skaðann sem löggjöfin muni óhjákvæmilega valda.

„Þrátt fyrir að reiðin kraumi í leigubifreiðastjórum eftir alla þá lítilsvirðingu sem þeim hefur verið sýnd af ráðamönnum þá er enn von – við berum enn þá von í brjósti að leitað verði til stéttarfélaga okkar um aðstoð og ráðgjöf við samningu áðurnefndrar reglugerðar – að þar verði skynsemin látin ráða för og hugað að því hvernig búa megi atvinnugreininni tryggt starfsumhverfi til framtíðar – jafnt neytendum sem bifreiðastjórum til hagsbóta. Eðli máls samkvæmt liggur mesta fagþekking á atvinnugreininni meðal leigubifreiðastjóra sjálfra og því eðlilegt að leitað sé til þeirra.“


Tengdar fréttir

„Ekki á hverjum degi sem leigu­bíl­stjórar gera svona lagað“

Hundruð félagsmanna í Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra lögðu niður störf í dag í mótmælaskyni við nýsamþykkt leigubílafrumvarp innviðaráðherra. Þeir lýsa þungum áhyggjum af breytingunum og krefjast áheyrnar stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×