Skoðun

Þetta er ekki eðli­leg fram­koma

G.Andri Bergmann skrifar

Sólveig Anna Jónsdóttir fer mikin hvar sem hún kemur. Hún rekur fólk sem hún vill ekki vinna með og svívirðir það ef hún getur ekki rekið það.

Þetta er svo síendurtekið í fréttum hvar börnin okkar heyra og sjá fullorðna manneskju níða annað fullorðið fólk með uppnefni og svívirðingum. Sólveigu finnst þetta bæði fínt og eðlilegt. Blaða og fréttamönnum finnst þetta spennandi.

Sömu blaða- og fréttamenn gefa svívirðingunum vægi með því að enduróma þær nær stöðugt og án fyrirvara, á öllum miðlum og ræða jafnan við Sólveigu hvar svívirðingunum er gefin ákveðin viðurkenning. Fjölskyldur hinna svívirtu hlusta. Hinir svívirtu hlusta.

Téðum fréttum er svo deilt á samfélagsmiðlum hvar virkir í athugasemdum taka til óspilltra málanna og rægja og smána með ljótari uppnefnum en ég vil viðhafa. Detti einhverjum í hug að svara er því mætt með enn harðari árás og jafnvel beinum hótunum. Börnin okkar fylgjast með. Börn fólksins sem er smánað. Börn fólksins sem smánar.

Það kemur því varla nokkrum manni á óvart þegar börnin taka þetta upp. Leggja í einelti. Svívirða skólafélaga og segja þau ekki hafa hæfileika til neins. Að þau búi hvorki yfir siðferði eða skynsemi. Þau hafi í vangefnum hugsunum sjúka þörf fyrir athygli og stundi brjálæðisleg níðingsverk í vesældómi sínum. Að þau séu auðvirðuleg peð... og svo mætti lengi, lengi halda áfram.

Það er ekkert eðlilegt við þessa framkomu og það á ekki að „normalisera” hana eða gefa henni samþykki með því að fjalla gagnrýnilaust um hvernig hver aðilinn á fætur öðrum er svívirtur og smánaður.

Ég get því ekki annað en spurt hvenær blaða- og fréttamenn eða ritstjórnir fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega ætla að segja hlutina eins og þeir eru. Hvenær þeir ætla að segja stopp og benda á að þeir, sem fagaðilar taki ekki þátt í að rógbera aðra eða „normalisera” hatursorðræðu.

Það á auðvitað að fjalla um verkalýðsátök og gera málum góð skil. Upplýsa um hvert úrlausnarefnið sé. En það á ekki að láta fréttir snúast um stöðugar svívirðingar eins í garð annars.

Því þó Sólveig Anna og félagar telji í lagi að svívirða og bera út róg um alla þá sem bera þann svívirðilega titil að vera atvinnurekendur, þá er það ekki í lagi. Það er langt frá því að vera í lagi og það á engin að taka þátt í að enduróma slíka hatursorðræðu.

Höfundur er atvinnurekandi og framkvæmdastjóri Procura Home.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×