Fyrsta deildartap Börsunga á árinu kom í Almeria Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. febrúar 2023 19:34 Vond vika að baki. vísir/Getty Vond vika varð enn verri hjá spænska stórveldinu Barcelona þegar liðið heimsótti Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Barcelona féll úr leik í Evrópudeildinni í miðri viku þegar liðið tapaði fyrir Manchester United en hefðu getað náð tíu stiga forystu á toppi deildarinnar með sigri í kvöld þar sem Real Madrid gerði jafntefli gegn Atletico Madrid í gærkvöldi. Almeria var í fallsæti fyrir leikinn í dag en þeir náðu forystunni þegar El Bilal Toure skoraði á 24.mínútu. Þó Barcelona hafi verið mun meira með boltann áttu þeir í vandræðum með að brjóta vörn Almeria á bak aftur og áttu til að mynda einungis eitt skot á mark í leiknum. Ekki fór það inn frekar en aðrar marktilraunir gestanna og lokatölur því 1-0 fyrir Almeria. Spænski boltinn