Áframhaldandi vestlæg átt og dálítil væta Atli Ísleifsson skrifar 1. júní 2023 06:53 Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu átta til tuttugu stig, hlýjast austantil. Vísir/Vilhelm Hæð suður af landinu verður þar áfram næstu daga sem mun hafa í för með sér áframhaldandi vestlæga átt. Skýjað verður að mestu vestantil með dálítilli vætu af og til en reikna má með smá sól í gegnum skýin öðru hverju.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjart að mestu austantil á landinu og hlýtt en heldur svalara á annesjum með líkum á þokusúld. „Vestlæg átt 5-13 í dag en heldur hvassara syðst á landinu og á Ströndum. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta eða súld vestantil en bjart að mestu um austanvert landið. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast austantil. Vestan og suðvestan 8-15 m/s á Vestfjörðum og á Norðurlandi á morgun en annars hægari. Rigning eða súld með köflum en bjart og þurrt fyrir austan en þar eru líkur á þokusúld á annesjum. Hiti breytist lítið. Mjög svipað veður á föstudag en úrkomuminna síðdegis. Eins og áður fremur svalt fyrir vestan en hlýtt austan- og suðaustantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag og laugardag: Suðvestan og vestan 5-13 m/s, hvassast norðvestantil og með suðurströndinni. Súld eða dálítil rigning með köflum vestan- og norðvestanlands, annars bjartara og yfirleitt þurrt, en líkur á þokulofti við ströndina. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast fyrir austan. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt 3-8 m/s. Skýjað með dálítilli þokusúld á vetanverðu landinu, en að mestu bjart austantil. Hiti 8 til 17 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu, en lengst af þurrt norðaustanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Fleiri fréttir Rigningarveður í kortunum Slydda og snjókoma fyrir norðan Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gæti sést til eldinga á vestanverðu landinu Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Óvenjulegt að allt landið sé undir Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Víða allhvasst og éljagangur Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Stórhríð og foktjón í vændum Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Djúp lægð beinir illviðri til landsins Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Sjá meira