Draymond var settur í bann af NBA deildinni þann 13. desember síðastliðinn eftir að hafa slegið til andstæðings síns Jusuf Nurkic og hefur misst af síðustu 12 leikjum Golden State Warriors. Bann Draymond átti sér enga hliðstæðu þar sem það var ótímabundið og ekki mælt í dögum eða leikjum.
Adrian Wojnarowksi greindi frá því á X-síðu sinni að Draymond myndi snúa aftur til æfinga í dag og reikna mætti með honum á vellinum innan skamms.
Green is expected to be with the Warriors on Sunday for the time since his suspension started in mid-December, sources said. https://t.co/zBTSSdVcsH
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) January 6, 2024
Draymond mun hafa gengist undir sálfræðimeðferð og reiðisstjórnunarnámskeið. Allt hefur þetta verið gert í góðu sambandi við forráðamenn Warriors og NBA deildarinnar. Hann er sagður hafa verið í litlum sem engum samskiptum við liðsfélaga sína og Steve Kerr, þjálfara liðsins, meðan á meðferðinni stóð.
Bannið kostaði Draymond drjúgan skilding, ESPN greinir frá því að tekjutap hans vegna leikbannsins nemi um 2 milljónum dollara, um það bil 275 milljónum íslenskra króna.
Warriors þurfa á allri hjálp að halda, meiðsli hafa plagað liðið og nú nýlegast var það leikstjórnandinn Chris Paul sem brákaði bein í hendi og þarf að gangast undir aðgerð. Þeir sitja í 10. sæti vesturhluta NBA deildarinnar með 17 sigra og 18 töp.