Fritzl var fangelsaður árið 2009 fyrir að hafa læst dóttur sína í kjallara heimilis þeirra í 24 ár og nauðgað henni og beitt hana ofbeldi. Hún eignaðist sjö börn í haldi hans. Hann var sakfelldur fyrir nauðgun, vanrækslu og manndráp, en eitt barnanna lést vegna vanrækslu.Greint er frá á vef Reuters.
Greint var frá því í síðustu viku að það væri til skoðunar að sleppa honum úr fangelsi. Fritzl er 88 ára gamall og er sagður með vitglöp. Hann hefur hingað til verið vistaður á réttargeðdeild.
Til hans sást í vikunni á kaffihúsi nærri fangelsinu þar sem hann afplánar í Krems an der Donau nærri borginni Vín. Það er í fyrsta sinn í fimmtán ár sem hann sást utan fangelsis.
„Hann var við það að tárast þegar hann sagðist enn og aftur hafa gert hræðilegan hlut, og að honum þætti það afskaplega leitt og vildi að hann gæti tekið það til baka,“ sagði lögmaður hans Astrid Wagner, eftir áheyrnina þar sem ákveðið var að flytja hann í venjulegt fangelsi.
Wagner segir að Fritzl muni óska þess eftir flutninginn að vera sleppt úr fangelsi. Það mun hann líklega gera á næsta ári en hann fær heimild til þess í venjulegu fangelsi.
„Líf hans verður með svipuðu sniði. Fangelsi er fangelsi,“ sagði Wagner um það hvort að líf hans myndi breytast eftir flutninginn í venjulegt fangelsi. Hún sagði að hann myndi halda áfram sálfræðimeðferð eftir flutninginn.