Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar verða á slaginu 12.
Hádegisfréttir Bylgjunnar verða á slaginu 12. Vísir

Reiknað er með að um þúsund manns vitji eigna sinna í Grindavík í dag, á fyrsta degi nýs fyrirkomulags við verðmætabjörgun. Íbúi sem vinnur að því að tæma húsið sitt segist ekki treysta sér til þess að búa lengur í Grindavík og kveður samfélagið með miklum trega. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Mislingar greindust í erlendum ferðamanni á Landspítalanum í gær. Sóttvarnarlæknir segir unnið að smitrakningu. Minnkandi þátttaka í bólusetningum gegn sjúkdómnum hér á landi er áhyggjuefni.

Þá förum við yfir stöðuna í Miðausturlöndum. Bandaríkjamenn og Bretar gerðu í gær þriðju sameiginlegu árásina á skotmörk tengdum Hútum í Jemen. 

Við heyrum einnig í íslenskum yfirmanni Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, stærstu hjálparsamtaka Gasasvæðisins, sem segir að starfsemi stofnunarinnar gæti lagst alveg af um mánaðamótin. Nokkur ríki, þar á meðal Ísland, hafa fryst greiðslur til stofnunarinnar - sem reynst hefur afar umdeild ákvörðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×