Kalt, blautt og hvasst Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2024 07:11 Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn í dag og á morgun. Veðurstofan Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkings norðanátt með rigningu á Norður- og Austurlandi í dag og slyddu eða snjókomu til fjalla. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt bjart.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði kalt í veðri og muni bæta í vind og úrkomu í dag. Er útlit fyrir að færð geti spillst á fjallvegum fyrir norðan í kvöld og nótt. Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn í dag og á morgun. Gular viðvaranir hafa tekið gildi á norðanverðu landinu vegna norðanáttarinnar og slyddu en þær breytast svo í appelsínugular í kvöld, en austantil á morgun. „Norðanáttin fer ekki að ganga niður fyrr en annað kvöld hér vestanlands, en það lægir ekki almennilega fyrir austan fyrr en á föstudag. Hins vegar mun draga mikið úr úrkomunni á Norður- og Austurlandi annað kvöld, en hún verður í formi élja eða skúra norðaustanlands á miðvikudag,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s, en snarpir vindstrengir við fjöll sunnantil. Talsverð rigning eða slydda norðan- og austanlands, en annars skýjað með köflum. Dregur úr vindi vestanlands og úrkomu á Norðvesturlandi um kvöldið. Hiti 4 til 11 stig, hlýjast sunnanlands. Á miðvikudag: Norðan 8-18 m/s, hvassast austast, en hægari norðvestanlands. Skúrir eða él norðaustantil, en annars víða léttskýjað. Hiti 4 til 11 stig, svalast norðaustantil. Víða næturfrost inn til landsins. Á fimmtudag: Norðvestan 13-20 m/s og skúrir eða él norðaustantil og hvassast á annesjum þar, en annars mun hægari og víða bjart veður. Hiti 3 til 11 stig að deginum, hlýjast syðst. Á föstudag: Vaxandi austanátt, bjart framan af en þykknar smám saman upp. Minnkandi norðvestanátt norðaustantil og stöku él eða skúrir. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðaustlæg átt, dálítil rigning sunnan- og austanlands, en annars þurrt. Áfram kalt í veðri, einkum fyrir norðan. Á sunnudag: Lægir og léttir víða til.
Veður Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Sjá meira