Vinnumálastofnun stendur fyrir verkefninu en 60 nemendur á ellefu stöðum á landinu hafa skráð sig í námið sem heitir Færniþjálfun á vinnumarkaði en það fer fram í símenntunarmiðstöðvum og stofnunum. Verkefnið er einnig hluti af landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var á Alþingi fyrr á árinu.
„Færniþjálfunin er tekin á einni önn og inniber bæði starfsþjálfun og fræðslu. Í boði er starfstengt nám við félags- og þjónustustörf, á lager/vöruhúsi, við endurvinnslu, á leikskóla, í ferðaþjónustu og í verslun.
Námið er hluti af því námi sem fræðsluaðilar um allt land bjóða upp á (sí- og endurmenntun) og skrifað inn í íslenska hæfnirammann. Það er gríðarlega mikilvægt því þá erum við ekki að taka fatlað fólk til hliðar eins og gert hefur verið hingað til og segja að eitthvað annað eigi að gilda um það en aðra,“ segir í tilkynningu um nýja námið.

Langar að vinna á leikskóla
Nemendur sem að fréttastofa ræddi við í dag sögðust mjög spenntir fyrir náminu og vonuðust til þess að fá vinnu að námi loknu.
„Bara mjög gott að komast inn í svona verkefni sem að gefur gott fyrir mig og vonandi kemst ég bara lengra með þetta,“ sagði Anna Björk Elkjær Emilsdóttir, 22 ára nemandi.
Hvernig vinnu myndirðu helst vilja fá?
„Leikskóla, fara í leikskóla og kynnast því. Mér finnst bara gaman að vera með krökkunum og leika mér og svona, svo það er bara gaman.“

Finnst gaman að vinna með börnum
Helena Júlía Steinarsdóttir, annar 22 ára nemandi, sagðist vonast til þess að fá vinnu á frístundarheimili í Vesturbænum því þar sé svo gaman að vinna með börnum. Spurð hvernig námið hefst segir hún:
„Við eigum að koma og bíða eftir kennaranum og svo þegar hún kemur þá byrjum við bara að tala og fara yfir það sem við erum að fara gera í dag.“
Ertu strax búin að læra eitthvað?
„Nei ekki mikið ég var bara að byrja síðasta mánudag.“

„Hefur gríðarlega mikla þýðingu“
Sara Dögg Svanhildardóttir, sérfræðingur í atvinnutækifærum fatlaðs fólks sem hannaði og undirbjó námslínuna, segir að um mikilvæg tímamót sé að ræða og frábært að verkefnið skili fólki inn á almennan vinnumarkað en ekki í sértæk störf.
„Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir þennan hóp sem er að taka þátt í þessu verkefni núna sem er einn viðkvæmasti hópurinn í samfélaginu. Við erum að gefa þeim tækifæri og vonandi til framtíðar.
Ég veit bara að það var mikil eftirspurn eftir þessu og það eru fleiri sem bíða eftir því að fá að taka þátt.“

Spennandi og gefandi að efla náms- og starfstækifæri
Verkefnið er hluti af breytingum á örorkulífeyriskerfinu sem að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnti fyrr á árinu undir heitinu Öll með.
„Þetta er einn bútur í keðjunni sem við erum að vinna í um þessar mundir og ofboðslega spennandi og gefandi að taka þátt í að efla bæði náms- og starfstækifæri fatlaðs fólks.“
