Innlent

Þróuðu vef­síðu sem segir til um um­ferð

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Kristján Leó Guðmundsson er einn hugmyndasmiða síðunnar. 
Kristján Leó Guðmundsson er einn hugmyndasmiða síðunnar.  Vísir

Ungur forritari hvetur fólk til að nota nýja vefsíðu sem segir til um hve mikil umferð er á höfuðborgarsvæðinu. Vefsíðan geti komið sér vel, nú þegar fólk er í óða önn að undirbúa áramótin.

Ný vefsíða sem ber heitið ErUmferð.is reiknar út hve mikil umferð er á höfuðborgarsvæðinu að hverju sinni. Vefsíðan gefur þá upp nýja vísitölu sem uppfærist á fimm mínútna fresti og notar gögn frá mælum Landupplýsingakerfi sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Orkuveitunnar og Mílu til að reikna meðaltal umferðar í borginni.

Rúmlega tvítugur forritari á bak við vefsíðuna segir að hugmyndin hafi sprottið upp þegar að hann og vinur hans, Valdimar Örn Sverrisson, sem kom einnig að þróun vefsíðunnar voru að grúska í gögnum Landupplýsingakerfisins sem þeir hafi báðir mjög gaman af.

„Við tökum sem sagt vegið meðaltal af hraða bíla í borginni. Við notum alla þessa mæla, og þegar bílarnir fara hægt er umferðin lítil en þegar þeir fara hratt er hún mikil,“ segir Kristján Leó Guðmundsson hugmyndasmiður vefsíðunnar. 

Drengirnir á bak við vefsíðuna hafi fengið góð viðbrögð frá þeim sem noti síðuna sem sé í stöðugri þróun.

„Við bættum við um daginn svona umferðarspá fram í tímann. Ef maður skrollar niður á síðunni má sjá svona spá fram í tímann yfir daginn. Hversu mikil umferð verður á hverjum tímapunkti. Við höfðum hugsað okkur að bæta aðeins þessa spá og taka inn í þetta eins og veður og fleira. Ef það er slæmt veður er yfirleitt meiri umferð,“ segir Kristján

Hann segist hafa tekið eftir því að umferðin nær hámarki klukkan korter yfir fjögur, oftast á þriðjudögum. „Svo passið ykkur á því,“ segir Kristján og hlær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×