Innlent

Tveir al­var­lega særðir eftir stunguárás á Kjalar­nesi

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynnt var um árásina um klukkan eitt í nótt.
Tilkynnt var um árásina um klukkan eitt í nótt. Vísir/Vilhelm

Tveir eru alvarlega særðir og er annar þeirra talinn vera í lífshættu eftir stunguárás á Kjalarnesi í nótt.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að árásarmaðurinn hafi verið handtekinn af lögreglu á vettvangi og hafi sérsveitin verið kölluð til aðstoðar. Alls hafi þrír verið vistaðir í fangaklefa vegna málsins og segir að árásarþolar hafi verið þrír.

Ennfremur segir að árásarþolar hafi verið fluttir á sjúkrahús til frekari aðhlynningar, en mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna málsins og margir á vettvangi.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst útkallið vegna málsins um klukkan eitt í nótt.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×