Innlent

Rútur skullu saman á Hellu

Árni Sæberg skrifar
Slysið varð inni á Hellu.
Slysið varð inni á Hellu. Vísir/Vilhelm

Tvær rútur, með um fimmtíu manns innanborðs, skullu saman á þjóðveginu inni á Hellu. Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna árekstursins. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en síðar afturkölluð.

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir í samtali við Vísi að viðbragðsaðilar séu nýkomnir á vettvang og því liggi frekari upplýsingar um slysið ekki fyrir að svo stöddu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá slysinu.

 Sveinn Rúnar segir að ekki sé vitað hvort alvarleg slys hafi orðið á fólki. Hópslysaáætlun hafi verið virkjuð og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að þyrslusveitin hafi verið að undirbúa flugtak frá Reykjavík þegar hún afturkölluð.

Veistu meira um málið? Áttu myndir af vettvangi? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is.

Fréttin var uppfærð eftir að þyrslusveitin var afturkölluð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×