Viðskipti innlent

Vatnsbúskapurinn fer batnandi

Árni Sæberg skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Ívar Fannar

Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta endurkaupum raforku af járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Ástæðan er sú að vatnsbúskapur Landsvirkjunar hefur batnað.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að þrír blotakaflar í vetur og vatnssparandi aðgerðir sem gripið hafi verið til hafaibætt vatnsbúskap Landsvirkjunar. Nú sé svo komið að staða Þórisvatns er ívið betri en á sama tíma í fyrra, en vatnsárið hafi byrjað í sögulegu lágmarki. 

Staðan sé enn vel undir meðallagi, en hafi þó skánað það mikið að ekki teljist ástæða til að halda áfram endurkaupum af járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga, eins og heimild sé til í samningi fyrirtækisins við Landsvirkjun.

Halda skerðingum áfram

Í desember hafi verið ákveðið að virkja endurkaupaákvæði í samningum Elkem og þá hafi verið reiknað með að endurkaup stæðu fram í byrjun febrúar hið skemmsta. Það hafi verið síðasta vatnssparandi úrræði sem Landsvirkjun hafði yfir að ráða og jafnframt það kostnaðarsamasta. Það sé því ánægjulegt að geta nú hætt þeim kaupum.

Landsvirkjun hafi hafið skerðingar til stórnotenda á suðvesturhluta landsins hinn 24. október síðastliðinn. Þær verði óbreyttar áfram, enda vatnsbúskapur syðra enn með þeim hætti að skerðinga sé þörf.

Blöndulón og Hálslón yfir meðallagi

Staða bæði Blöndulóns og Hálslóns sé með ágætum, þau séu bæði yfir meðallagi og ekki þörf á skerðingum á Norður- og Austurlandi að svo stöddu. Miðlunarstaða sé því betri á Norður- og Austurlandi en syðra, líkt og undanfarin ár. 

Þetta ójafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta verði til vegna mismunandi veðurfars en einnig vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets. Landsvirkjun geti ekki flutt eins mikla orku að norðaustan og fyrirtækið vildi til að styðja við raforkuafhendingu sunnanlands og ná jafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×