Búist er við því að austanáttin beri með sér úrkomusvæði, sem mun bera í skaut með sér lítilsháttar rigningu eða slyddu með köflum. Þó verður þurrt fyrir norðan að mestu.
Þá kemur fram að frostlaust verði á sunnanverðu landinu, en sums staðar vægt frost fyrir norðan.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Austan 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Dálítil él á austanverðu landi, en bjart með köflum vestantil. Víða vægt frost, en hiti 0 til 5 stig við suðurströndina.
Á laugardag:
Austan 5-13 m/s, en 13-18 við suðurstöndina. Skúrir eða dálítil él suðaustantil, annars úrkomulaust að mestu. Hiti 0 til 5 stig sunnantil, en annar víða vægt frost.
Á sunnudag:
Austanátt og víða dálítil él, en bjartviðri um landið vestanvert. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en mildara syðst.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir áframhaldadi austanáttir, lítilsháttar él á víð og dreif, en heldur kólnandi veður.