Óhætt er að segja að gustað hafi um flokkinn á liðnum mánuði og stendur fylgi hans nú í níu prósentum. Í síðustu könnun sem var gerð í janúar mældist það þrettán prósent og flokkurinn hlaut tæp fjórtán prósent atkvæða í nýafstöðnum kosningum. Á fjórum mánuðum hefur fylgið því fallið um tæp fimm prósentustig.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir aftur á móti við sig tveimur prósentustigum á milli kannana og mælist nú með 21,4 prósent. Þá bæta Sósíalistar einnig við sig og fylgi þeirra stendur í 5,5 prósentum.
Að öðru leyti eru litlar breytingar á fylgi flokkanna. Samfylkingin mælist með um tuttugu og tvö prósent og á pari við Sjálfstæðisflokkinn. Þá er Viðreisn með um fimmtán prósent samkvæmt könnuninni og fylgi Miðflokksins stendur í stað í 11,5 prósentum.
Framsóknarflokkurinn mælist áfram með í kringum sjö prósent. Þá stendur fylgi Pírata og Vinstri Grænna, sem féllu af þingi í síðustu kosningum, í stað í um þremur prósentum.