Innlent

Allir og amma þeirra keppast um að skil­greina „woke“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Ansi margir hafa tjáð sig um hugtakið „woke“  eftir að Sólveig Anna tjáði andúð sína á því á Samstöðinni í gær.
Ansi margir hafa tjáð sig um hugtakið „woke“ eftir að Sólveig Anna tjáði andúð sína á því á Samstöðinni í gær. Vísir

Rökræður Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Hallgríms Helgasonar, rithöfundar, um hugtakið „woke“ hafa dregið dilk á eftir sér. „Woke“ virðist nú á allra vörum en mikil umræða á sér nú stað um hugtakið á samfélagsmiðlum.

Samtal Hallgríms og Sólveigar átti sér stað í þættinum Synir Egils á Samstöðinni. Þar sagðist Sólveig vera orðin leið á „woke-leiðindaþusi“ og þyrfti vinstri vængur stjórnmálanna að hætta að reiða á þá hugmyndafræði hyggist þeir sem þar eru ná árangri. Hallgrímur furðaði sig á orðum Sólveigar, sagði hana tala eins og Donald Trump Bandaríkjaforseti, og dró það reyndar til baka, en sagði það að vera „woke“ í grunninn snúast um umburðarlyndi.

Skiptar skoðanir eru á þessum skoðanaskiptum. Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir í ummælum á Facebook að svo virðist sem Sólveig fái sína skilgreiningu úr „hægri bergmálshellum“ sem hún sjálf kannast ekki við. Öfgahægrið sé búið að reyna að búa til grýlu úr hugtakinu sem geri fólki til að mynda kleift að segjast vera á móti réttindum fólks, án þess að þurfa beinlínis að segjast vera á móti þeim.

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hrósaði hins vegar Sólveigu sérstaklega fyrir að lýsa „woke“ sem ráðagjarni eða einræðislegri hugmyndafræði. Hann bauð hana velkomna um borð.

Margir velta sérstaklega fyrir sér skilgreiningunni á „woke“-hugtakinu. Sumir vilja meina að ágreiningur Sólveigar og Hallgríms sé ekki hugmyndafræðilegur, heldur skilji þau hugtakið sem er til umfjöllunar með algjörlega ólíkum hætti.

„Woke“ sjálfsbirgingsháttur

„Mér fannst þau bæði hafa ýmislegt til síns máls, en þau voru ekki að tala saman heldur sundur, eins og við gerum stundum hér,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, en sjálfur segir hann að hann myndi aldrei nota orðið sem skammaryrði.

„Woke“ megi rekja uppruna sinn til svartra í Bandaríkjunum, og hafi hún breiðst út og sé nú eins konar regnhlífar hugtak um það að vera meðvitaður um alls kyns óréttlæti.

„Við eigum að bera virðingu fyrir þeirri mannréttindabaráttu og hugtakinu í þessari upphaflegu merkingu,“ segir Guðmundur Andri.

Hann segir Sólveigu Önnu líta málið öðrum augum. Hjá henni vísi „woke“ til sjálfsbirgingsháttur þeirra sem styðji við mannréttindabaráttu en setja sjálfa sig um leið á siðferðilega háan hest.

„Því miður hefur þetta göfuga hugtak úr lífsbaráttu svartra farið að merkja í hugum almennings kröfu um að fallast skilyrðislaust á tiltekna skoðun eða sýn, þöggunartilburði, dómhörku og skort á umburðarlyndi.“

Sólveig Anna „woke“ eftir allt saman?

Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason tekur í sama streng í Facebook-færslu.

„Vil helst ekki eyðileggja góðan samfélagsmiðlaæsing en þau sem skilgreina sig sem woke og þau sem hata woke eru að tala um sitthvorn hlutinn. Það er því algjör óþarfi að rífast um þetta,“ segir hann.

Að mati Atla Fannars myndi Sólveig Anna eflaust teljast „woke“ sjálf samkvæmt upprunalegu skilgreiningunni, þeirri sem hún

„Þau sem telja sig vera woke horfa til upprunalegu skilgreiningarinnar, sem snerist um að vera vakandi gagnvart rasisma. Það færðist svo yfir á annað félagslegt óréttlæti, þannig að baráttukonan Sólveig Anna væri eflaust woke samkvæmt upprunalegu skilgreiningunni,“ segir Atli Fannar.

„Þau sem hata woke skilgreina hugtakið hins vegar þannig að þau sem auglýsa góðmennsku sína, styðja slaufunarmenningu og pólitíska rétthugsun séu woke. Þau velja svo sjálf hverja þau skilgreina með þessum hætti, hvort sem fólki líkar betur eða verr.“

Sólveig í fararbroddi í stjörnuliði Brynjars Karls

Brynjar Karl Sigurðsson, körfuknattleiksþjálfari, leggur jafnframt orð í belg, en hann virðist heillaður af frammistöðu Sólveigar á Samstöðinni og er tilbúinn að styðja Sósíalistaflokkinn ef Sólveig fær að leiða hann.

„Frá og með deginum í dag er ég official Sósíalisti! Ég viðurkenni að ég er pínu stressaður—mér finnst ennþá sumt sem íslenskir sósíalistar segja algjört kjaftæði—EN, ég er farinn að sætta mig við þá hugsun að kona eins og Sólveig Anna Jónsdóttir viti bara betur en ég. Nú er ég bara „all ears“. Ef Sólveig leiðir Sósíalistana, þá er ég officially „game“.“

Brynjar virðist vera byrjaður að safna liði, en hann myndi vilja fá áðurnefndan Snorra og Eirík Björn Björgvinsson, þingmann Viðreisnar, og mögulega líka Guðnýju Maja Riba, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

„All-Star Team úr Miðflokk, Viðreisn, Samfylkingu, Sósíalistar,“ segir Brynjar Karl.

Hallgrímur tjáir sig aftur

Hallgrímur Helgason hefur síðan tjáð sig um málið á ný á Facebook. Hann veitir því athygli að á samfélagsmiðlum hafi „allir hægridúddarnir“ fagnað Sólveigu Önnu.

„Verð að játa að ég sá þessar vendingar ekki fyrir. Hélt að woke væri sjálfsagður hlutur öllu vökulu fólki og velmeinandi. En þarna ná Efling og Miðflokkurinn óvænt saman, sem og Mistflokkurinn í Valhöll,“ segir Hallgrímur.

„En við höldum kúrs og lúffum aldrei á mannréttindum allra, hvar í kyni, húðlit, stríðum og óréttlæti sem þau standa. Veljum alltaf mannúð gegn mannhatri!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×