Bandarískir ráðamenn binda vonir við að hægt verði að ganga frá samkomulaginu fyrir lok næstu viku en talið er að því sé meðal annars ætlað að veita Bandaríkjunum aðgang að olíu-, gas- og námuvinnslu í Úkraínu.
Viðræður hafa staðið yfir milli ríkjanna í nokkurn tíma en hökt kom í þær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Volódómír Selenskí Úkraínuforseti tókust á fyrir opnum tjöldum í Hvíta húsinu í febrúar.
We are happy to announce the signing, with our American partners, of a Memorandum of Intent, which paves the way for an Economic Partnership Agreement and the establishment of the Investment Fund for the Reconstruction of Ukraine. pic.twitter.com/AQsHPkWh5X
— Yulia Svyrydenko (@Svyrydenko_Y) April 17, 2025
Yulia Svyrydenko, efnahagsráðherra Úkraínu, greinir frá undirritun viljayfirlýsingarinnar á samfélagsmiðlinum X og hefur The Guardian yfirlýsinguna undir höndum.
Ráðherrann bindur vonir við að tilkoma fjárfestingasjóðsins muni laða að fjármagn til að endurreisa landið, nútímavæða innviði og skapa ný efnahagsleg tækifæri.
Óljóst hvort Úkraína þurfi að endurgreiða Bandaríkjunum
„Þetta skjal er afrakstur faglegrar vinnu samningahópanna, sem nýlega luku annarri lotu tæknilegra viðræðna í Washington. Fram undan er frágangur á texta samningsins og undirritun hans — og í kjölfarið samþykkt þjóðþinga,“ segir Svyrydenko í færslu á X.
Í upphafi viljayfirlýsingarinnar er tekið fram að Bandaríkin hafi veitt Úkraínumönnum umfangsmikinn fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst í febrúar 2022. Því næst segir að bandaríska þjóðin vilji samhliða Úkraínumönnum fjárfesta í frjálsri, fullvalda og öruggri Úkraínu. Þá þrái bæði ríkin langvarandi frið í landinu.

Samkvæmt yfirlýsingunni er stefnt að því að ríkin komi á fót sameiginlegum fjárfestingarsjóði en ekki er skýrt hvort ágóði af nýjum fjárfestingum yrði nýttur til að endurgreiða Bandaríkjunum fyrir þá aðstoð sem hafi verið veitt.
Trump hefur áður fullyrt að Úkraína „skuldi“ Bandaríkjunum minnst 300 milljarða bandaríkjadala. Selenskí hefur svarað því svo að aðstoð veitt undir Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafi ekki verið lán og því þurfi ekki að endurgreiða hana. Á sama tíma hefur hann lýst yfir vilja til að endurgreiða framtíðaraðstoð sem veitt verði undir stjórn Trumps.
Meira og minna það sem þau höfðu áður komið sér saman um
Viljayfirlýsingin var undirrituð af Svyrydenko og Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, á fjarfundi en sá síðarnefndi var staddur í Washington.
„Þetta er að stærstum hluta leyti það sem við höfðum komið okkur saman um áður. Þegar forsetinn [Volódómír Selenskí] var hér vorum við með viljayfirlýsingu. Við fórum beint í stóra samninginn og ég held að þetta sé 80 blaðsíðna samningur og það er það sem við munum skrifa undir," segir Bessent.
Trump boðar fregnir
Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf nýlega til kynna á blaðamannafundi með Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, að samningur væri langt kominn.
„Við erum með jarðefnasamning sem ég býst við að verði undirritaður á fimmtudaginn... næsta fimmtudag. Bráðum. Og ég geri ráð fyrir að þeir muni standa við samninginn. Svo við sjáum til. En við höfum samkomulag um það,“ sagði Trump.
Hvíta húsið hefur ekki veitt frekari upplýsingar um tímasetningu og innihald samningsins, samkvæmt Reuters-fréttastofunni.
Mikið hefur gengið á í viðræðum Bandaríkjanna og Úkraínu. Í mars var fullyrt að ráðamenn í Bandaríkjunum hafi sent Úkraínumönnum drög að nýju samkomulagi sem myndu í raun veita Bandaríkjamönnum stjórn á auðlindum Úkraínu.
Heimildarmenn Financial Times meðal ráðamanna í Úkraínu lýstu þeim drögunum sem ósanngjörnum og tilraun til ráns. Þá sögðu þeir að samkomulag sem byggi á þessum drögum myndi grafa undan fullveldi Úkraínu og gera ríkið háð Bandaríkjunum.
Fréttin hefur verið uppfærð.