Erlent

Lífs­tíðar­fangelsi fyrir að selja dóttur sína

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kelly Smith, auk tveggja annarra manna, var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa selt sex ára dóttur sína.
Kelly Smith, auk tveggja annarra manna, var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa selt sex ára dóttur sína. EPA

Kona frá Suður-Afríku hefur verið úrskurðuð í lífstíðarfangelsi fyrir að selja sex ára dóttur sína. Dóttirin er enn ekki fundin.

Leitað var af Joshlin Smith, sex ára dóttur Kelly Smith, í febrúar síðastliðnum í öllu landinu af lögreglu er hún týndist. Ljósmynd af henni með tíkarspena í hárinu var birt á helstu fréttamiðlum landsins í von um að finna hana. Fjöldi fólks aðstoðaði Kelly í leitinni að dóttur sinni.

Kelly var dregin fyrir dóm auk Jacquen Appolis, kærasta hennar og Steveno van Rhyn, vin parsins. Ónefnd kona bar vitni fyrir dóm þar sem hún sagði Kelly hafa sagt sér að hún ætlaði að selja dóttur sínar til andalæknis. Andalæknirinn vildi Joshlin fyrir líkamshluta hennar og átti Kelly að hafa fengið þúsund dollara fyrir dóttir sína, eða um 130 þúsund íslenskar krónur.

Kelly, Jacquen og Stevano voru öll úrskurðuð í lífstíðarfangelsi fyrir mansal auk tíu ára fangelsisvist fyrir mannrán. 

Við úrskurð dómsins tók dómarinn ekki fram hver keypti barnið eða hver örlög hennar voru. Hann sagði hins vegar að Joshlin hefði verið seld í þrældóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×