Grafarþögn um niðurstöðuna Þingnefnd sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis lauk fundi um áttaleytið í kvöld og hafði þá verið að störfum mestan hluta dagsins. Nefndin hefur enn ekki lokið störfum og hefur verið boðað til fundar aftur á morgun. Innlent 10. september 2010 21:31
Björgólfur lét vini sína halda á eignarhlut og fékk því greiðan aðgang að lánsfé Nánir samstarfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar, áttu fimm prósenta hlut í einu eignarhaldsfélaga Björgólfs. Það hafði í för með sér að Björgólfur gat fengið mun meira að láni í Landsbankanum, en ef hann hefði sjálfur átt hlutinn. Innlent 8. september 2010 16:37
Ákvörðun um ákærur tekin fyrir vikulok Stefnt er að því að um næstu helgi liggi fyrir afstaða þingmannanefndar til þess hvort þeim ráðherrum, sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið taldi að gerst hefðu sekir um vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins 2008, verði stefnt fyrir landsdóm. Innlent 5. september 2010 21:00
Niðurstöður þingmannanefndar fyrirferðarmestar Tveggja vikna septemberþing verður sett í dag. Það er fyrst og fremst hugsað til að afgreiða mál sem ekki tókst að klára fyrr í ár. Fjölmiðlalög og lagabálkur um útlendinga og flóttamenn meðal þess sem ræða á. Innlent 2. september 2010 05:45
Kynnir rannsóknarskýrsluna fyrir þingforsetum Páll Hreinsson, hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndar Alþingis, gerir grein fyrir störfum nefndarinnar á árlegum fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem fer fram í Reykjavík í dag. Í erindi sínu mun Páll fara yfir hvernig staðið var að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna haustið 2008. Innlent 19. ágúst 2010 11:07
Rannsóknaskýrslan mest selda bókin Rannsóknaskýrsla Alþingis er mest selda bókin frá áramótum, samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Innlent 20. júlí 2010 11:15
Dregur lagagrundvöll í efa Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis og einn þriggja manna í rannsóknarnefnd Alþingis, beinir hvössum spurningum til Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins í bréfi sem hann sendi þeim nýlega. Tilefnið er tilmælin sem stofnanirnar sendu til fjármálafyrirtækja í framhaldi af dómi Hæstaréttar um gengistryggð bílalán. Innlent 9. júlí 2010 03:00
Bæjarfulltrúar ræddu ráðningu Guðmundar Rúnars Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hittust á fundi í gær og ræddu um afsögn Lúðvíks Geirssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar segir ráðninguna í anda málefnasamnings flokksins og Vinstri Grænna. Innlent 8. júlí 2010 14:06
Flokkurinn borgar ekki verðlaun Valhallar Utanlandsferð sem sigurvegari í heilsuátaki Valhallar á að fá í vinning verður ekki greidd úr sjóðum flokksins heldur úr starfsmannasjóði Valhallar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Valhöll sendi frá sér og var birt á vefmiðlinum AMX nú fyrir skömmu. Innlent 6. júlí 2010 16:07
Ánægð með hrausta Sjálfstæðismenn „Er ekki almenn heilsuvakning í samfélaginu," segir Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins um heilsuátak starfsfólks Valhallar. Starfsmenn flokksins hafa verið fitumældir og mun sigurvegari heilsuátaksins fá vegleg verðlaun. Innlent 6. júlí 2010 15:43
Heilsuátak í Valhöll - starfsmenn fitumældir „Við viljum gera góða heilsu betri," segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Jónmundur stendur fyrir heilsuátaki starfsfólks Valhallar þar sem utanlandsferð er í verðlaun. Innlent 6. júlí 2010 12:54
Þingmannanefnd ætlar að ljúka störfum fyrir ágústlok Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, segir að nefndin stefni að því að ljúka störfum fyrir lok ágúst. Nefndin hefur ekki komist að niðurstöðu í málum ráðherra sem eru taldir hafa sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins. Innlent 27. júní 2010 18:41
Fréttaskýring: Um hvað snúast fundahöld stjórnmálaflokka um helgina? Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um helgina, auk flokksráðsfunda Samfylkingarinnar og Samfylkingarinnar. Á fundunum verður meðal annars rætt um niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis og niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna, þar sem allir hefðbundir flokkar töpuðu fylgi frá kosningunum fyrir fjórum"arum. Innlent 24. júní 2010 06:00
Sífellt fleiri vilja leiðréttingu Almenn niðurfelling skulda upp á 20 prósent kostar 114 milljarða, setur Íbúðalánasjóð á hausinn og eykur útgjöld hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og bönkunum. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í ræðu á Alþingi í gær. Innlent 16. júní 2010 05:15
Formaður má ekki segja frá Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur, eftir að styrkjaumræðan komst í hámæli, beðið styrkveitanda sinn frá 2006 um leyfi til að greina frá styrk upp á hálfa milljón, en ekki fengið leyfið. Bjarni segir að gengið hafi verið út frá því þegar styrkurinn var veittur að það yrði gert í nafnleysi. Þannig hafi verið um marga styrki til ýmissa frambjóðenda. Innlent 15. júní 2010 06:00
Þórunn Sveinbjarnardóttir: Nauðsynlegt að fækka ráðuneytum Þórunn Sveinbjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, áréttaði í ræðu sinni á eldhúsdagskráumræðum á Alþingi, að það væri nauðsynlegur hluti af því að stoppa upp í rúmlega 40 milljarða fjárlagagat að fækka ráðuneytum og sameina önnur. Innlent 14. júní 2010 21:33
Fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans líklega lausir allra mála Þrír fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans og fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins eru væntanlega lausir allra mála vegna starfa sinna í aðdraganda bankahrunsins, eftir að settur ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til sakamálarannsóknar á hendur þeim. Þingmaður Hreyfingarinnar telur niðurstöðuna vera fyrsta skrefið af mörgum í hvítþvotti yfirstéttarinnar á sjálfri sér. Innlent 7. júní 2010 18:57
Fyrrverandi forstjóri FME sakar þingmenn um pólitískt sjónarspil Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann teldi að ákvörðun þingnefndar um að senda ábendingu til setts ríkissaksóknara um meinta vanrækslu væri pólitískt sjónarspil. Innlent 31. maí 2010 18:39
Meint vanræksla seðlabankastjóra og forstjóra FME til saksóknara Þingmannanefnd sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis hefur ákveðið að senda ábendingu til ríkissaksóknara um málefni þeirra embættismanna sem rannsóknarnefnd Alþingis telji að hafi sýnt af sér vanrækslu í störfum sínum í aðdraganda hrunsins. Innlent 31. maí 2010 16:22
Vilja sjónarmið nítján ráðherra frá 2007 Allir ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn frá 1. janúar fram að hruni hafa fengið bréf frá þingmannanefnd um rannsóknarskýrsluna. Þar er þeim gefinn kostur á því að útskýra sitt sjónarmið varðandi aðkomu þeirra að hruninu eða aðgerðaleysi. Innlent 29. maí 2010 07:00
Rætt um ýmsar hliðar orkumála Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra situr nú hnattvæðingarþing norrænu ráðherranefndarinnar í Danmörku. Innlent 21. maí 2010 05:15
Borgarráð vill svör frá Árna Borgarráð vill skýringar frá Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra vegna yfirlýsinga hans um fækkun starfa í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og velferðar- og öldrunarþjónustu. Borgarráð hefur áhyggjur af áhrifum þessa á atvinnuástand í Reykjavík. Innlent 21. maí 2010 04:00
Auðlindamálin sett á dagskrá Kosið verður til stjórnlagaþings í síðasta lagi 31. október samkvæmt breytingatillögu meirihluta allsherjarnefndar á frumvarpi forsætisráðherra um þingið. Innlent 21. maí 2010 02:00
Aðstæður gjörbreyttar „Í nóvember var ferðaþjónusta í blóma, náttúra vinveitt og krónan veik. Nú blasir við breytt mynd og blæs á móti,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, á fundi Icelandair í gærmorgun. Hún taldi sig vita að vonir aðstandenda fundarins hafi staðið til þess að þegar að honum kæmi yrði eldgosið í Eyjafjallajökli yfirstaðið eða í rénun. Innlent 20. maí 2010 05:00
Stjórnir verði endurvaktar Stjórnir heilbrigðisstofnana verða endurvaktar nái tillaga nokkurra þingmanna, með Ásmund Einar Daðason, VG, í fararbroddi, fram að ganga. Innlent 20. maí 2010 04:30
Þurfandi mætt með aðstoð og leik Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað 30 milljónum króna úr sjóði sem stofnaður var í tilefni Evrópuársins gegn fátækt og félagslegri einangrun. 21 verkefni hlaut styrk en sótt var um framlög vegna 84 verkefna upp á samtals rúmlega 200 milljónir. Innlent 20. maí 2010 04:00
Rannsóknarskýrslan rædd í fræðilegu ljósi Háskóli Íslands mun bjóða stúdentum sérstakt fjölfræðilegt námskeið í sumar þar sem fjallað verður um hrunið í fræðilegu ljósi. Um er að ræða tvö 6 eininga námskeið á BA stigi, sem haldin eru í samfellu. Hið fyrra verður frá 20. maí til 8. júní og hið síðara frá 10. júní til 29. júní. Nemendur geta tekið hvort sem er 6 eða 12 einingar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HÍ. Innlent 18. maí 2010 15:18
Lögreglumenn leiða hvor sinn listann Oddvitar framboðslistanna tveggja í Skaftárhreppi eru lögregluþjónarnir tveir sem starfa í hreppnum, Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri og Þorsteinn Kristinsson lögreglustjóri. „Við erum fagmenn á okkar sviði, það er langt því frá að þessi staða trufli okkur," sagði Þorsteinn þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um málið. Innlent 18. maí 2010 05:30
Þorvaldur Gylfason: Vill tryggja framhaldslíf rannsóknarnefndar Þorvaldur Gylfason vill festa rannsóknarnefnd Alþingis í stofnanamynd svo nefndin geti haldið starfi sínu áfram. Hann segir að það þurfi að rannsaka margt. Innlent 2. maí 2010 13:08