

Bílar
Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Hleypa lofti úr dekkjum í skjóli nætur í þágu loftslagsbaráttu
Hópur breskra aðgerðasinna í loftslagsmálum hefur gripið til þeirra ráða að hleypa lofti úr dekkjum hundruð jeppa og jepplinga í stórborgum Bretlands. Hópurinn vill útrýma slíkum bílum á þéttbýlum svæðum.

Eldsneytisverð muni sveiflast mikið á næstu vikum
Framkvæmdastjóri N1 telur líklegt að miklar sveiflur verði í eldsneytisverði á næstu dögum og vikum. Bensínverð fór yfir 300 krónur á lítrann í dag hjá flestum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu.

Viðlíka verðhækkun í Evrópu ekki sést í manna minnum
„Þetta er auðvitað skelfileg verðþróun. Við sjáum það bara að á tíu dögum hefur verðið hækkað um 20 kr. til neytenda á útsölustöðum og það sér ekki endilega fyrir endann á þessu þannig að við vitum ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“

Indian eFTR Hooligan rafhjólið
Rafknúin reiðhjól eru á mikilli siglingu og njóta sífellt meiri vinsælda. Nýjasta viðbótin í þá flóru er Indian eFTR Hooligan sem hefur útlit sem er alls ekki mjög reiðhjólalegt í laginu.

Kviknaði í stórum jeppa á Hólmsheiði
Eldur kviknaði í stórum jeppa á Hólmsheiði á fjórða tímanum í dag. Ökumaður náði að keyra bílinn út af veginum og koma sér út úr honum.

LiveWire ætlar að selja 100.000 rafmótorhjól á ári
LiveWire er rafmótorhjóla angi goðsagnakendna mótorhjólaframleiðandans Harley-Davidson. Fyrirtækið ætlar sér stóra hluti í rafmótorhjólaleiknum á næstunni. Mikill vöxtur er fyrirhugaður á næstu átta árum.

Teslueigendur uggandi vegna óbætts vatnstjóns eins þeirra
Eigendur rafbíla af gerðinni Tesla virðast vera uggandi eftir fréttir af óbættu vatnstjóni eins þeirra. Margir þeirra segjast ætla að skipta um tryggingar og sumir íhuga jafnvel að falla frá kaupum á pöntuðum Teslum.

Tesla firrar sig ábyrgð: Situr uppi með milljóna króna tjón eftir að hafa ekið í poll
Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar. Þetta segir Hafþór Pálsson, sem varð fyrir því að glæný Tesla tjónaðist þegar hann ók í poll á dögunum.

Polestar O2 hugmyndabíllinn er rafmagns blæjubíll
O2 er annar hugmyndabíllinn frá Polestar og er honum ætlað að kynna hugmyndir framleiðandans um nýja kynslóð rafbíla.

Sprakk á rúmlega tíu bílum í röð eftir sömu holuna
Fjöldi bíla sat fastur með sprungin dekk eftir holu á vegi í Kópavogi fyrr í kvöld. Ökumaður segist hafa talið rúmlega tíu bíla í bílaröðinni sem myndaðist, allir með sprungið á dekkjum.

Kia EV6 valinn Bíll ársins í Evrópu
Rafbíllinn Kia EV6 hefur verið valinn Bíll ársins í Evrópu árið 2022. Kia EV6 hefur fengið góðar viðtökur síðan hann var frumsýndur á síðasta ári.

Bylting í bílamálun með sjálfvirkri blöndunarvél
PPG er einn fremsti lakkframleiðandinn heims og selur nýjustu tækni og tól til bílasprautunar. Fyrirtækið lætur meðal annars framleiða sjálfvirkar lakkblöndunarvélar sem skila ítrustu nákvæmni í blöndun.

Toyota með flestar nýskráningar í febrúar
Toyota seldi flesta bíla í febrúar, með 124 eintök nýskráð. Nissan var í öðru sæti með 91 eintak nýskráð. Alls voru 1293 ökutæki nýskráð í febrúar, það er aukning um 34 prósent frá því í febrúar í fyrra. Tölurnar eru byggðar á tölfræðivef Samgöngustofu.

Rivian er á góðri leið að aukinni framleiðslu
Framkvæmdastjóri bandaríska rafbílaframleiðandans Rivian, RJ Scaringe segir að fyrirtækið sé „á góðri leið í átt að aukinni framleiðslu.“ Hann hefur einnig sagt að félagið stefni á 10% markaðshlutdeild á rafbílamarkaði fyrir árið 2030.

Jeppasýning Toyota á morgun
Bílaumboðið Toyota ætlar að halda árlega jeppasýningu sína á morgun. Venju samkvæmt verður mikið um jeppa á sýningunni sem haldin verður í sýningarsal Toyota í Kauptúni. Sýningin verður opin á morgun á milli 12-16.

Toyota og Yamaha þróa vetnis vél saman
Samstarfinu er ætlað að skila af sér átta strokka, fimm lítra 444 hestafla vetnisvél. Markmiðið er einnig að komast að því hvort vetni sé raunverulegur kostur fyrir brunahreyfilsvélar.

Renault er að vinna að vetnisbíl
Franski framleiðandinn kynnti nýlega hugmyndabíls sem notast við vetni. Myndin af hugmyndabílnum gefur lítið upp en bíllinn gæti verið afar spennandi. Sérstaklega þar sem um vetnisbíl er að ræða. Er um straumhvörf að ræða?

BMW iX - Sannur BMW
BMW iX er stærsti rafdrifni bíllinn frá BMW hingað til. Um er að ræða fimm manna rafjeppling, þar sem mikið hefur verið lagt upp úr upplifun við hönnun. Upplifunin er BMW út í gegn, sem er áhugavert.

Brennandi skip fullt af lúxusbílum á reki um Atlantshaf
Flutningaskipið Felicty Ace er nú á reki um Atlantshaf eftir að það kviknaði í því á miðvikudaginn. Skipið er fullt af lúxusbílum frá Porsche og Wolkswagen.

Myndband: Aptera sólarorkubíllinn stingur Tesla Model 3 af í spyrnu
Aptera Motors er fyrirtæki sem framleiðir þriggja hjóla sólarorkudrifin rafbíl sem er frekar fljótur. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi má sjá Aptera í beta útgáfu sem og alpha útgáfu í spyrnu á móti Telsa Model 3 og Audi R8.

Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power
Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningarfyrirtækisins J.D. Power yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílmerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða.

Genesis GV60 með drift- og innskotsstillingu
Genesis er lúxus útgáfa af Hyundai bílum, svipað og Lexus er hjá Toyota. Genesis miðar frekar á BMW og Audi á meðan Hyundai miðar á aðra keppinauta. Genesis bifreiðar hafa nánast eingöngu verið fáanlegar í Bandaríkjunum. Nú stefnir í að breyting verði þar á, Evrópa er á planinu.

Dacia Duster nálgast tvær milljónir framleiddar
Fljótlega á þessu ári verða þau tímamót í sögu Dacia Duster að tveggja milljónasta eintakinu verður ekið af færibandi bílaverksmiðjunnar í Mioveni í Rúmeníu. Framleiðsla bílsins hófst árið 2010.

Nýja bílasölusvæðið K7 opnar formlega
Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Hyundai notaðir bílar, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru búin að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á milli Hestháls 15 og Krókháls 7 í Reykjavík og munu opna það formlega í dag, laugardag. Nýja bílasölusvæðið, sem ber heitið K7 með tilvísun í Krókháls 7, er rúmlega 23 þúsund fermetrar að stærð. Það var sérstaklega skipulagt fyrir bílasölurnar fjórar og rúmar alls um 800 bíla.

Fljúgandi rafbíllinn Jetson One
Jetson One er eins manns flugbíll sem er hannaður til að minna á kappakstursbíl. Bíllinn er framleiddur af sænska fyrirtækinu Jetson. Hann var fyrst kynntur í október í fyrra.

Sjóvá semur við nýja aðila til að sjá um vegaaðstoðina
Tryggingafélagið Sjóvá hefur gert samning við Securitas um að sinna vegaaðstoð fyrir viðskiptavini tryggingafélagsins.

Subaru Outback fékk hæstu einkunn Euro NCAP
Aðstoðarkerfi Subaru Outback fékk hæstu meðaleinkunn hjá Euro NCAP, fimm stjörnur fyrir framúrskarandi öryggi og afköst. Euro NCAP, er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu. Úttektin á aðstoðarbúnaði fólksbílaframleiðenda fór fram á árunum 2020 og 2021.

Ford Mustang Mach-E - Stendur undir nafni
Ford Mustang Mach-E er fimm manna rafjepplingur frá Ford. Hann er hugsaður sem rafútgáfa af hinum goðsagnakennda Ford Mustang. Sem vissulega er þó ekki jepplingur. Mach-E hefur ansi stóra skó að fylla til að réttlæta nafnið.

Ný kynslóð af Lada Niva væntanleg árið 2025
Hin upprunalega Lada Niva (Sport) hefur verið í sölu í 45 ár og er ekki að fara neitt. Lada er að vinna að nýrri kynslóð sem er væntanleg árið 2025.

Fækkum bílum
Mig langar að biðja lesendur á höfuðborgarsvæðinu að líta út um gluggann. Það eru yfirgnæfandi líkur á að meirihluti þess svæðis sem þú horfir á fari undir einn samgöngumáta - bílinn.