Toyota reiknar með 80% samdrætti Toyota reiknar með að umtalsverður samdráttur verði í sölu á nýjum bílum og gerir ráð fyrir 80% samdrætti í hagnaði. Bílar 13. maí 2020 07:00
Umferð á höfuðborgarsvæðinu að aukast Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst í síðustu viku miðað við vikuna á undan. Hún er þó nærri 10% minni en í sömu viku í fyrra. Bílar 12. maí 2020 07:00
Starfsmenn Tesla snúa aftur til vinnu þvert á tilmæli yfirvalda Starfsmenn hjá rafbílaframleiðandanum Tesla munu snúa aftur til vinnu í vikunni þrátt fyrir að ráðamenn í Almeda-sýslu í Kaliforníuríki hafi sagt það vera skynsamlegast að fyrirtækið yrði áfram lokað. Viðskipti erlent 11. maí 2020 22:14
Hundar hafa jákvæð áhrif á aksturslag Að aka með hund í bílnum dregur úr streitu og hvetur til öruggari aksturs samkvæmt rannsókn sem unnin var af spænska bílaframleiðandanum SEAT í Bretlandi. Bílar 11. maí 2020 07:00
Situr uppi með eina og hálfa milljón í aukakostnað: „Við erum eiginlega í hálf vonlausri stöðu“ Hreyfihamlað fólk sem pantaði sérútbúin bíl um áramót situr nú uppi með eina og hálfa milljón í aukakostnað eftir fall krónunnar. Einn þeirra segist vera í vonlausri stöðu þar sem ekki er hægt að hætta við kaupin. Landssamband hreyfihamlaðra vill að ríkið aðstoði hópinn. Innlent 9. maí 2020 21:20
Tesla hleðslustöðvar á völdum stöðvum N1 umhverfis landið N1 og Tesla hafa undirritað samstarfssamning um uppsetningu á Tesla hraðhleðslustöðvum á völdum N1 stöðvum umhverfis Ísland, sem gerir Tesla eigendum kleift að hlaða sína bíla þegar ekið er um þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir því að fyrsta stöðin verði komin í rekstur snemma sumars 2020. Bílar 8. maí 2020 07:00
Ford deilir gögnum sjálfkeyrandi bíla Bílaframleiðandinn Ford hefur deilt gögnum úr prófunum sjálfkeyrandi bíla framleiðandans. Markmiðið er að stuðla að og auka rannsóknir og þróun á sviði sjálfkeyrandi bíla. Bílar 7. maí 2020 07:00
35% samdráttur í umferð á Hringvegi í apríl Umferð um Hringveginn dróst saman um næstum 35% í apríl sem er met. Samdráttur á árinu hefur verið um 18% sem einnig er met. Á Mýrdalssandi hefur samdrátturinn numið tæpum 80%. Bílar 6. maí 2020 07:00
Fimm ára stöðvaður á hraðbrautinni á leið að kaupa Lamborghini Verkefnin geta verið fjölbreytt hjá umferðarlögreglu en það er líklega ekki oft sem umferðarlögreglumenn í Utah-ríki Bandaríkjanna hafa þurft að stöðva fimm ára ökumenn Lífið 5. maí 2020 18:17
Bílasala á Bretlandi ekki minni frá því beint eftir stríð Ekki hafa færri nýir bílar selst á Bretlandi frá því í febrúar árið 1946, strax í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Loka hefur þurft verksmiðjum og umboðum vegna kórónuveirufaraldursins og dróst bílasalan saman um 97% í apríl. Viðskipti erlent 5. maí 2020 10:19
66% samdráttur í nýskráningu fólksbifreiða í apríl Í apríl voru nýskráðir 449 fólksbílar í ár en 1305 í apríl 2019. Það nemur samdrætti upp á 66%. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru nýskráðir 3268 nýir fólksbílar. Það nemur 27% samdrætti á nýskráningum fólksbíla miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins 2019. Bílar 5. maí 2020 07:00
Frá hugmynd til hleðslu Rafbox ehf. er fyrirtæki sem stofnað var fyrir tveimur árum og sérhæfir sig í hleðslulausnum fyrir allar gerðir rafbíla. Bílar 4. maí 2020 07:00
Toyota og Lexus hafa selt 15 milljónir tvinnbíla Árið 1997 kynnti Toyota Prius fyrst til sögunnar. Það var fyrsti fjöldaframleiddi tvinnbíllinn. Nú hefur Toyota selt 15 milljónir tvinnbíla. Bílar 1. maí 2020 07:00
Kia framlengir ábyrgðartíma Kia hefur framlengt ábyrgðartíma allra ökutækja með upphaflegri 7 ára ábyrgð frá Kia sem hefði runnið út milli 1. febrúar til og með 31. maí 2020. Þetta er gert vegna ástands sem skapast hefur vegna COVID 19. Bílar 30. apríl 2020 07:00
Myndum af BMW iX3 lekið á netið Myndir af rafjepplingnum BMW iX3 birtust á Instagram í fyrradag. Myndirnar eiga að vera frá framleiðandanum. En það verður að koma í ljós síðar hvort það er satt. Bílar 29. apríl 2020 07:00
Kínverski rafbíllinn Xpeng P7 með meiri drægni en Tesla Model 3 Kínverski rafbílaframleiðandinn Xpeng tilkynnti í gær um nýjan rafsportbíl sem gengur undir nafninu P7. Hann verður að sögn Xpeng með meiri drægni en Tesla Model 3. Bílar 28. apríl 2020 07:00
Eldsneytissala dregst saman um 68% Sala á eldsneyti dróst saman um 42% á milli marsmánaða 2019 og 2020. Meðal dagleg sala sem af er apríl er 68% lægri en meðal dagleg sala í apríl í fyrra. Bílar 27. apríl 2020 07:00
Toyota kynnir Yaris jeppling Toyota ætlaði upphaflega að kynna Yaris jepplinginn á bílasýningunni í Genf sem var aflýst vegna COVID-19. Bíllinn er settur á markað til höfuðs Nissan Juke og Ford Puma sem dæmi. Hann á að vera fáanlegur seinna á þessu ári í Japan en á því næsta í Evrópu. Bílar 24. apríl 2020 07:00
Myndband: Ferrari 812 lagaður eftir mikið tjón Myndband það sem fylgir fréttinni er eitt fárra þar sem einstaklingur setur tíma, peninga og orku í að laga bíl sem virðist handónýtur á að líta. Bíllinn er ekki af verri gerðinni, Ferrari 812. Bílar 23. apríl 2020 07:00
EQS verður flaggskip rafbílaflota Mercedes-Benz Mercedes-Benz EQS verður flaggskip rafbílaflota þýska bílaframleiðandans þegar hann kemur á markað árið 2022. Bíllinn var frumsýndur í hugmyndaútgáfu á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra undir nafninu Vision EQS. Bílar 22. apríl 2020 07:00
Bílasala hefur dregist saman um rúmlega helming í Evrópu Bílasala í Evrópu hefur dregist saman um um rúmlega helming á milli mars í fyrra og mars í ár. Í mars 2019 seldust 1,2 milljón nýrra bíla innan Evrópusambandsins en í ár voru það 570 þúsund. Bílar 21. apríl 2020 07:00
Bentley skannar Blower bílinn til að smíða 12 eintök í viðbót Bílaframleiðandinn Bentley vinnur nú að því að smíða 12 eintök í viðbót af hinum goðsagnakennda Blower Bentley. Til þess þarf að skanna alla 630 íhlutina og smíða sambærileg eintök. Bílar 20. apríl 2020 07:00
Góð ráð um viðhald bíla í samkomubanni Umferðatölur frá Vegagerðinni sýna að samkomubann sem nú er í gildi vegna COVID-19 hefur dregið verulega úr akstri almennings. Það er því gott að huga að því hvað er skynsamlegt að gera til að viðhalda bílnum sínum sem best, þegar honum er ekið minna en ella. Bílar 17. apríl 2020 07:00
Lögreglan sektar ekki strax fyrir nagladekkjanotkun Frá og með gærdeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega hafist er handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða. Bílar 16. apríl 2020 07:00
Renault hættir að selja fólksbíla með sprengihreyfli í Kína Renault ætlar að draga sig út úr eigendahópi Dongfeng Renault Automotive Company, sem franski framleiðandinn á til helminga við kínverska framleiðandann Dongfeng Motor Group Co. Félögin stóðu saman af sölu Renault bíla í Kína. Bílar 15. apríl 2020 07:00
Hummer EV verður sennilega ekki fyrsti raf-pallbíllinn Forseti General Motors hefur gefið út yfirlýsingu sem segir að Hummer gæti orðið fyrsti raf-pallbíllinn á markað. Bílar 14. apríl 2020 07:00
Heimasíður sem halda bílaáhugafólki uppteknu í samkomubanni Bílaáhugafólk þarf sína afþreyingu í samkomubanni eins og aðrir. Hér eru nokkrar heimasíður þar sem verja má klukkustundum við fjölbreytt en bílatengd málefni. Bílar 13. apríl 2020 07:00
McLaren smíðar bíl sem gengur fyrir manngerðu eldsneyti Breski bílaframleiðandinn McLaren ætlar að halda áfram að þróa tilraunabíl sem á að ganga fyrir eldsneyti útbúnu á tailraunastofu. Með því vill McLaren lækka umhverfsáhrif aksturs niður fyrir það sem gengur og gerist við akstur hreinna rafbíla. Bílar 10. apríl 2020 07:00
Heimsbíll ársins er Kia Telluride Verðlaunin fyrir heimsbíl ársins 2020 voru veitt í Toronto í Kanada í gær. Þar var Kia Telluride hlutskarpastur. Kia vann tvo flokka en Kia Soul EV vann flokk borgarbíla. Porsche Taycan vann svo tvo flokka upp á sitt einsdæmi. Mazda 3 fékk hönnunarverðlaun ársins 2020. Viðskipti 9. apríl 2020 07:00
Lamborghini innkallar bíla eftir mistök nýs starfsmanns Ítalski bílaframleiðandinn Lamborghini neyðist til að innkalla 26 nýja Aventador SVJ bíla. Starfsmaður sem hafði nýlega hafið störf hjá framleiðandanum fékk ekki nægilega þjálfun. Viðskipti erlent 8. apríl 2020 07:00