

Bónus-deild karla
Leikirnir

Fyrrum leikmaður Indiana State og DePaul samdi við Hött
Bandaríski bakvörðurinn Courvoisier McCauley mun spila með Hetti í Bónus deild karla í körfubolta á næstu leiktíð.

Logi snýr aftur í Njarðvíkurliðið: „Ofboðslega spennandi tími”
Logi Gunnarsson er orðinn aftur hluti af karlaliði Njarðvíkur eftir eins árs fjarveru en hann er nú mættur aftur í nýtt hlutverk.

Nimrod með KR í Bónusdeildinni
Bandaríkjamaðurinn Nimrod Hilliard IV hefur endursamið við KR og mun leika með félaginu í Bónus-deild karla í körfubolta næsta vetur. Hann var lykilmaður hjá félaginu er það fór upp um deild síðasta vor.

Ólafur skrifar undir nýjan samning: „Með verkefni sem við þurfum að klára“
Fyrirliði karlaliðs Grindavíkur í Bónus deildinni í körfubolta, Ólafur Ólafsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Grindavík laut í lægra haldi gegn Val í úrslitaeinvígi deildarinnar á síðasta tímabili. Ólafur segir Grindavík vera með verkefni í höndunum sem þurfi að klára.

Oddur Rúnar aftur í Grindavík
Oddur Rúnar Kristjánsson snýr aftur í Bónus-deildina í körfubolta á komandi tímabili en hann hefur samið við Grindavík.

Síðasta púslið hjá Keflvíkingum fundið
Keflavík hefur fundið sér bandarískan leikmann fyrir átökin í Bónus deild karla í körfubolta á næsta tímabili.

Óvænt tíðindi að austan: „Mikil vonbrigði“
Óvænt tíðindi bárust frá Egilsstöðum í dag en Jóhann Árni Ólafsson, sem nýverið tók við sem einn af tveimur þjálfurum karlaliðs Hattar í Bónus deildinni í körfubolta, hefur óskað eftir lausn á samningi sínum af persónulegum ástæðum.

„Væri ekki bara einfaldast fyrir mig að skipta um þjóðerni“
Íslenski körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson náði stóru markmiði um helgina þegar hann dæmdi undanúrslitaleik á EM 20 ára landsliða í Póllandi.

„Við lögðum mikla á áherslu á að fá Dwayne aftur til okkar”
Njarðvíkingar fengu gleðifréttir í gær þegar ljóst varð að Dwayne Lautier-Oungleye spilar áfram með liðinu í Bónus deildinni í körfubolta.

Haukar styrkja sig
Haukar hafa samið við Litháann Arvydas Gydra um að leika með liðinu í Bónus deild karla á næsta tímabili.

Njarðvíkingar búnir að finna sér Bandaríkjamann
Bandaríski leikstjórnandinn Julius Brown er genginn í raðir Njarðvíkur og mun leika með liðinu í Bónus deild karla á næsta tímabili.

Keflvíkingar fá þýskan framherja
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við þýska leikmanninn Jarelle Reischel um að leik mað liðinu á komandi tímabili í Bónus-deild karla í körfubolta.

Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“
Njarðvíkingar bíða spenntir eftir því að taka nýtt íþróttahús í notkun en framkvæmdir eru á lokametrunum suður með sjó.

Danski Jokic í Bónus-deildina
Danski körfuboltamaðurinn Morten Bulow er genginn í raðir Þórs í Þorlákshöfn og mun leika með liðinu í Bónus-deildinni á næsta tímabili.

„Sannfærð um að þessi samningur lyfti körfuboltanum enn meira upp“
Mikil ánægja ríkir hjá Körfuknattleikssambandi Íslands með nýja samninginn við Bónus. Efstu deildir karla og kvenna munu bera nafn Bónus næstu þrjú árin hið minnsta.

Subway deildin verður Bónus deildin
Körfuknattleikssamband Ísland tilkynnti í dag að það verður nýr styrktaraðili fyrir úrvalsdeild karla og kvenna í körfubolta á næstu leiktíð.

Reiknar með því að hinn fjörutíu og tveggja ára Hlynur troði á komandi tímabili
Baldur Þór Ragnarsson er nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Eftir nokkur ár í þýska boltanum snýr hann heim til Íslands, reynslunni ríkari og setur markið hátt. Stjörnumenn hafa verið duglegir að bæta við leikmannahóp sinn og þá reiknar Baldur með því að reynsluboltinn Hlynur Bæringsson reimi einnig á sig körfuboltaskóna á næsta tímabili.

Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn
Tómas Þórður Hilmarsson hefur fært sig á milli liða í Garðabænum en hann hefur samið við Álftanes og spilar með liðinu i úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Tómas er leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild.

KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu
Körfuknattleikssamband Íslands hefur tekið þá ákvörðun að hætta með tölfræðiforritið GameDay sem gerði körfuboltáhugafólki lífið leitt síðasta vetur.

Rekinn í vetur en ráðinn á ný
Það kemur alltaf dagur eftir þennan dag og besta að brenna ekki brýr að baki sér. Hamarsmenn hafa nú kallað aftur í leikmann sem félagið sagði upp störfum síðasta vetur.

„Ég kæmi ekki inn í þetta lið nema með það hugarfar að vinna báða titlana“
Hilmar Smári Henningsson mun leika með Stjörnunni í Subway-deild karla á næsta tímabili. Hann er spenntur fyrir vetrinum og telur að Stjarnan geti unnið alla titla sem í boði eru.

Hilmar Smári semur við Stjörnuna
Stjörnuliðið er til alls líklegt í Subway deild karla í körfubolta á næsta tímabil en Stjarnan sagði frá frábærum liðstyrk í kvöld.

„Aðdáendur liðsins munu kynnast mínum gríska anda og orku“
Álftanes hefur sótt gríska framherjann Dimitrios Klonaras fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla í körfubolta. Hann á að baki farsælan háskólaferil í Bandaríkjunum.

Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum
Álftanes hefur fundið sér bandarískan leikmann fyrir næsta tímabil í Subway deild karla í körfubolta. Sá heitir Andrew Jones.

Basile á Krókinn
Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile er genginn í raðir Tindastóls frá Grindavík.

Besti leikmaður 1. deildarinnar til liðs við Álftanes
Álftnesingum hefur borist vænn liðsstyrkur fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla en Viktor Steffensen skrifaði undir hjá félaginu í dag. Viktor, sem er 22 ára, er uppalinn í Fjölni og var hann valinn besti leikmaður 1. deildarinnar síðasta vetur.

Israel Martín þjálfar aftur Tindastól
Spænski þjálfarinn Israel Martín Concepción hefur endurnýjað kynni sín við Körfuknattleiksdeild Tindastóls.

Grindvíkingar búnir að finna sér nýjan bandarískan bakvörð
Grindvíkingar hafa fundið eftirmann Dedrick Basile því félagið segir í dag frá samningi sínum við bandaríska leikstjórnandann Devon Thomas.

Álftanes semur við tveggja metra Frakka
Alexez Yetna er genginn til liðs við Álftanes og mun leika með liðinu í Subway deild karla á næsta tímabili.

Nýliðarnir sækja sér styrk í Hafnarfjörðinn
ÍR, nýliðarnir í Subway-deild karla, hafa sótt sér liðsstyrk fyrir komandi tímabil.