

CrossFit
Fréttir af keppendum og mótum í CrossFit.

Sara þakkar meiðslunum fyrir að ná að endurnýja kynnin við vinina
Verður árið 2024 árið sem við sjáum íslensku CrossFit konuna Söru Sigmundsdóttur komast aftur á heimsleikana og í hóp bestu kvenna í sinni íþróttagrein? Fáar íþróttakonur hafa glímt við erfiðari tíma en Suðurnesjamærin frá því að hún meiddist alvarlega nánast kvöldið fyrir 2021 tímabilið.

Jólasmákökustríð hjá Anníe Mist og Katrínu Tönju
Íslensku CrossFit drottningarnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru kannski ekki þekktar fyrir afrek sín í eldhúsinu en þær ákváðu engu að síður að bjóða upp á keppni í bakstri um þessi jól.

Styrktarþjálfari Liverpool reddaði Söru fundinum með Klopp og Van Dijk
Heimir Hallgrímsson og styrktarþjálfari Liverpool komu við sögu þegar við fengum útskýringu á því hvernig ein besta CrossFit kona Íslands fékk aðgengi að knattspyrnustjóra og fyrirliða Liverpool strax eftir stórleikinn við erkifjendurna frá Manchester.

Sara Sigmunds hitti Klopp og Van Dijk: „Klípið mig tvisvar“
Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir er á heimleið frá Ástralíu með viðkomu í Dúbæ en hún stoppaði líka á öðrum góðum stað á leið sinni heim til Íslands.

Senda hörðustu prinsessu Íslands í baráttuna um krúnuna
Bergrós Björnsdóttir er fyrir löngu byrjuð að skapa sér nafn í CrossFit heiminum og gott dæmi um það er boð hennar í Crown CrossFit keppnina.

Keppnisferð Söru breyttist í mikla ævintýraferð
Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Sara Sigmundsdóttir hafi gert gott úr ferðinni til Ástralíu þrátt fyrir mótlæti og enn ein vonbrigðin.

Íslendingaliðið fagnaði sigri á CrossFit Showdown mótinu
Bandaríska CrossFit konan Danielle Brandon valdi það að hafa tvo íslenska CrossFit íþróttamenn í sínu liði á Pro CrossFit Showdown mótinu og það var greinilega mjög góð ákvörðun hjá henni því lið hennar fagnaði sigri á mótinu í Birmingham í Englandi um helgina.

Leið Íslendinga á heimsleikana í CrossFit 2024 liggur í gegnum Frakkland
Nýtt ár nálgast og um leið nýtt tímabil hjá CrossFit fólki heimsins. Draumurinn um að komast á heimsleikana lifur góðu lífi hjá mörgum og nú vitum við meira um það hvernig leiðin liggur þangað.

Katrín Tanja um Anníe Mist: Alltaf vitað það
Anníe Mist Þórisdóttir var eini íþróttamaðurinn sem var tilnefndur sem einn af framúrskarandi ungum Íslendingum í ár en þetta eru verðlaun eru veitt árlega af JCI á Íslandi.

„Líkamsímynd er algjör t*k“
Íslenska CrossFit goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir byrjar nýjustu færslu sína með fullyrðingu sem flestir þekkja eflaust vel á þessum tímum útlitsdýrkunar. Hún er nú í barnsburðarleyfi og keppir því ekki á heimsleikunum á næsta ári.

Lofsamar Katrínu Tönju og setur aðeins eina fyrir ofan hana
Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki orðið heimsmeistari í sjö ár en hún hefur samt verið í heimklassa allan þennan tíma. Austin Heaton hjá Morning Chalk tók okkar konu fyrir og fór yfir magnaðan stöðugleika íslensku CrossFit drottningarinnar.

Sara Sigmunds komin alla leið til Ástralíu en getur ekki keppt
Ekkert verður að því að Sara Sigmundsdóttir keppi á Down Under Championship CrossFit mótinu í Ástralíu í byrjun næsta mánaðar.

Ísland á fimm CrossFit konur meðal þeirra tvö hundruð bestu í heimi
Laura Horvath er heimsmeistari í CrossFit íþróttinni síðan í ágúst en hún er samt ekki í efsta sætinu á nýjum lista yfir tvö hundruð bestu CrossFit konur heims.

Ólétt Anníe Mist lyfti 150 kílóum sex sinnum í röð eins og ekkert væri
Anníe Mist Þórisdóttir er ekki hætt að lyfta og æfa þótt að hún eigi von á sínu öðru barni á næsta ári.

Anníe Mist: Konur fara á blæðingar og við þurfum að ræða það
Anníe Mist Þórisdóttir hefur sterka rödd innan CrossFit samfélagsins og vill meðal annars berjast fyrir að íþróttakonur fái ráð sem eru hönnuð og hugsuð fyrir þær en ekki útfærslu á ráðum fyrir íþróttakarla.

Katrín Tanja sefur undir stjörnunum í ævintýraferð
Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur leyft sér að hlaða aðeins batteríin eftir heimsleikana í CrossFit síðasta haust og þá er gott að eiga mikinn ævintýramann fyrir kærasta.

Erfiðara fyrir íslenska CrossFit fólkið að komast í undanúrslitin 2024
CrossFit samtökin hafa tilkynnt fyrirkomulagið í undankeppni heimsleikanna á næsta ári og það er nokkuð um breytingar frá því hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á þessu ári.

Valdi tvo reynslubolta frá Íslandi í CrossFit liðið sitt
Bandaríska CrossFit konan Danielle Brandon vildi hafa íslenska CrossFit íþróttamenn í sínu liði á Pro CrossFit Showdown mótinu sem fer fram í desember í Birmingham í Englandi.

Katrín Tanja fann sig vel í nýju hlutverki á Rogue mótinu: Elskar að lýsa
Katrín Tanja Davíðsdóttir þáði ekki boð um að keppa á Rogue Invitational CrossFit mótinu í ár en mætti engu að síður til Texas og var auðvitað mjög vel tekið enda ein vinsælasta CrossFit kona heims.

Sólveig sýnir að glíman við tíðahringinn er íþróttakonum oft erfið
Íslenska CrossFit konan Sólveig Sigurðardóttir vakti á dögunum athygli á einu sem er kannski of lítið talað um en getur samt sem áður haft mikil áhrif á undirbúning íþróttakvenna.

Anníe Mist agndofa yfir endurkomu Tiu
Anníe Mist Þórisdóttir sýndi CrossFit heiminum hvernig á að koma til baka eftir barnsburð og nú hefur Ástralinn Tia-Clair Toomey fetað í fótspor hennar.

Björgvin Karl: Ekki úrslitin sem ég var að vonast eftir
Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson endaði í tólfta sæti á Rogue Invitational stórmótinu sem fór fram í Texas um helgina.

Skyndiákvörðun Anníe og Katrínar Tönju vakti mikla lukku
Dave Castro, einn af hæstráðendum í CrossFit samtökunum, gefur okkur oft forvitnilegt innlit á bak við tjöldin á CrossFit mótum og hann sagði skemmtilega sögu af okkar konum á Rogue Invitational mótinu um helgina.

Toomey mætt aftur til keppni: Ég vona að ég fari ekki að gráta á keppnisgólfinu
Anníe Mist Þórisdóttir verður ekki með á Rogue Invitational CrossFit mótinu sem hófst í gær en þar sjáum við aftur á móti endurkomu hjá Tia-Clair Toomey. Endurkoman byrjar vel.

Þriðji besti CrossFit kappi landsins óttast það að vera rekinn úr landi
Carlos Fernandez hafnaði í þriðja sæti á Íslandsmótinu í Crossfit á dögunum en hann bíður nú eftir niðurstöðum frá Útlendingastofnun og óttast að hann verði rekinn úr landi. Carlos hefur nú verið búsettur í Keflavík í tæplega ár.

Verðlaunaféð á Rogue Invitational tók mikið stökk af því að Bitcoin hækkaði
Björgvin Karl Guðmundsson og kollegar hans sem keppa á Rogue Invitational stórmótinu hafa örugglega fagnað góðu gengi Bitcoin á markaðnum síðustu daga.

Annie greinir frá fjarveru sinni með söknuði
Íslenska Crossfit goðsögnin Annie Mist Þórisdóttir og unnusti hennar Frederik Ægidius eiga von á sínu öðru barni saman. Frá þessu greindi Annie á samfélagsmiðlum í gær og nú hefur hún greint frá því að hún muni ekki taka þátt á risamóti í Crossfit heiminum sem fer fram um komandi helgi.

Anníe Mist ólétt
CrossFit-kempan Anníe Mist Þórisdóttir er ólétt af öðru barni sínu. Hún greindi frá tíðindunum á Instagram.

Anníe Mist stóð varla í lappirnar eftir eina æfinguna
Íslenska CrossFit goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir er á fullu að undirbúa sig fyrir Rogue Invitational stórmótið sem fer fram 27. til 29. október næstkomandi.

Ný CrossFit dóttir er fædd
Íslensku dæturnar hafa vakið mikla athygli í CrossFit heiminum í gegnum tíðina og nú lítur út fyrir að ný dóttir sé að bætast í hópinn.