Sýndi skjáskot af millifærslum sem höfðu aldrei farið í gegn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í fjögurra mánaða fangelsi fyrir röð brota, meðal annars að hafa í nokkrum tilvikum fengið fólk til að afhenda sér vörur eftir samskipti á samfélagsmiðlum, og sýna þeim skjáskot af millifærslum án þess að greiðslurnar hafi raunverulega farið í gegn. Innlent 28. september 2023 10:23
Sigldi sjö tonna skipi skakkur Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að stjórna skipi til hafnar ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa vana-og fíkniefna, en í blóði hans mældist kannabis. Þá stýrði hann skipinu án þess að hafa til þess gild réttindi. Innlent 27. september 2023 14:25
Unga fólkið gegn 32 ríkjum vegna loftslagsmála tekið fyrir hjá MDE Ellefu ára stúlka frá Portúgal er meðal sex ungmenna sem hafa höfðað mál gegn 32 ríkjum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ungmennin segja ríkin hafa brotið gegn mannréttindum sínum með því að grípa ekki til aðgerða gegn loftslagsvánni. Erlent 27. september 2023 10:50
„Dómari, við heyrum ekkert í honum í ódýru sætunum hérna aftast“ Aðalmeðferð í Bankastrætis Club málinu svokallaða var haldið áfram í morgun og nú hafa allir sem sæta ákæru fyrir annað en hlutdeild í árásinni gefið skýrslu. Mikið umstang hefur verið í Gullhömrum og laganemar kíktu í heimsókn fyrir hádegi. Innlent 26. september 2023 13:48
Verjendur óánægðir með kaffiskort Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama. Innlent 25. september 2023 15:46
Segir fráleitt að ríkislögreglustjóri hafi reynt að hafa áhrif á dómara Í morgun steig fram Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgisson annars tveggja sakborninga í hinu svokallaða hryðjuverkamáli, og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sakar Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón alþjóðasviðs, um að nota hættustig hryðjuverka til að þrýsta á dómara í málinu. Hann sagði brýnasta verkefnið að endurskoða frá grunni starfsemi ríkislögreglustjóra. Innlent 25. september 2023 14:40
Fá ekki að hlusta hver á annan Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt. Innlent 25. september 2023 10:17
Skýrslutökur hefjast í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club málinu svokallaða hefst í veislusalnum Gullhömrum í dag. Á þriðja tug manna hafa stöðu sakbornings og búist er við því að á annað hundrað verði viðstaddir aðalmeðferðina. Innlent 25. september 2023 09:13
„Fátt er hættulegra samfélaginu en fullkomlega vanhæf lögregla“ Sveinn Andri Sveinsson, verjandi sakbornings í svokölluðu hryðjuverkamáli, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann kallar meðal annars eftir því að starfsemi ríkislögreglustjóra verði endurskoðuð frá grunni. Innlent 25. september 2023 08:53
Manndrápið á Ólafsfirði: Steinþór hafi stungið Tómas tvisvar Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið ákærður fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október í fyrra. Innlent 22. september 2023 09:27
Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum konum Karlmaður hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ýmis brot, þar af fjögur ofbeldisbrot gegn konum. Þá hefur honum verið gert að greiða einni konunni 400 þúsund krónur í miskabætur. Innlent 21. september 2023 20:12
Einn ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði í október síðastliðnum. Fjögur höfðu stöðu sakbornings í málinu. Innlent 21. september 2023 12:16
Taldi særðri dóttur sinni trú um að þau ættu í ástarsambandi Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur. Innlent 19. september 2023 15:01
Braut á bestu vinkonu sinni meðan hún svaf Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á bestu vinkonu sinni í lok desember árið 2021. Karlmaðurinn „puttaði“ konuna og sleikti á henni kynfærin á meðan hún lá sofandi í sófanum og varð einskis vör vegna ölvunar og svefndrunga. Innlent 19. september 2023 10:58
Vildi ekki borga 25 þúsund og situr uppi með 405 þúsund króna reikning Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða bílaumboðinu BL um 55 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málskostnað upp á 350 þúsund krónur. Maðurinn neitaði að borga 25 þúsund króna reikning vegna greiningar á bilun. Innlent 19. september 2023 10:24
Heimilisofbeldi ekki talið brot í nánu sambandi Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárásir í garð þáverandi sambýliskonu sinnar. Dómari taldi háttsemi hans ekki falla undir nýlegt lagaákvæði um brot í nánu sambandi. Innlent 18. september 2023 14:55
Hefur 111 sinnum komið við sögu lögreglu en fer ekki í nálgunarbann Landsréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að maður skuli sæta nálgunarbanni. Innlent 15. september 2023 17:07
Þurfa að greiða fyrir tímann sem starfsmaður varði í flugvél Landsréttur hefur viðurkennt að starfsmaður hafi átt að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Innlent 15. september 2023 16:11
Óraskaður dómur yfir manni sem kveikti í eigin veitingastað Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli manns sem kveikti í veitingastað sínum sumarið 2020 og gerði í kjölfarið tilraun til fjárssvika. Manninum er gert að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði og greiða áfrýjunarkostnað málsins. Innlent 15. september 2023 16:08
Sendu hjartahlý skilaboð eftir meinta skipulagningu hryðjuverka Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt. Innlent 15. september 2023 14:43
Límband mikilvægt sönnunargagn í frelsissviptingarmáli á Akureyri Lögreglu er heimilt að taka strokusýni úr munni manns sem er grunaður um líkamsárás, frelsissviptingu og fjárkúgunarbrot á heimili sínu á Akureyri í mars á þessu ári. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis. Innlent 13. september 2023 13:57
Segir atburðarásina hafa þróast út í múgæsingu Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum. Innlent 13. september 2023 07:34
Ákærður fyrir að binda barn niður og kitla það Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn barnaverndalögum með því að sýna dreng, sem var gestkomandi á heimili hans, yfirgang og vanvirðandi og ruddalega háttsemi. Innlent 12. september 2023 14:42
Rændi unga bræður á leið út í sjoppu Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. þessa mánaðar vegna gruns um að hann hafi framið átta refsiverð brot frá 27. júní síðastliðnum. Meðal brotanna er rán fimm þúsund króna af ungum bræðrum sem voru á leið út í sjoppu að kaupa sér nammi. Innlent 12. september 2023 08:00
„Ég er að gera það sama og áður“ „Starfsemin er enn þá í gangi á Íslandi. Þetta er það sem ég hef valið mér að gera,“ segir Catalina Ncogo sem var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi. Innlent 12. september 2023 06:01
Skjólstæðingur sviptur ökuréttindum eftir akstur undir áhrifum ADHD-lyfja Lögmaður manns sem dæmdur var fyrir akstur undir áhrifum amfetamíns eftir að hann tók ADHD-lyf segir stjórnvöld ekki gera nóg til að upplýsa sjúklinga um lagalega skyldu þeirra. ADHD-samtökin segja ástandið vera ólíðandi. Innlent 11. september 2023 21:01
Fékk skilorðsbundinn dóm fyrir manndráp af gáleysi Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi á Hvalfjarðarvegi í Kjós í nóvember 2021. Karlmaðurinn var ökumaður bíls sem fór út af veginum. Þrítugur karlmaður, farþegi í bílnum, lést í slysinu. Amfetamín mældist í blóði ökumannsins. Innlent 11. september 2023 15:29
Ákærður fyrir hundruð milljóna króna skattalagabrot Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, hefur verið ákærður í einu stærsta skattalagabroti Íslandssögunnar. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa skotið rúmum milljarði króna undan skatti með því að nota aflandsfélög. Tveir aðrir sæta einnig ákæru í málinu. Innlent 11. september 2023 14:27
Tug milljóna króna bótakrafa en ákærði neitar sök 39 ára pólskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp í íbúð við Drangahrauni í Hafnarfirði í júní. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness í dag. Ákærði neitar sök. Innlent 8. september 2023 15:47
Kennari sem löðrungaði nemanda fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarbeiðni grunnskólakennara sem sagt var upp fyrir að hafa löðrungað þrettán ára stúlku, nemanda í skólanum. Rétturinn telur að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi. Innlent 7. september 2023 22:10