SA segja stöðuna í kjaradeilunni skelfilega Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skelfilegt að verið sé að boða til enn frekari verkfalla á sama tíma og málaferli standi yfir bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi. Hann og formaður Eflingar eru hins vegar bæði viss um sigur fyrir Félagsdómi þar sem málflutningur fór fram síðdegis. Innlent 3. febrúar 2023 19:30
Stóryrtur Breki lagði smálánafyrirtækin í annarri lotu Landsréttur hefur sýknað Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, vegna ummæla sem hann lét falla um starfsemi smálánafyrirtækisins Ecommerce. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í september 2021 dæmt fjögur ummæli Breka, um að smálánin og innheimta þeirra væri ólögleg, dauð og ómerk. Innlent 3. febrúar 2023 17:39
Varanlegur heilaskaði og 150 milljóna króna bótakrafa 26 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en til vara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás við Moe's bar í Jafnaseli í fyrra. Gerð er krafa í miska- og skaðabætur upp á 150 milljón króna. Innlent 3. febrúar 2023 16:09
Bæði fullviss um sigur í Félagsdómi Bæði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru fullviss um sigur í deilu SA og Eflingar fyrir Félagsdómi. Dómurinn kemur saman klukkan fjögur í dag til að skera úr um hvort boðuð verkföll Eflingar séu lögmæt í ljósi þess að miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara liggur fyrir. Innlent 3. febrúar 2023 14:49
Sýknuð í deilu um átján ára millifærslu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Birki Kristinsson, fjárfesti og fyrrverandi landsliðsmann í knattspyrnu, Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis og auk fleiri, í deilu um átján ára millifærslu á hátt í fimmtíu milljónum. Viðskipti innlent 3. febrúar 2023 12:06
Sér ekki möguleika á samningum nema Aðalsteinn stígi til hliðar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skipa þurfi vararíkissáttasemjara ef kalla eigi Eflingu og Samtök Atvinnulífsins aftur að samningsborðinu. Efling hefur dregið stjórnsýslukæru sína vegna miðlunartillögu sáttasemjara til baka og þess í stað kært hana til héraðsdóms. Innlent 2. febrúar 2023 15:50
Efling skýtur lögmæti miðlunartillögunnar til héraðsdóms Efling hefur ákveðið að skjóta kröfu sinni um ógildingu miðlunartillögu ríkissáttasemjara til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta gerir félagið vegna viðbragðsleysis Guðmundar Inga Guðbrandssonar vinnumarkaðsráðherra við stjórnsýslukæru Eflingar. Innlent 2. febrúar 2023 13:42
Telur skuggalegt að greinargerð sín um Lindarhvol sé ekki lögð fram Sigurður Þórðarson fyrrverandi ríkisendurskoðandi furðar sig á því hvers vegna greinargerð um Lindarhvol sem hann skilaði Alþingi árið 2018 sé ekki gerð opinber. Hann veltir fyrir sér tilgangi Alþingis sem sýnir slíkan mótþróa. Viðskipti innlent 2. febrúar 2023 07:01
Fimm ára fangelsi fyrir gróf brot gegn tveimur konum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi. Um var að ræða brot gegn tveimur konum í aðskildum málum en bæði brotin áttu sér stað þann 1. ágúst 2022. Innlent 1. febrúar 2023 23:35
Fær bætur eftir að hafa fræst á sér handlegginn Rafiðnaðarmaður, sem slasaðist illa þegar fræsari hrökk í handlegg hans við vinnu, fær greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu Sjóvár. Sjóvá hafnaði ábyrgð og bar fyrir sig að um óhappaatvik hafi verið að ræða. Innlent 1. febrúar 2023 12:54
Íslenskum föður gert að skila börnum sínum til móðurinnar Landsréttur hefur úrskurðað að faðir með íslenskt ríkisfang skuli skila tveimur börnum sínum á lögheimili þeirra erlendis, þar sem þau búa með erlendri móður sinni. Innlent 1. febrúar 2023 10:53
Landasali fyrir norðan talinn hafa hagnast um margar milljónir Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært tvo einstaklinga fyrir nokkuð umfangsmikla sölu á sígarettum og tóbaki. Annar einstaklinganna er einnig ákærður fyrir landasölu. Er viðkomandi talinn hafa hagnast um 5,6 milljónir vegna málsins. Innlent 1. febrúar 2023 08:25
Móður sem misþyrmdi þremur af fjórum dætrum hafnað af Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni móður sem sakfelld var fyrir að misþyrma þremur af fjórum dætrum hennar. Innlent 31. janúar 2023 15:29
Harma að sjálfboðaliðar séu dregnir fyrir dóm Forsvarsmenn Knattspyrnufélags Akureyrar harma að ákæruvaldið hafi ákveðið að ákæra sjálfboðaliða sem fengnir voru til að sinna miðasölu og umsjón með risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Sér í lagi þar sem eigandi hoppukastalans hafi ítrekað lýst ábyrgð sinni í fjölmiðlum. Forseti bæjarstjórnar er annar sjálfboðaliðanna sem sætir ákæru. Meirihlutinn á Akureyri lýsir yfir fullu trausti við störf hans. Innlent 30. janúar 2023 10:18
Landsréttur sneri sýknu vanhæfa dómarans við Landsréttur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða fyrrverandi starfsmanni skaðabætur vegna blöðruboltaslyss. Landsréttur hafði áður sýknað borgina en einn dómara við Landsrétt var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Málið rataði til Hæstaréttar og svo aftur til Landsréttar, sem hefur nú komist að annarri niðurstöðu. Innlent 28. janúar 2023 23:01
Tveggja ára skilorðsbundinn dómur og 283 milljóna króna sekt Kaare Nordbö, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Concretum, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í fyrra. Viðskipti innlent 27. janúar 2023 16:11
Rak höfuðið í lögreglubíl við störf og fær bætur Íslenska ríkið þarf að greiða lögreglumanni sem slasaðist er hann rak höfuðið í þegar hann settist í lögreglubíl tæpar sex milljónir í bætur vegna slyssins. Innlent 27. janúar 2023 14:16
Hæstiréttur hafnar beiðni aðgerðarsinna Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Elínborgar Hörpu- og Önundarburs, aðgerðarsinna og baráttukvár fyrir réttindum flóttafólks, um að taka fyrir dóm Landsréttar frá í nóvember síðastliðinn þar sem Elínborg var dæmt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þrjú brot. Innlent 27. janúar 2023 10:42
Hryðjuverkaákæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök ákæruvaldsins haldi ekki Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. Innlent 26. janúar 2023 18:00
Dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fimmtuga pólska konu í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konan var sakfelld fyrir að hafa í ágúst síðastliðnum staðið að innflutningi á samtals 3800 ml af amfetamínbasa hingað til lands frá Varsjá í Póllandi. Framburður konunnar fyrir dómi þótti fjarstæðukenndur. Innlent 26. janúar 2023 16:02
Krefst rúmra 650 milljón króna af Lindarhvoli og ríkinu Í morgun var aðalmeðferð í máli Frigusar II ehf á hendur Lindarhvoli ehf og íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Lögmaður Fringusar, Arnar Þór Stefánsson, krefst þess að stefndu verði gert að greiða Frigusi óskipt 651.192.377 krónur með vöxtum og verðtryggingu frá 30. apríl 2019. Viðskipti innlent 26. janúar 2023 14:15
Gert að greiða samfanga miskabætur eftir árás með trékefli Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt fangann Þorláki Fannari Albertssyni til að greiða samfanga sínum 300 þúsund krónur í miskabætur eftir árás með trékefli inni á Litla-Hrauni á Eyrarbakka í desember 2020. Innlent 26. janúar 2023 12:26
Tók dæmi af bankaráni til að útskýra ákæruna í hryðjuverkamálinu Saksóknari og verjendur í hryðjuverkamálinu svokallaða takast nú um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í brotinu. Saksóknari segir ekki unnt að lýsa ætluðum brotum ákærðu með nákvæmari hætti en gert sé í ákærunni. Hann tók sem dæmi ímyndað bankarán til að styðja þá skoðun sína að ákæran ætti að fá efnislega meðferð fyrir dómi. Innlent 26. janúar 2023 11:01
Játa aðild en segja þætti sína veigalitla í stóra kókaínmálinu Tveir sakborningar í stóra kókaínmálinu játa aðkomu að málinu en segja sína þætti hafa verið veigalitla. Þeir segjast aðeins hafa haft afmörkuð hlutverk en ekki komið að skipulagningu málsins á neinn hátt. Innlent 26. janúar 2023 07:01
Misnotaði litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misnota litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár, frá því að stúlkan var ellefu ára gömul þar til hún var átján ára. Maðurinn braut meðal annars á stúlkunni á meðan að sambúðarkona hans, systir stúlkunnar, lá í sama rúmi og þau. Innlent 25. janúar 2023 11:54
Útboð vegna snjómoksturs endaði með málaferlum Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað Akureyrarbæ af kröfum verktaka sem krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna meintra brota á útboðsskilmálum og verksamningi aðila. Samningurinn var í framhaldi af útboði vegna snjómoksturs og hálkuvarna á Akureyri fyrir árin 2019 til 2022. Innlent 24. janúar 2023 15:11
Ríkissaksóknari og verjendur sammála að annmarkar hafi verið á dómi Landsréttar Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Lögmaður eins sakborninganna fagnar ákvörðun Hæstaréttar og mikilvægt að Hæstiréttur skoði þá annmarka sem voru á dómi Landsréttar. Innlent 24. janúar 2023 12:01
Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi. Innlent 23. janúar 2023 18:17
Morðið í Rauðagerði verður tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 23. janúar 2023 14:54
Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni. Innlent 23. janúar 2023 10:36
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent