Sendi barnsmóður sinni ógnandi skilaboð Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn blygðunarsemi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, hótanir og brot í nánu sambandi með því að hafa sent henni móðgandi smáskilaboð. Innlent 4. júlí 2022 14:24
Tveir Bretar reyndu að smygla kókaíni til landsins Tveir breskir ríkisborgarar voru dæmdir í hálfs árs fangelsi á föstudag fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega 270 grömmum af kókaíni til Íslands. Innlent 4. júlí 2022 11:41
Eins árs fangelsi fyrir smygl á lítra af amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot eftir að hafa reynt að smygla tæpum lítra af vökva sem innihélt amfetamínbasa til Íslands með flugi frá Varsjá. Maðurinn hafði samþykkt að flytja efnið til landsins gegn greiðslu. Innlent 4. júlí 2022 11:04
Mátti ekki taka bjór úr hillum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt ákvörðun ÁTVR um að taka tvær tegundir bjórs, sem innflutningsfyrirtækið Dista flytur inn, úr hillum vínbúða úr gildi. Dómurinn taldi ÁTVR ekki hafa farið að lögum með því að taka mið af framlegð þegar ákveðið var hvaða bjórar fengu hillupláss. Innlent 30. júní 2022 15:05
ON hefur betur gegn Ísorku í hleðslustöðvamáli Landsréttur staðfesti á fimmtudag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember um ógildingu á úrskurði kærunefndar útboðsmála um lögmæti útboðs á uppsetningu og rekstri hleðslustöðva fyrir rafbíla í hverfum í Reykjavík. Bílar 27. júní 2022 07:01
Ríkið leggst gegn endurupptöku á máli Erlu Bolladóttur Settur ríkissaksóknari leggst gegn endurupptöku á máli Erlu Bolladóttur. Lögmaður Erlu furðar sig á umsögninni í ljósi fyrri yfirlýsinga stjórnvalda. Erla segir umsögnina áfall og lýsandi fyrir það virðingarleysi sem henni hafi verið sýnt. Innlent 26. júní 2022 18:40
Furðar sig á niðurstöðu Hæstaréttar um vanhæfi Markúsar Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi Hæstaréttardómari, gefur lítið fyrir röksemdafærslu Hæstaréttar sem komst á miðvikudaginn að þeirri niðurstöðu að Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti réttarins, hafi ekki verið vanhæfur til að dæma í máli sem höfðað var gegn stjórnendum Glitnis. Var fallist á endurupptöku málsins þar sem Markús hafði tapað umtalsveðum fjárhæðum við fall Glitnis. Innlent 25. júní 2022 07:00
Breytti framburði um sofandi brotaþola Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að nauðga stúlku sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum áhrifa lyfja og svefndrunga. Innlent 24. júní 2022 17:15
Sekt Símans staðfest vegna dreifingar á Sjónvarpi Símans Premium Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn ákvæðum fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum Sjónvarps Símans að dótturfélagi sínu Mílu. Fjarskiptastofnun hafði gert Símanum að greiða 9 milljóna króna sekt vegna málsins sem Landsréttur staðfesti. Innlent 24. júní 2022 16:55
Morðinginn í Torrevieja dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna Guðmundur Freyr Magnússon, sem dæmdur var í sautján ára fangelsi fyrir manndráp í Torrevieja í lok árs 2021, var í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness dæmdur fyrir að akstur undir áhrifum fíkniefna árið 2018. Innlent 24. júní 2022 12:18
Fimmtán mánuðir fyrir innflutning á sterku kókaíni Mexíkóskur ríkisborgari var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en maðurinn smyglaði inn til landsins kílói af sterku kókaíni. Innlent 23. júní 2022 15:23
Tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur til tveggja ára fangelsisrefsingar, sem frestað verður til þriggja ára, fyrir að hafa nauðgað fyrrum skólasystur sinni árið 2012 þegar hann var sautján ára og hún sextán ára. Innlent 23. júní 2022 11:55
Stal þrjátíu ryksuguvélmennum Karlmaður var í gær dæmdur fyrir þjófnaðarbrot í 54 liðum með því að hafa stolið meðal annars KitchenAid hrærivélum, ryksuguróbotum og fjöldanum öllum af ljósaperum að verðmæti tæplega sjö milljóna króna. Innlent 23. júní 2022 11:46
Markús hafi ekki verið vanhæfur í BK-málinu Hæstiréttur vísaði í dag frá máli Magnúsar Arnars Arngrímsssonar, sem kallað hefur verið BK-málið, en Endurupptökunefnd féllst á beiðni Magnúsar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, um að tveggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Hæstarétti árið 2015 yrði endurupptekinn. Innlent 22. júní 2022 15:47
Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins. Innlent 22. júní 2022 15:09
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. Innlent 22. júní 2022 13:34
Ingó áfrýjar til Landsréttar Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði. Innlent 22. júní 2022 11:20
Stal tæplega 20 þúsund lítrum af bensíni Karlmaður var í gær dæmdur í 90 daga skiloðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa fyrir stolið tæplega 20 þúsund lítrum lítrum af eldsneyti, að andvirði 3,6 milljónum króna. Innlent 21. júní 2022 17:05
Rúmlega milljarðs gjaldþrot félags Magnúsar Engar eignir fundust í búi Tomahawk framkvæmda ehf. þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta. Lýstar kröfur voru tæpir 1,3 milljarðar króna. Þetta kemur fram í skiptalokatilkynningu í Lögbirtingablaðinu. Viðskipti innlent 21. júní 2022 16:29
Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014. Innlent 21. júní 2022 14:27
Björn lagði ríkið og fær milljónir í bætur Íslenska ríkið þarf að greiða Birni Þorlákssyni, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar tæpar sjö milljónir vegna uppsagnar hans á síðasta ári, þar af þrjár milljónir í miskabætur. Innlent 20. júní 2022 18:18
Burðardýr dæmt í fimmtán mánaða fangelsi Kvenmaður var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir innflutning á rúmu kílói af sterku kókaíni. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi. Innlent 20. júní 2022 16:20
Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. Innlent 20. júní 2022 14:47
Hrækti á lögreglumenn og hótaði að myrða vararíkissaksóknara Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir fjöldan allan af hegningarlagabrotum, þar á meðal fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hrækja ítrekað á lögreglumenn og að hóta að myrða vararíkissaksóknara. Innlent 20. júní 2022 11:57
Þyngdu dóm manns sem beitti alvarlegu og langvinnu heimilisofbeldi Landsréttur þyngdi á fimmtudag fangelsisdóm karlmanns sem sakfelldur var fyrir brot í nánu sambandi og dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í árs fangelsi. Innlent 18. júní 2022 10:36
„Við hefðum átt að vanda okkur betur“ Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að fyrirtækið hefði átt að vanda sig betur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns, sem stefndi fyrirtækinu fyrir ólögmæta uppsögn. Orkuveita Reykjavíkur var dæmd skaðabótaskyld í málinu í Landsrétti í dag. Innlent 16. júní 2022 19:20
Dómur yfir yfirmönnum Plastgerðarinnar vegna banaslyss staðfestur Landsréttur staðfesti dóm fyrir manndráp af gáleysi yfir tveimur yfirmönnum Plastgerðar Suðurnesja vegna banaslyss sem varð á vinnustaðnum sumarið 2017. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir brot á lögum um öryggi á vinnustað sem rétturinn taldi ófyrnd. Innlent 16. júní 2022 18:56
Áslaug Thelma hafði betur gegn Orku náttúrunnar í Landsrétti Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns einstaklingssviðs Orku náttúrunnar (ON), gegn fyrirtækinu. ON hyggst una niðurstöðunni og ætlar ekki að áfrýja. Innlent 16. júní 2022 14:58
Lúðvík fær ekki að áfrýja dómi í meiðyrðamáli sínu til Hæstaréttar Hæstiréttur hafnaði ósk Lúðvíks Bergvinssonar um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn ritstjóra Viðskiptablaðsins og útgáfufélags þess. Málið var ekki talið hafa verulegt almennt gildi. Innlent 15. júní 2022 17:30
Tilræðismaður Reagan endanlega frjáls og heldur uppselda tónleika í Brooklyn John Hinckley Jr. sem reyndi að skjóta Ronald Reagan Bandaríkjaforseta til bana árið 1981 verður í dag endanlega frjáls allra sinna ferða. Hann var úrskurðaður ósakhæfur í réttarhöldunum 1982 og hefur verið undir ströngu eftirliti sálfræðinga síðan. Þann 8. júlí næstkomandi heldur hann tónleika í Brooklyn sem er uppselt á. Erlent 15. júní 2022 16:09
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent