

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Gæti verið að endurkomu Ronaldo seinki
Leiks Manchester United og Newcastle United er beðið með mikilli eftirvæntingu þar sem það er fyrsti leikur Man Utd síðan Cristiano Ronaldo skrifaði undir hjá félaginu.

Ferguson sagði bikara og medalíur ekki skipta máli fyrir börn og unglinga
Sir Alex Ferguson hafði mikinn áhuga á þjálfun og þróun ungra iðkenda í akademíu Manchester United og lagði mikla áherslu á að markmiðið væri ekki að þeir ynnu til verðlauna sem börn og unglingar, heldur síðar meir.

Tottenham mun sekta Giovani Lo Celso og Cristian Romero
Leikmenn Tottenham, Giovani Lo Celso og Cristian Romero, fóru gegn skipunum félagsins þegar að þeir fóru og hittu argentínska landsliðið í vikunni.

Tottenham og Chelsea stefna á fyrsta kolefnishlutlausa leikinn
Lundúnaliðin Tottenham og Chelsea stefna á fyrsta kolefnishlutlausa knattspyrnuleik heims þegar að liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni þann 19. september næstkomandi.

Kominn aftur til Englands eftir ránið í vor
Sænski landsliðsmarkvörðurinn Robin Olsen samdi við enska B-deildarliðið Sheffield United undir lok félagaskiptagluggans. Hann og fjölskylda hans eru enn að jafna sig eftir skelfilega lífsreynslu sem þau urðu fyrir í vor.

Meistararnir byrjuðu titilvörnina á tapi
Englandsmeistarar Chelsea þurftu að sætta sig við 3-2 tap þegar að liðið heimsótti Arsenal í Lundúnaslag í fyrstu umferð ensku Ofurdeildarinnar.

„Ef þeir vinna ekki á móti Norwich, þá er þetta líklega búið fyrir Arteta“
Joe Cole, fyrrum leikmaður Chelsea og Liverpool, og nú sérfræðingur hjá BT Sport, segir að Mikel Arteta verði að öllum líkindum látinn taka poka sinn ef Arsenal mistekst að vinna Norwich í ensku úrvalsdeildinni næstu helgi.

Salah vill verða launahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi
Egypski knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah vill fá 500 þúsund pund í vikulaun ef hann skrifar undir nýjan samning við Liverpool, en það myndi gera hann að launahæsta leikmanni félagsins frá upphafi.

Mourinho við Xhaka: Farðu í bólusetningu
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal og svissneska karlalandsliðsins í fótbolta, greindist með kórónuveiruna í vikunni. Knattspyrnusamband Sviss greindi frá því að hann væri óbólusettur en José Mourinho, þjálfari Roma, sem reyndi að fá Xhaka í sínar raðir í sumar hefur hvatt hann til að láta sprauta sig.

Óhjákvæmilegt að gróðinn verði gríðarlegur á alla kanta
„Þetta er ekki áhætta að fá hann til liðs við Manchester United“ segir Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar Íslandsbanka, um skipti Cristiano Ronaldo til Manchester United. Í greiningu sinni á skiptunum segir Björn óhjákvæmilegt að félagið, styrktaraðilar og Ronaldo sjálfur græði umtalsvert á þeim.

Rifist um argentínsku landsliðsmennina | Gætu misst af tveimur leikjum í deildinni
Tottenham Hotspur og Aston Villa eiga í deilum við argentínska knattspyrnusambandið vegna leikmanna liðanna sem eru í landsliðshópi Argentínu. Leikmennirnir eiga á hættu að missa af næstu tveimur deildarleikjum með liðum sínum.

Sjáðu mörkin: Þægilegur sigur hjá Man. United í fyrsta leik
Manchester United vann 2-0 sigur á Reading í fyrsta leik tímabilsins í ensku ofurdeildinni í fótbolta. María Þórisdóttir spilaði allan leikinn fyrir United.

Ronaldo þakklátur Cavani fyrir númerið
Cristiano Ronaldo fékk það í gegn að hann myndi klæðast treyju númer sjö, líkt og hann er vanur, eftir endurkomuna til Manchester United. Hann kveðst þakklátur Edinson Cavani fyrir að hafa verið til í að skipta um númer.

Ronaldo sendur snemma heim úr landsliðsverkefni
Cristiano Ronaldo var í gær sendur snemma heim úr landsliðsverkefni Portúgal eftir að hann nældi sér í leikbann þegar hann fagnaði marki með því að fara úr treyjunni og fékk gult spjald að launum.

Ronaldo fær sjöuna hjá Manchester United
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo fær að leika í treyju númer sjö hjá Manchester United líkt og hann gerði þegar hann lék með liðinu fyrir tólf árum. Edinson Cavani gefur sjöuna eftir og mun leika í treyju númer 21.

Xhaka með veiruna
Granit Xhaka, miðvallar leikmaður Arsenal og svissneska landsliðsins, greindist með Covid-19 í gær, miðvikudag.

Var drullusama um sjöuna hjá Man. Utd. og kennir Van Gaal um allt
Ángel Di María segir að sér hafi verið drullusama um hina frægu treyju númer sjö hjá Manchester United sem hann klæddist á eina tímabilinu sem hann lék með liðinu. Þá kennir Argentínumaðurinn Louis van Gaal um ófarir sínar hjá United.

United sækir um undanþágu fyrir Ronaldo
Enska fótboltafélagið Manchester United hefur sótt um undanþágu til ensku úrvalsdeildarinnar svo stjarnan Cristiano Ronaldo, sem gekk í raðir félagsins í gær, geti borið sína frægu sjöu á bakinu.

Chelsea kært vegna hegðunar leikmanna gegn Liverpool
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Chelsea vegna hegðunar leikmanna í 1-1 jafnteflinu við Liverpool um liðna helgi.

Við það að fá taugaáfall í fangelsinu
Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, er við það að fá taugaáfall í HMP Altcourse-fangelsinu. Þar bíður hann dóms eftir að hafa verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota.

Håland enn í áformum Man United þrátt fyrir komu Ronaldo
Endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United hefur ekki breytt áformum félagsins varðandi kaup á Erling Braut Håland sumarið 2022.

Arsenal eyddi mest allra liða í ensku úrvalsdeildinni
Arsenal, botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, eyddi mest allra liða deildarinnar í sumar. Liðið fjárfesti í sex leikmönnum fyrir samtals 156.8 milljónir punda. Þar á eftir koma Manchester-liðin tvö, United og City.

Chelsea rétt náði að koma Saúl inn fyrir lokun | Allt það helsta á lokadegi gluggans
Lokadagur félagaskiptagluggans í Evrópu lokaði á miðnætti í nótt, aðfaranótt miðvikudags. Mikið af félögum náðu rétt svo að koma leikmönnum inn eða út áður en hurðin lokaðist og bíða hefði þurft fram í janúar.

Arsenal sótti varnarmann á lokametrum gluggans
Arsenal krækti í japanska varnarmanninn Takehiro Tomiyasu frá ítalska félaginu Bologna á lokametrum félagsskiptagluggans í kvöld. Lundúnaliðið greiðir í kringum 23 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Rúnar Alex genginn til lið við OH Leuven
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er gegninn til liðs við belgíska félagið OH Leuven á láni frá Arsenal.

Tottenham fær bakvörð frá Barcelona
Brasilíski bakvörðurinn Emerson Royal er gengin til liðs við enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur. Emerson skrifar undir fimm ára samning, en Lundúnaliðið greiðir um 30 milljónir evra fyrir þjónustu hans.

Torres, Falcao, Konchesky og Djemba-Djemba meðal verstu kaupa í sögu úrvalsdeildarinnar
Það styttist í að félagaskiptaglugginn á Englandi, og víðar um Evrópu, loki. Eftir það þurfa knattspyrnulið álfunnar að sætta sig við þá leikmenn sem eru á launaskrá þeirra. Four Four Two tók saman tíu verstu félagaskipti á gluggadegi frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar.

Rúnar Alex á leið til Belgíu
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands og markvörður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, er á leið til belgíska úrvalsdeildarliðsins OH Leuven á láni. Frá þessu er greint á vef The Athletic.

Byrjaði tvo af þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni en seldur til fornra fjenda
Daniel James er loksins loksins á leið til Leeds United. Hann var svo gott sem búinn að semja við félagið þegar Manchester United stal honum undan nefinu á Marcelo Bielsa og fékk hann yfir á Old Trafford. Nú virðist sem Bielsa sé loks að fá sinn mann.

Ronaldo um endurkomuna á Old Trafford: „Sir Alex, þessi er fyrir þig“
Manchester United staðfesti endanlega í dag að Cristiano Ronaldo hefði staðist læknisskoðun og skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á árs framlengingu.