Íslendingar flykkjast í sólina á Tenerife Um tvö þúsund Íslendingar sleikja nú sólina á Tenerife í hverri viku en ferðir til eyjunnar hafa sjaldan eða aldrei verið eins vinsælar og nú. Loftslagið þykir mjög gott á eyjunni fyrir Íslendinga og þá er lítið sem ekkert um pöddur þar og yfirleitt mjög hreinlegt. Innlent 25. febrúar 2024 09:30
Milljarðatjón vegna umfjöllunar um jarðhræringar við Grindavík Forstjóri Play segir fréttir heimsfjölmiðla af umbrotunum í Grindavík fyrr í vetur hafa valdið íslenskri ferðaþjónustu milljarðatjóni. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að líta í eigin barm um hvað megi gera betur. Viðskipti innlent 23. febrúar 2024 22:18
Smitandi pest í skemmtiferðaskipi: Íslenskt veitingafólk gáttað á lélegum sóttvörnum Íslensk hjón, sem reka hótel og veitingastað í Flóahreppi, furðuðu sig á lélegum smitvörnum á skemmtiferðaskipi þegar magapest geisaði um borð á dögunum, svo mjög að yfirmaður veitingastaðanna um borð fékk frá þeim tiltal. Lífið 20. febrúar 2024 21:41
Stjörnulífið: „Dvalarheimili hinsegin poppara 2059“ Gleðin var allsráðandi hjá stjörnum landsins í liðinni viku þar sem ástarjátningar, skíðaferðir og stjörnum prýdd partý voru áberandi. Lífið 19. febrúar 2024 10:31
Íslenskur prjónahittingur á Tenerife í hverri viku Þær eru kátar og hressar íslensku konurnar, sem hittast reglulega og prjóna saman á Tenerife. Aðallega er verið að prjóna á barnabörnin heima á Íslandi, þó þær séu með ýmislegt annað á prjónunum á vikulegum prjónahitting hópsins. Lífið 18. febrúar 2024 20:31
Taka stutt hlé frá leikhúsinu fyrir ferðalög til Perú og Keníu „Það er svo gaman að fá að vera umkringd ungu fólki og fólki á öllum aldri. Það er enginn munur á okkur þannig, við erum öll manneskjur,“ segir stórleikkonan Kristbjörg Kjeld. Hún fer með hlutverk í leikritinu Með Guð í vasanum í leikstjórn Maríu Reyndal. Kristbjörg, sem verður 89 ára í sumar, er á leið til Perú í lok mánaðarins og fer sýningin því í pásu fram á vor. Menning 17. febrúar 2024 07:01
Ákveðnir árgangar hvorki bólusettir við mislingum né hettusótt Nýlega hafa greinst á Íslandi bæði mislingar og hettusótt. Sama bóluefni er notað við þessum sjúkdómum en fólk fætt á bilinu 1975 til 1987 er margt ekki fullbólusett. Bóluefni standa fólki til boða en þó ekki nema það hafi verið útsett eða á leið til útlanda. Innlent 16. febrúar 2024 13:01
Play bætir við nýjum áfangastað Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Vilníus í Litháen. Flogið verður vikulega á laugardögum yfir sumarmánuðina en fyrsta flugið til Vilníusar verður 25. maí. Viðskipti innlent 13. febrúar 2024 10:10
Stjörnulífið: Idol, skíðaferðir og ástarjátningar Idol-gleði, skíðaferðir, barneignir og ástin spilaði lykilhlutverk í liðinni viku. Stjörnur landsins fögnuðu ýmsum tímamótum með glæsibrag og febrúar virðist fara vel í mannskapinn. Lífið 12. febrúar 2024 10:20
Taka upp bókunarkerfi í Landmannalaugum Umhverfisstofnun hefur kynnt bókunarkerfi sem tekið verður upp fyrir bílastæði við Landmannalaugar í sumar. Allir sem aka að Landmannalaugum á eigin vegum munu þurfa að bóka bílastæði fyrir fram og greiða þjónustugjald fyrir. Viðskipti innlent 6. febrúar 2024 20:02
Sara Sigmunds sviptir hulunni af kærastanum Sara Sigmundsdóttir afrkskona í CrossFit sendi kærastanum og CrossFit-kappanum Luke Ebron hjartnæma afmæliskveðju á Instagram í tilefni dagsins. Í færslunni má sjá myndir af parinu saman en þau hafa haldið sambandinu frá sviðsljósinu. Lífið 6. febrúar 2024 14:40
Lætur draum látins eiginmanns síns rætast á Íslandi „Ég veit að hann á eftir að vera með okkur í anda,“ segir Sinéad Nolan Martin, 27 ára gömul kona frá Englandi í samtali við Vísi en í næsta mánuði mun hún leggja af stað í 40 kílómetra göngu frá Nesjavöllum til Þingvalla. Þannig hyggst hún heiðra minningu eiginmanns síns, Harry Martin, sem lést úr sjaldgæfu krabbameini árið 2021, einungis 25 ára gamall. Einn stærsti draumur Harry þegar hann var á lífi var að heimsækja Ísland. Lífið 4. febrúar 2024 09:00
Fengu nóg af Íslandi, seldu allt og héldu í óvissuferð Fyrir tæpum fimmtán mánuðum ákváðu hjónin Gunnlaugur Hólm Sigurðsson og Anna Málfríður að segja skilið við hverdagsleikann á Íslandi. Þau seldu allar sínar eigur, fluttu um borð í nítján ára gamlan húsbíl ásamt Yorkshire terrier hundinum sínum og lögðu af stað í flakk um Evrópu. Lífið 3. febrúar 2024 09:00
Vök Baths og vetrarperlur Austurlands Vök Baths, sem eru staðsettar á bökkum Urriðavatns við Egilsstaði, eru heitar náttúrulaugar sem opnuðu sumarið 2019 og hafa notið mikilla vinsælda meðal ferðamanna og heimamanna. Lífið samstarf 31. janúar 2024 10:16
Gætir jafnvægis milli vinnu og tíma með strákunum í Brasilíu Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, dvelur yfir vetrarmánuðina á suðrænum slóðum í Rio de Janeiro. Hann segist vinna mikið í Brasilíu en dvöl hans ytra snýst ekki aðeins um vinnu heldur leyfir hann sér líka að slaka á og njóta í góðum félagsskap. Lífið 30. janúar 2024 14:39
Flúðu íslenska veturinn og njóta í fiskimannaþorpi Hjónin Elín Sveinsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson sem hafa marga fjöruna sopið í fjölmiðlum í gegnum áratugina njóta lífsins þessar vikurnar á Tenerife. Þó ekki á sundlaugabakknum að taka tásumyndir. Lífið 29. janúar 2024 15:55
Klökknar enn við tilhugsun um fjölskylduna sem bjargaði honum Kristján Gíslason segist hafa lært að fólk sé gott og heimurinn sé fallegur staður eftir að hafa farið einn á mótorhjóli hringinn í kringum hnöttinn og svo í gegnum alla Afríku. Kristján, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segist gjörbreyttur maður eftir að hafa flakkað um allan heim einn síns liðs á mótorhjólinu. Lífið 29. janúar 2024 08:00
Hjón segja pakkaferð hafa verið svindl og fá 60 þúsund endurgreitt Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert ferðaskrifstofu að endurgreiða hjónum 60 þúsund krónur vegna pakkaferðar sem þau fóru í síðasta sumar. Þau greiddu samtals 272 þúsund krónur fyrir ferðina, sem var auglýst sem pakkaferð á fjögurra stjörnu hóteli þar sem allt væri innifalið fyrir 130 þúsund krónur á mann. Neytendur 24. janúar 2024 08:55
Play flýgur til Króatíu Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til strandborgarinnar Split í Króatíu. Fyrsta flug Play til Split verður 28. maí en til stendur að fljúga þangað einu sinni í viku á þriðjudögum yfir sumarmánuðina. Viðskipti innlent 17. janúar 2024 10:06
Ferðalag til Íslands varð kveikjan að ævintýrinu Hin 28 ára gamla Gabby Beckford er bandarískur áhrifavaldur sem heldur úti afar vinsælum aðgangi á TikTok, Instagram og Youtube. Þar deilir hún myndefni úr ferðalögum sínum víða um heiminn. Með mikilli vinnu hefur henni tekist að gera ferðalögin að aðalstarfi sínu en á seinasta ári þénaði hún hátt í fjörtíu milljónir íslenskra króna í gegnum samstarf við fyrirtæki og ýmislegt fleira. Lífið 13. janúar 2024 10:00
Bjöggi og Kristín með leikarahjónunum í draumaferð Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir fóru í sannkallaða ævintýraferð um Suður-Ameríku ásamt athafnamanninum Björgólfi Thor Björgólfssyni, Kristínu Ólafsdóttur og börnum þeirra. Lífið 9. janúar 2024 11:24
„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs „Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu. Neytendur 3. janúar 2024 14:00
Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi „Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“ Neytendur 3. janúar 2024 10:16
Hver er vinsælasta jólagjöfin? Samverustund hefur verið valin jólagjöf ársins samkvæmt könnun Rannsóknarseturs verslunarinnar. Valið snýst því ekki lengur um mjúka eða harða pakka, heldur er það samvera með fólkinu okkar sem hefur vinningin. Lífið samstarf 20. desember 2023 11:48
Þau komu til Íslands 2023 Hópur svokallaðra Íslandsvina stækkaði umtalsvert á árinu sem er að líða. Vegna fjölda funda sem fóru fram hér á landi bættust erlendir stjórnmálaleiðtogar í umræddan hóp. Þá tróð heimsfrægt tónlistarfólk upp á Íslandi á árinu. Aðrir voru komnir á klakann í öðrum erindagjörðum, sumir voru einfaldlega í fríi. Lífið 19. desember 2023 17:29
Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar. Innlent 17. desember 2023 08:50
Vann á Íslandi í hálft ár og náði að safna fyrir sex mánaða ferðalagi Dawid Siódmak er tæplega þrítugur Pólverji sem lifir nokkuð óhefðbundnum lífsstíl. Hann og unnusta hans vinna sex mánuði á ári, lifa mjög spart og safna pening. Hinn helminginn á árinu nýta þau í ferðalög víðsvegar um heiminn þar sem þau lifa á sparifénu. Hafa þau meðal annars heimsótt Víetnam, Kambódíu, Marokkó, Mexíkó og Spán. Undanfarna sex mánuði þau dvalið og unnið á gistiheimili á Íslandi og safnað fyrir næsta ferðlagi. Lífið 16. desember 2023 20:00
Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins. Innlent 15. desember 2023 18:35
Ævintýrið á Spáni breyttist í martröð Fjórir mánuðir eru liðnir síðan María Gomez hélt til Spánar í það sem hún hélt að yrði aðeins nokkurra vikna dvöl. Hún keypti ættaróðal látinnar frænku og huggðist gera upp, en óvæntar uppákomur settu strik í reikninginn. Þrátt fyrir mótlæti segist María nú hafa lært að elska hægaganginn á Spáni sem hún þoldi ekki í upphafi. Lífið 3. desember 2023 10:01
Vinnur þú 500.000 kr. gjafabréf út í heim? Hvernig á að velja jólagjafir? Þessi árlegu heilabrot eru í fullum gangi á heimilum um allt land. Öll langar okkur að gefa gjafir sem hitta í mark. Eitthvað sem viðtakandinn elskar að fá og nýtur í botn. En hvað á það að vera? Það er stóra aðventuspurningin. Lífið samstarf 1. desember 2023 09:08