Karlalið Víkings lið ársins 2023 Karlalið Víkings í fótbolta var valið lið ársins 2023 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld. Fótbolti 4. janúar 2024 20:51
Arnar Gunnlaugsson þjálfari ársins Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta, er þjálfari ársins 2023 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld. Fótbolti 4. janúar 2024 20:46
Tækifæri fyrir íslenska leikmenn að láta til sín taka um helgina Íslenskum knattspyrnukonum gefst gott tækifæri til þess að láta ljós sitt skína út í heim héðan af landi um komandi helgi. Fótbolti 4. janúar 2024 19:15
Anton Logi fylgir Óskari Hrafni til Noregs Miðjumaðurinn Anton Logi Lúðvíksson er genginn í raðir norska úrvalsdeildarliðsins Haugesund frá Breiðabliki. Fótbolti 4. janúar 2024 15:47
Freyr á leið í kirkjugarð þjálfara Óhætt er að segja að Freyr Alexandersson takist á við afar krefjandi verkefni sem nýr þjálfari belgíska liðsins Kortrijk. Malasískur auðjöfur með tengsl við Ísland er eigandi félagsins sem hefur ört skipt um þjálfara síðustu ár. Fótbolti 4. janúar 2024 13:30
Freyr keyptur til Belgíu Freyr Alexandersson er hættur að þjálfa danska knattspyrnufélagið Lyngby. Belgíska félagið Kortrijk hefur nefnilega keypt þennan 41 árs gamla þjálfara. Fótbolti 4. janúar 2024 09:50
Dortmund vill fá Sancho strax í næstu viku Viðræður eru í gangi á milli Manchester Untied og Borussia Dortmund um félagaskipti Jadon Sancho. Þýska liðið vill að Sancho mæti í æfingabúðir liðsins á Spáni í næstu viku. Enski boltinn 3. janúar 2024 23:00
Dramatík þegar Girona jafnaði Real á toppnum Girona er aftur jafnt Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-3 sigur á Atletico Madrid í kvöld. Sigurmarkið kom í uppbótartíma. Fótbolti 3. janúar 2024 22:34
Góð endurkoma tryggði Roma í næstu umferð Roma er komið áfram í ítalska bikarnum í knattspyrnu eftir endurkomu sigur á Cremonese í kvöld. Fótbolti 3. janúar 2024 21:54
Mbappe skoraði þegar PSG vann ofurbikarinn PSG er meistari meistaranna í Frakklandi eftir sigur á Toulouse í leiknum um ofurbikarinn svokallaða. Fótbolti 3. janúar 2024 21:45
Naumur sigur Real í fyrsta leik ársins Real Madrid er áfram í efsta sæti La Liga á Spáni eftir 1-0 sigur á Mallorca í fyrsta leik liðanna á nýju ári. Fótbolti 3. janúar 2024 20:15
Skór Ólafs Karls komnir upp í hillu Ólafur Karl Finsen hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna en hann greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag. Fótbolti 3. janúar 2024 18:01
Svíar að ráða nýja landsliðsþjálfara Olof Mellberg verður næsti landsliðsþjálfari sænska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Þetta kemur fram á miðlinum Fotbollskanalen. Fótbolti 3. janúar 2024 17:30
Nálægt því að fá Kristian sem sé „skrýtið“ núna Ekki mátti miklu muna að Kristian Nökkvi Hlynsson, einn nýjasti A-landsliðsmaður Íslands í fótbolta, færi frá Ajax til De Graafschap í sumar. Í staðinn er hann kominn í stórt hlutverk hjá hollensku risunum. Fótbolti 3. janúar 2024 16:30
Bellingham rak kokkinn sinn Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins, hefur rekið kokkinn sinn. Hann var ekki nógu sáttur við störf hans. Fótbolti 3. janúar 2024 16:02
Framtíð Gylfa ráðist í vor Forráðamenn danska knattspyrnufélagsins Lyngby ætla ekki að taka neina ákvörðun varðandi framtíð Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá félaginu fyrr en í vor. Það mun sömuleiðis vera hans vilji. Fótbolti 3. janúar 2024 15:00
Gylfi ekki með gegn Gvatemala og Hondúras en tveir nýliðar koma inn Gylfi Þór Sigurðsson getur ekki leikið með íslenska landsliðinu í vináttuleikjunum gegn Gvatemala og Hondúras í þessum mánuði. Fótbolti 3. janúar 2024 09:44
Greenwood fékk rautt í gær en kennir um slæmri spænskukunnáttu Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood var einn af þremur sem fékk að líta rauða spjaldið hjá Getafe liðinu í 2-0 tapi á móti Rayo Vallecano í spænsku deildinni í gær. Fótbolti 3. janúar 2024 07:30
Sancho gæti snúið aftur til Dortmund Jadon Sancho, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, geti snúið aftur til Borussia Dortmund á láni áður en félagsskiptaglugginn lokar í lok janúar. Fótbolti 3. janúar 2024 06:39
Man Utd sendir Reguilon aftur til Tottenham Spænski bakvörðurinn Sergio Reguilon er genginn aftir til liðs við Tottenham eftir stutta lánsdvöl hjá Manchester United. Fótbolti 2. janúar 2024 22:31
AC Milan örugglega í átta liða úrslit AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, með öruggum 4-1 sigri gegn Cagliari í kvöld. Fótbolti 2. janúar 2024 21:55
Markalaust jafntefli batt enda á sigurgöngu West Ham Eftir þrjá sigurleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni er sigurganga West Ham United á enda eftir markalaust jafntefli gegn Brighton & Hove Albion í kvöld. Fótbolti 2. janúar 2024 21:24
Hissa á að meiddur Mitoma hafi verið tekinn með á Asíumótið Roberto de Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, segist vera ansi hissa á því að vængmaðurinn Kaoru Mitoma hafi verið kallaður inn í japanska landsliðið fyrir Asíumótið sem hefst í næstu viku. Fótbolti 2. janúar 2024 18:30
Tuchel í áfalli yfir hversu slæmt ástandið hjá Bayern var Thomas Tuchel var brugðið hversu slæmt andlegt og líkamlegt ásigkomulag leikmanna Bayern München var þegar hann tók við liðinu í fyrra. Fótbolti 2. janúar 2024 15:30
Enginn fær að spila í tíunni á eftir Messi Tían verður tekin úr umferð hjá argentínska karlalandsliðinu í fótbolta þegar Lionel Messi hættir að spila með landsliðinu. Fótbolti 2. janúar 2024 13:00
Landsliðskonur Hollands og Ástralíu trúlofuðu sig Fótboltakonurnar Danielle van de Donk og Ellie Carpenter notuðu tækifærið og trúlofuðu sig um áramótin. Fótbolti 2. janúar 2024 10:00
„Ronaldo hefur alltaf verið átrúnaðargoðið mitt“ Rafael Leao, leikmaður AC Milan, segir að átrúnaðargoð hans hafi alltaf verið samlandi hans, Cristiano Ronaldo. Fótbolti 1. janúar 2024 18:00
Elísabet, Gylfi Þór og Reynir Pétur í hópi nýrra fálkaorðuhafa Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag. Innlent 1. janúar 2024 14:48
Heiðursstúkan: Leifur Andri gegn Hólmari Erni Fimmti þátturinn af Heiðursstúkunni er nú kominn í loftið en þar mætast þeir Leifur Andri Leifsson og Hólmar Örn Eyjólfsson og var þeirra viðfangsefni að sjálfsögðu fótbolti. Fótbolti 1. janúar 2024 10:30
Krefjast allsherjar banns íþróttafólks frá Ísrael Knattspyrnusamband Jórdaníu hefur krafist þess að íþróttasamfélagið taki höndum saman gegn innrás Ísraela í Palestínu og að ísraelskt íþróttafólk verði bannað frá þátttöku í alþjóðlegum keppnum. Sport 1. janúar 2024 09:01