Mexíkó ræður Aguirre í þriðja skiptið Javier Aguirre hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Mexíkó í knattspyrnu í þriðja sinn. Goðsögnin Rafael Márquez verður aðstoðarþjálfari en hann spilaði á sínum tíma 147 A-landsleiki. Fótbolti 23. júlí 2024 22:01
Reynsluboltinn Rasmus í Gróttu Miðvörðurinn Rasmus Christiansen er genginn í raðir Gróttu og mun þar mynda eitt reyndasta miðvarðapar Lengjudeildar karla í fótbolta ásamt Aroni Bjarka Jósepssyni. Íslenski boltinn 23. júlí 2024 21:15
Stúkan: Þarf HK að fara erlendis í leit að markverði? Stúkan fór yfir markvarðamál HK en það er ljóst að Arnar Freyr Ólafsson er með slitna hásin og spilar ekki meira með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta á þessari leiktíð. Íslenski boltinn 23. júlí 2024 20:00
Áslaug Munda ekki meira með Blikum í sumar Hin fjölhæfa Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Breiðablik á þessari leiktíð. Íslenski boltinn 23. júlí 2024 19:15
PSG sýnir Sancho óvænt áhuga Jadon Sancho, vængmaður Manchester United, er óvænt á óskalista Frakklandsmeistara París Saint-Germain. Enski boltinn 23. júlí 2024 18:30
Leikmaður Man City neitar sök í eiturlyfjamáli Khiaha Keating, markvörður kvennaliðs Manchester City, neitaði í morgun sök fyrir rétti í Manchester-borg. Hún er ákærð fyrir vörslu eiturlyfja. Enski boltinn 23. júlí 2024 17:15
Stjarnan fyllir í skarð Cosme Stjörnukonum hefur borist liðsstyrkur í Bestu deild kvenna. Hin bandaríska Jessica Ayers er gengin í raðir félagsins. Íslenski boltinn 23. júlí 2024 15:00
Aðeins glöggir finna breytingarnar á merki Feyenoord Það er svolítið í tísku að breyta merkjum félaga í boltanum og oft er um róttækar breytingar að ræða. Ekki þó alltaf. Fótbolti 23. júlí 2024 14:01
Orri fær mikið lof eftir frábæra byrjun Orri Steinn Óskarsson, framherji FC Kaupmannahafnar, fær mikið lof frá sérfræðingum um dönsku úrvalsdeildina eftir mjög svo góða byrjun á tímabilinu í gærkvöldi. Orri skoraði eitt mark í 2-0 sigri FC Kaupmannahafnar á Lyngby í fyrstu umferð deildarinnar. Mörkin hefðu hæglega geta verið fleiri en frammistaðan sýnir það og sannar af hverju stór félög í Evrópu hafa verið á höttunum á eftir Íslendingnum. Fótbolti 23. júlí 2024 11:30
Grunlaus Ægir Jarl biðst afsökunar Óhætt er að segja að dvöl knattspyrnumannsins Ægis Jarls Jónassonar, hjá nýja félagi hans AB, fari brösuglega af stað. Saklaus vera hans sem áhorfandi á leik Lyngby og FC Kaupmannahafnar í dönsku úrvalsdeildinni í gær, þar sem að hann var að styðja við bakið á vinum sínum, féll í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönnum AB. Fótbolti 23. júlí 2024 09:30
Ákærður Barton segir Bretland verðandi bananalýðveldi Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Joey Barton heldur áfram að fara hamförum á samfélagsmiðlum. Nú eftir að hann var ákærður vegna ummæla um fjölmiðla- og fyrrverandi landsliðskonunnar Eni Aluko. Enski boltinn 23. júlí 2024 07:00
Sá leikjahæsti tekur skóna óvænt fram á nýjan leik Hinn 43 ára gamli Gareth Barry hefur óvænt tekið fram skóna á nýjan leik og mun spila með áhugamannaliðinu Hurstpierpoint á komandi leiktíð. Um er að ræða lið sem spilar í 11. deild enska deildarkerfisins. Enski boltinn 22. júlí 2024 23:31
„Ætla rétt að vona að pabbi hafi verið Skagamegin“ Hinrik Harðarson virtist vera að skora sigurmark Skagamanna og tryggja liðinu mikilvæg þrjú stig þegar hann kom ÍA yfir í leik liðsins gegn FH í Kaplarkika í kvöld. FH náði hins vegar að jafna og Hinrik var súr og svekktur þrátt fyrir markið sem hann skoraði. Fótbolti 22. júlí 2024 22:30
„Aldrei hætta að boltinn væri á leiðinni yfir“ Gyrðir Hrafn Guðbrandsson skoraði jöfnunarmark FH þegar liðið fékk Skagamann í heimsókn í Kaplakrika í mikilvægum leikí Evrópubaráttunni í kvöld. Þetta var fyrsta mark Gyrðis Hrafns í deildinni í sumar. Fótbolti 22. júlí 2024 22:19
Uppgjör og viðtöl: FH - ÍA 1-1 | Evrópubaráttan óbreytt eftir dramatík í Kaplakrika FH og ÍA skildu jöfn, 1-1, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 15. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í kvöld. Um var að ræða sex stiga leik í Evrópubaráttunni. Heimamenn jöfnuðu metin í uppbótartíma. Íslenski boltinn 22. júlí 2024 21:10
Markaskorarinn Orri Steinn: „Eigum við að segja 15 eða 20 mörk?“ Orri Steinn Óskarsson byrjar tímabilið af krafti í Danmörku en hann skoraði fyrra mark FC Kaupmannahafnar í 2-0 sigri á Lyngby. Hann er nýbúinn að skrifa undir nýjan samning til ársins 2018 og setur markið hátt á komandi leiktíð. Fótbolti 22. júlí 2024 20:31
Bestu mörkin um hina óþreytandi Selmu Dögg: „Eins og hún sé að leysa tvær stöður“ „Víkingarnir eru góðir í pressu og þar er Selma Dögg (Björgvinsdóttir) fyrirliði og leiðtoginn í þessu liði, það er æðislegt að sjá hana pressa,“ sagði Sif Atladóttir um prímusmótorinn í liði Víkings í Bestu deild kvenna. Íslenski boltinn 22. júlí 2024 19:45
Orri Steinn byrjaði á marki í Íslendingaslagnum Lyngby tók á móti FC Kaupmannahöfn í 1. umferð dönsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Alls voru þrír Íslendingar í byrjunarliðum liðanna og Orri Steinn Óskarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-0 sigri gestanna. Fótbolti 22. júlí 2024 19:00
Onana leysir Luiz af hólmi á Villa Park Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur staðfest kaupin á Amadou Onana en þessi belgíski miðjumaður kemur frá Everton og kostar um 50 milljónir punda eða tæpa níu milljarða íslenskra króna. Enski boltinn 22. júlí 2024 18:15
Ísland mætir Bandaríkjunum tvívegis Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Bandaríkjunum tvívegis í október næstkomandi. Fótbolti 22. júlí 2024 17:31
Vildu rautt á tæklingu Sharts: „Þetta er hættulegt“ Tækling Hönnuh Sharts, varnarmanns Stjörnunnar, á Barbáru Sól Gísladóttur í leik Garðbæinga við Breiðablik, var til umræðu í Bestu mörkunum. Sharts fékk gult spjald fyrir en annar litur hefði getað verið á spjaldinu. Íslenski boltinn 22. júlí 2024 14:30
Víkingar og Blikar heppnari en Valsmenn og Stjörnumenn Í dag kom í ljós hvaða lið bíða íslensku félaganna fjögurra takist þeim að komast áfram úr annarri umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta. Fótbolti 22. júlí 2024 13:21
Riftu samningi við besta leikmann Copa América Kólumbíumaðurinn James Rodriguez er laus allra mála hjá brasilíska félaginu São Paulo aðeins nokkrum dögum eftir að hann var valinn besti leikmaður Suðurameríkukeppninnar. Fótbolti 22. júlí 2024 12:00
Sláttuvélarfögnuður Þróttarastelpna sló í gegn í Gautaborg Sextán ára stelpur í Þrótti tryggðu sér sigur á Gothia Cup um helgina sem er árlegt og risastórt unglingamót í Gautaborg í Svíþjóð. Fótbolti 22. júlí 2024 08:30
Leikur flautaður af í Noregi: Hundrað fiskibollum hent inn á völlinn Dómari leiks Rosenborg og Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta tók þá ákvörðun að flauta leikinn af í gær eftir að áhorfendur hættu ekki að henda hlutum inn á leikvöllinn. Fótbolti 22. júlí 2024 07:30
Tveggja bolta vítaspyrnudómur vekur athygli Sérkennilegt atvik átti sér stað í viðureign Flamengo og Criciúma í Brasilíu á laugardaginn. Allt stefndi í 1-1 jafntefli þegar Barreto, varnarmaður Criciúma, ákvað að ræna upplögðu marktækifæri af Cebolinha. Fótbolti 22. júlí 2024 07:01
„Þetta var ekki auðvelt“ Stjarnan vann góðan 2-0 sigur á Fylki í Bestu deild karla í kvöld þar sem Emil Atlason og Helgi Fróði Ingason skoruðu mörkin. Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi við blaðamann Vísis eftir leik og var eins og við var að búast kampakátur með sigurinn. Fótbolti 21. júlí 2024 21:58
Sýður á Elmari: „Þetta er súrrealískt“ Theódór Elmar Bjarnason, fyrirliði KR, var eðlilega óánægður eftir 4-2 tap liðsins fyrir Breiðabliki í Bestu deild karla á Kópavogsvelli í kvöld. Grafalvarleg staða er uppi í Vesturbæ. Íslenski boltinn 21. júlí 2024 21:25
„Þessi leikur fyrir okkur var úrslitaleikur“ „Góð tilfinning að fá loksins sigurleik,“ sagði Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, eftir fyrsta sigurleik liðsins síðan 2. maí, en liðið vann stórsigur á Tindastóli 4-1 í dag á Würth vellinum. Fótbolti 21. júlí 2024 18:45
United á eftir marksæknu ungstirni Arsenal Hinn 16 ára danski sóknarmaður, Chido Obi, er sagður á ratsjá Manchester United og er tíðinda að vænta af ákvörðun hans um félagskipti á næstu dögum eða klukkutímum samkvæmt véfréttinni Fabrizio Romano. Fótbolti 21. júlí 2024 17:16