
Óttaslegin á Spáni og komast ekki heim
Gréta Jónsdóttir er föst á Spáni en hún og maður hennar eru bæði með undirliggjandi sjúkdóma sem setur þau í áhættuhóp.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Gréta Jónsdóttir er föst á Spáni en hún og maður hennar eru bæði með undirliggjandi sjúkdóma sem setur þau í áhættuhóp.
Aukaframlög upp á 6,5 milljarða til samgönguverkefna verður meðal annars nýtt til að fækka þeim þrjátíu og sex einbreiðu brúm sem enn eru á Hringvegi 1. Þá framkvæmdahraði aukinn í ýmsum stórverkefnum í vegagerð, uppbyggingu flugvalla og hafna á þessu ári.
Forsvarsmenn Icelandair Group hafa ákveðið að sameina hin ýmsu svið félaganna og segja upp framkvæmdastjóra Iceland Travel.
Kaup Avia Solutions Group á Bláfugli ehf. eru gengin í gegn.
Aðgerðahópur samgönguráðherra telur nauðsynlegt að byggja við flugstöðina á Akureyrarflugvelli til að geta veitt viðunandi þjónustu samtímis fyrir millilanda- og innanlandsflug.
Air Iceland mun áfram sinna stöku vöruflutningum til Grænlands, þótt félagið hafi tilkynnt fyrir tíu dögum að allt áætlunarflug félagsins þangað hefði verið fellt niður.
Flugvellir víðs vegar um heiminn eru nú yfirfullir af flugvélum, enda hefur ferðum fækkað talsvert vegna kórónuveirufaraldursins. Fjölmörg ríki hafa sett á ferðabann og ljóst er að tekjutap flugfélaga heimsins er mikið.
101 starfsmanni Isavia hefur verið sagt upp störfum og hefur 37 starfsmönnum verið boðið áframhaldandi starf í lægra starfshlutfalli, samkvæmt heimildum Vísis.
Þrjú hundruð Íslendingar eru á heimleið með Icelandair næstu daga. Utanríkisráðuneytið aðstoðar hluta hópsins vegna þess að víða er búið að fella niður flug og á í samstarfi við önnur ríki við að koma fólki heim.
Ein óvenjulegasta flugleið sem haldið er uppi þessa dagana er loftbrúin sem grænlensk stjórnvöld hafa sett upp til að flytja covid-19 sýni frá Grænlandi til greiningar í Danmörku.
Allur floti flugfélagsins Easyjet verður kyrrsettur til að draga úr kostnaði á meðan eftirspurn liggur í lamasessi vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Þá hefur félagið náð samkomulagi við stéttarfélag starfsmanna um að áhafnir verði sendar í leyfi.
Íslensk stjórnvöld hyggjast greiða upp tap Icelandair sem hlýst af því að halda flugi gangandi tvo daga í viku til Evrópu og Bandaríkjanna.
Hótel Reykjavík Natura stendur til boða þeim starfsmönnum heilbrigðiskerfisins og almannavarna sem ekki geta dvalið á heimili sínu vegna hættu á smiti.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er nú 13,6 prósent og fer líklega hækkandi.
Í gær var ár liðið frá falli WOW air.
Í dag er ár liðið frá falli WOW Air og hafði fall félagsins mikil áhrif á atvinnu- og efnahagslíf á Íslandi.
Breiðþota með yfir fjórar milljónir andlitsgríma frá Kína í baráttunni gegn kórónu-faraldrinum lenti á Spáni snemma í morgun.
Strandaglópurinn heim ásamt fleiri Íslendingum með sérstöku neyðarflugi Icelandair annað kvöld.
Fyrrverandi stjórnarmenn í hinu fallna WOW air saka viðskiptaritstjóra Morgunblaðsins um fréttaflutning sem ýmist er sagður efnislega rangur, byggja á endurteknu efni eða „aðdróttanir sem nauðsynlegt er að bregðast við.“
Tveir forritarar hafa stefnt félaginu USAerospace Associates, nýjum eiganda WOW Air, og krefjast sautján milljóna króna vegna vangoldinna launa og uppsagnafrests.
Um 4.500 manns sem skráðir eru í gagnagrunn borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins er enn erlendis að því er fram kemur í stöðuskýrslu almannavarna frá því í gær.
Ríkisstjórnin hyggst leggjast í stækkun akbrautar á Egilsstaðaflugvelli ásamt stækkun flughlaðs og flugstöðvar á Akureyri sem hluta af fjárfestingaátaki sínu.
Keflavíkurflugvöllur leit út eins og draugabær í dag en ferðamönnum hefur fækkað gífurlega hér á landi og sömuleiðis ferðum Íslendinga vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og samkomubanns.
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að efla og fjárfesta í innviðum samfélagsins. Nú á að gera enn betur og hefja sérstakt 15 milljarða króna flýtifjárfestingarátak sem kynnt var í Hörpu sl. laugardag.
Evrópsk flugfélög sem róa nú sum lífróður vegna kórónuveirufaraldursins krefjast þess að þau verði losuð undan því að greiða umhverfisskatta sem eiga að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi. Sum staðar eru þó kröfur uppi um að stjórnvöld setji samdrátt í losun sem skilyrði fyrir því að bjarga flugfélögum.
Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið hefur dregist saman um tæp sextíu prósent á síðustu tíu dögum. Mestu munar um mikinn samdrátt í alþjóðlegu flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna og til og frá Keflavíkurflugvelli.
Ístaksmenn standa frammi fyrir óvæntri áskorun að hefjast handa við smíði skólabyggingar í Nuuk á Grænlandi vegna ferðatakmarkana sem fylgja kórónu-faraldrinum.
„Vonandi náum við að halda áfram einhverjum tengingum milli Íslands og Evrópu og Norður-Evrópu,“ segir forstjóri Icelandair.
Icelandair hefur tilkynnt að 240 starfsmönnum verði sagt upp og starfshlutfall 92 prósent starfsfólks verði skert.