

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

J.B. Holmes með þægilegt forskot fyrir lokahringinn á Cadillac Championship
Hefur leikið frábært golf hingað til á hinum krefjandi Doral velli og hefur fimm högga forskot á Dustin Johnson og Bubba Watson. Fór holu í höggi á þriðja hring í gær.

Fleiri kylfingar blanda sér í baráttu efstu manna á Doral
Þrátt fyrir að hafa leikið annan hring á einu höggi yfir pari leiðir J.B. Holmes enn á Cadillac meistaramótinu en margir sterkir kylfingar munu gera atlögu að forystusætinu í kvöld.

J.B. Holmes í sérflokki á fyrsta hring á Cadillac Championship
Lék sér hreinlega að Doral vellinum í kvöld og leiðir með fjórum. Rory McIlroy fer hægt af stað en mörg þekkt nöfn raða sér í efstu sætin eftir fyrsta hring.

Gott að fá spark í rassinn
Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Honda Classic.

Cadillac Championship hefst í kvöld
70 bestu kylfingar heims munu spila upp á stjarnfræðilega háar upphæðir á næstu fjórum dögum en fyrsta mótið á heimsmótaröðinni í golfi fer fram um helgina.

Tiger féll ekki á lyfjaprófi
Kylfingurinn sem hélt því fram í gær að Tiger Woods hefði fallið á lyfjaprófi hefur dregið ummæli sín til baka.

Sjö ára bið Harrington eftir PGA-sigri á enda
Lék best allra á PGA National vellinum og tryggði sér kærkominn sigur í bráðabana eftir dapurt gengi á undanförnum árum.

Bein útsending á Golfstöðinni klukkan 13.00
Ekki náðist að ljúka leik á Honda Classic í gær og mótið verður því klárað í dag.

Segir að Tiger hafi fallið á lyfjaprófi
Sögusagnir eru um að Tiger Woods hafi fallið á lyfjaprófi og hafi verið settur í keppnisbann.

Veðrið enn í aðalhlutverki á Honda Classic
Eftir tvo hringi á þremur dögum leiðir fyrrum besti kylfingur heims, Padraig Harrington, á Honda Classic. Margir þekktir kylfingar í toppbaráttunni en Rory McIlroy náði ekki niðurskurðinum.

Veðrið setur strik í reikninginn á Honda Classic - McIlroy úr leik
Rory McIlroy var í tómu veseni á fyrstu tveimur hringjunum á PGA-National vellinum en hann nær ekki niðurskurðinum á Honda Classic. Brendan Steele leiðir mótið eftir að hafa leikið frábært golf í rigningunni í Flórída.

Jim Herman leiðir á Honda Classic eftir fyrsta hring
Er einn í efsta sæti á fimm undir pari, átta höggum betri en Rory McIlroy sem hóf tímabil sitt á PGA-mótaröðinni í gær.

„Hákarlinn" bítur í Tiger Woods
Ástralska goðsögnin Greg Normal telur að bestu dagar Tiger Woods á golfvellinum séu taldir en hann er þessa dagana í fríi frá keppnisgolfi eftir hræðilega byrjun á tímabilinu.

Tiger er of stoltur til að biðja mig um aðstoð
Tiger Woods er í miklum vandræðum og gamli þjálfarinn hans, Butch Harmon, er til í að hjálpa.

James Hahn sigraði á Riviera
Tryggði sér sinn fysta sigur á PGA-mótaröðinni eftir æsispennandi lokahring þar sem margir af bestu kylfingum heims áttu í miklu basli.

Retief Goosen leiðir með tveimur höggum fyrir lokahringinn á Riviera
Á tvö högg á næsta mann en margir þekktir kylfingar geta gert atlögu að honum í kvöld. Meðal annars Sergio Garcia, Dustin Johnson og Masters meistarinn Bubba Watson sem á titil að verja.

Retief Goosen efstur eftir 36 holur í Kaliforníu
Riviera völlurinn hefur reynst mörgum bestu kylfingum PGA-mótaraðarinnar erfiður en reynsluboltinn Goosen hefur leikið frábært golf hingað til á Northern Trust Open.

Sex kylfingar deila forystunni á Northern Trust Open
Eftir fyrsta hring í Kaliforníu eru reynsluboltarnir Vijay Singh og Retief Goosen á meðal efstu manna en nokkrir sterkir kylfingar áttu erfitt uppdráttar á Riviera vellinum.

Darren Clarke á að verja Ryder-bikarinn fyrir Evrópu
Norður-Írinn kosinn liðsstjóri evrópska liðsins sem hefur unnið Ryder-bikarinn þrisvar sinnum í röð.

Davis Love III verður næsti liðsstjóri Bandaríkjanna
Stýrði bandaríska liðinu í tapinu ótrúlega gegn Evrópu á Medinah 2012.

Brandt Snedeker sigraði á Pebble Beach
Jim Furyk sem leiddi fyrir lokahringinn fann sig ekki í dag og Brandt Snedeker nýtti sér það til fulls. Hefur átt í erfileikum með leik sinn að undanförnu en sigurinn veitir honum stall á meðal þeirra bestu á ný.

Varð háður gosi og hrundi niður heimslistann
Saga írska kylfingsins Peter Lawrie er með hreinum ólíkindum.

Jim Furyk í bílstjórasætinu fyrir lokahringinn á Pebble Beach
Leiðir með einu höggi þegar að 18 holur eru óleiknar eftir gallalausan hring í gær upp á 63 högg. Matt Jones, Nick Watney og Brandt Snedeker eru þó ekki langt undan.

Snedeker og Jones taka forystuna á AT&T National
Margir kylfingar eru um hituna í Kaliforníuríki þegar að tveir hringir eru óleiknir. Nær fyrrum Fed-Ex meistarinn Brandt Snedeker að komast á sigurbraut á ný eftir lélegt gengi að undanförnu?

Mörg góð skor á fyrsta hring á Pebble Beach
AT&T National mótið hófst í dag en J.B. Holmes og Justin Hicks leiða eftir fyrsta hring á átta höggum undir pari. John Daly byrjaði líka vel og er meðal efstu manna ásamt reynsluboltanum Jim Furyk.

Tiger Woods tekur sér enn á ný frí frá golfi
Vonast þó að snúa til baka fljótlega þegar að leikurinn hans og líkamsástand hefur batnað.

Tiger ekki verið í verri stöðu í 18 ár en samt tekjuhæstur
Gæti misst af einu af sínu uppáhaldsmótum í byrjun mars ef hann fer ekki að bæta sig.

Jason Day fagnaði sigri eftir bráðabana
Lokahringurinn á Torrey Pines var hörkuspennandi en margir kylfingar gerðu atlögu að titlinum og skiptust á að taka forystuna. Það var þó Jason Day sem sigraði eftir bráðabanda við þrjá aðra kylfinga en þetta er hans þriðji sigur á PGA-mótaröðinni.

Margir í toppbaráttunni fyrir lokahringinn á Farmers Insurance
Harris English og J.B Holmes leiða með einu höggi en margir kylfingar eru nálægt efstu mönnum og eiga möguleika á sigri í kvöld.

Harris English efstur á Farmers Insurance
Er á tíu höggum undir pari eftir tvo hringi og leiðir með tveimur höggum. Margir af bestu kylfingum heims áttu erfitt uppdráttar á fyrstu tveimur hringjunum og náðu ekki niðurskurðinum.