Måns mættur á markaðinn Sænska poppstjarnan Måns Zelmerlow og breska leikkonan Ciara Zelmerlow standa nú í skilnaði. Þau höfðu verið saman í tíu ár og eiga saman tvö börn. Lífið 17. mars 2025 15:41
Ætlar í stríð við Kim leyfi hún North ekki að rappa á lagi með Diddy Kanye West gaf út lag með dóttur sinni North og Sean „Diddy“ Combs um helgina en rapp North á laginu virðist vera í óþökk Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu West. Búið er að eyða laginu en fyrir útgáfuna sagðist West ætla í stríð við Kim ef hún kæmi í veg fyrir útgáfuna. Lífið 17. mars 2025 10:50
Tom Cruise og Ana de Armas á ferð og flugi Leikarararnir Tom Cruise og Ana de Armas skelltu sér í þyrluferð saman yfir London borg í gær. Erlendir slúðurmiðla hafa birt myndir af þeim saman á flugvellinum þar sem þau virðast vera í stuði. Þrálátur orðrómur er um að rómantík sé í loftinu. Lífið 17. mars 2025 09:15
Börn Hackmans ekki í erfðaskránni en erfa hann samt Þrátt fyrir að börn leikarans Gene Hackman séu ekki nefnd í erfðaskrá hans er útlit fyrir að þau muni fá um áttatíu milljóna dala eigur hans. Erlent 16. mars 2025 09:48
Hittast á laun Tiger Woods og Vanessa Trump eru par en hafa verið að hittast á laun. Þau eru nýbyrjuð að stinga saman nefjum og taka hlutunum af hinni stökustu ró þó það styttist í að alvaran hefjist. Lífið 14. mars 2025 14:26
Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Fyrirsætan Gigi Hadid hefur hingað til haldið ástarlífi sínu utan sviðsljóssins, en í nýju forsíðuviðtali við tímaritið Vogue ræðir hún nú í fyrsta sinn opinberlega um kærasta sinn, leikarann Bradley Cooper. Lífið 12. mars 2025 13:31
Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt Bandaríska kvikmyndastjarnan George Clooney er búinn að lita á sér hárið. Silfurgráa hárið sem einkennt hefur leikarann er horfið en þess í stað hefur hann litað hár sitt brúnt. Aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta þar sem liturinn er einungis til bráðabirgða og er tilkominn vegna hlutverks sem hann fer brátt með á Broadway. Lífið 10. mars 2025 15:03
Slasaðist við tökur í Bretlandi John Goodman slasaðist á mjöðm við tökur á nýrri Hollywood-mynd í Bretlandi í fyrradag. Áverkarnir voru taldir alvarlegir í fyrstu en betur fór en á horfðist. Vonir eru bundnar við að Goodman snúi fljótt aftur til starfa. Lífið 9. mars 2025 10:20
Betsy Arakawa lést viku á undan Gene Hackman Betsy Arakawa, eiginkona leikarans Gene Hackman, er talin hafa látist viku á undan Hackman. Hún lést vegna sjaldgæfs smitsjúkdóms en hann vegna hjartasjúkdóms. Erlent 7. mars 2025 21:52
Sögð vera æf vegna myndanna af Ben Affleck Bandaríska söngkonan Jennifer Lopez er æf yfir myndum sem birst hafa í bandarískum miðlum af fyrrverandi eiginmanni hennar Ben Affleck með fyrrverandi eiginkonu hans Jennifer Garner. Hún upplifir myndirnar sem salt í sárin eftir erfiðan skilnað. Lífið 7. mars 2025 10:03
Mögulega hafi „eins konar ástarsorg“ spilað inn í Réttarmeinafræðingur telur mögulegt að annað hvort hafi bandaríski stórleikarinn Gene Hackman eða eiginkona hans Betsy Arakawa látist vegna streitu við það að sjá hitt þeirra látið. Erlent 6. mars 2025 22:23
Pamela Bach-Hasselhof látin Bandaríska leikkonan Pamela Bach-Hasselhof er látin. Hún fannst látin á heimili sínu í Los Angeles sínu fyrr í dag. Hún var 62 ára gömul. Lífið 6. mars 2025 16:34
Gaseitrun talin ólíkleg þrátt fyrir gasleka Rannsókn gasfyrirtækis á heimili bandaríska stórleikarans Gene Hackman í Santa Fe hefur leitt í ljós að minniháttar gasleki var til staðar frá eldavélarhellu. Þrátt fyrir það er ekki talið að gaslekinn hafi átt þátt í andlátum Hackman og eiginkonu hans, Betsy Arakawa píanóleikara. Erlent 5. mars 2025 00:06
Fer í hart við konuna sem sakaði hann um nauðgun Tónlistarmaðurinn Jay-Z hefur stefnt konu sem fór í mál við hann í haust og hélt því fram að hann hefði nauðgað henni árið 2000 þegar hún var þrettán ára gömul. Seinna dró konan kæru sína til baka. Erlent 4. mars 2025 23:13
Hefndi kossins með kossi Bandaríska leikkonan Halle Berry smellti einum rembingskossi á kollega sinn Adrien Brody á rauða dreglinum fyrir Óskarsverðlaunin í gær. Þar með „hefndi“ hún fyrir það þegar Brody kyssti hana á sömu hátíð fyrir meira en tuttugu árum. Lífið 3. mars 2025 21:18
Enginn nakinn á Óskarnum Stærstu stjörnur leiklistarheimsins skinu skært á rauða dreglinum í gær þegar Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í 97. skipti í Los Angeles. Þær gáfu ekkert eftir í elegansinum og dregillinn minnti að vanda á hátísku hátíð. Tíska og hönnun 3. mars 2025 10:19
Anora sigurvegari á Óskarnum Kvikmyndin Anora fékk flest verðlaun á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór vestanhafs í nótt. Myndin fékk alls fimm verðlaun og var meðal annars valin besta myndin. Þá varð leikstjóri myndarinnar Sean Baker sá fyrsti til að vinna fern verðlaun fyrir sömu myndina. Bíó og sjónvarp 3. mars 2025 05:57
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Óskarsverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í kvöld í 97. sinn. Sannkallaður óskarsverðlaunasérfræðingur sem búsettur er í englanna borg og starfar í bransanum fór yfir helstu verðlaunaflokkana í samtali við fréttastofu og spáði í Hollywood-spilin. Bíó og sjónvarp 2. mars 2025 23:20
Létust líklega tíu dögum fyrir fundinn Rannsakendur í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum telja að bandaríski leikarinn Gene Hackman og Betsy Arakawa eiginkona hans hafi látist þann 17. febrúar á heimili þeirra í Santa Fe, tíu dögum áður en lík þeirra fundust. Erlent 1. mars 2025 12:09
Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Leslie Hackman dóttir stórleikarans Gene Hackman segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu áður en hann fannst látinn. Hún segir ekki hafa merkt neitt undarlegt í samskiptum við föður sinn áður en hann lést. Lífið 28. febrúar 2025 09:38
Lögreglan lýsir dauða Hackman og konu hans sem „grunsamlegum“ Bandaríski leikarinn Gene Hackman og eiginkona hans, píanóleikarinn Betsy Arakawa, höfðu verið látin í einhvern tíma þegar þau fundust í gær. Þá fundust þau í sitthvoru herberginu á heimili sínu í Nýju-Mexíkó. Erlent 27. febrúar 2025 17:31
Katy Perry fer út í geim Stórstjarnan Katy Perry verður hluti áhafnar sögulegs geimflugs Blue Origin, geimflugfélags Jeffs Bezos. Flugið verður sögulegt fyrir þær sakir að um borð í geimflauginni verða eingöngu konur. Lífið 27. febrúar 2025 15:26
Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Bandaríski leikarinn Gene Hackman og eiginkona hans, píanóleikarinn Betsy Arakawa, fundust látin á heimili sínu í Santa Fe í Nýju-Mexíkó í gær. Lífið 27. febrúar 2025 08:36
Michelle Trachtenberg er látin Bandaríska leikkonan Michelle Trachtenberg er látin 39 ára að aldri. Hún fór nýlega í lifrarígræðslu og hafði verið heilsuveil eftir hana. Lífið 26. febrúar 2025 18:11
Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Sérkennilegur misskilningur virðist vera að eiga sér stað í Hollywood nú í aðdraganda Óskarsverðlaunanna. Að minnsta kosti tveir meðlimir Akademíunnar, sem er sá hópur sem kýs um það hver hlýtur Óskarsverðlaunin, virðast ekki með á hreinu hverjir hafa hneppt hnossið áður, og mun það hafa haft áhrif á atkvæði þeirra. Lífið 26. febrúar 2025 17:00
Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hélt nýverið upp á sjö ára afmæli dóttur sinnar og Kanye West, Chicago West, með glæsilegri veislu í kúrekaþema. Kim deildi áður óséðum myndum frá veislunni með fylgjendum sínum á Instagram. Lífið 26. febrúar 2025 16:01
Steinhissa en verður Dumbledore Bandaríski leikarinn John Lithgow mun fara með hlutverk Albus Dumbledore í nýjum Harry Potter þáttum sem nú eru í bígerð. Hann segist hafa orðið steinhissa þegar framleiðendur þáttanna heyrðu í honum vegna hlutverksins. Lífið 26. febrúar 2025 15:32
Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stórstjarnan Pamela Anderson hefur sjaldan skinið skærar en nú og sést það langar leiðir. Hún gaf út heimildarmyndina Pamela á Netflix, fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Last Showgirl og hefur setið fyrir í ýmsum hátískuherferðum ásamt því að sitja í fremstu röð á heitustu tískusýningunum. Lífið 26. febrúar 2025 13:02
Rappar um vímu Kanadíski söngvarinn Justin Bieber rappar um að vera í vímu í nýju myndbandi á samfélagsmiðlinum Instagram svo athygli vekur. Erlendir slúðurmiðlar segja þetta ekki síst áhugavert í ljósi þess að söngvarinn hefur ávallt þvertekið fyrir að nota vímuefni. Lífið 26. febrúar 2025 09:44
Hótaði óprúttnum grínista hálsbroti Bandaríski leikarinn Alec Baldwin hótaði á dögunum meintum grínista hálsbroti er sá síðarnefndi áreitti hann fyrir utan heimili hans í New York og gantaðist með slysið sem varð samstarfskonu leikarans að aldurtila á setti kvikmyndarinnar Rust. Lífið 25. febrúar 2025 14:33