

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Stjarnan vann afar mikilvægan sigur á Þrótti 2-0. Betsy Hasett kom Stjörnunni yfir með afar laglegu marki í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik fékk Stjarnan víti og Gyða Kristín bætti við örðu marki Stjörnunnar og þar við sat.Stjarnan heldur þriðja sætinu og er aðeins tveimur stigum frá Breiðabliki sem er í öðru sæti deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Nökkvi Þeyr Þórisson kom að flestum mörkum í Bestu deild karla í fótbolta á leiktíðinni. Þar á eftir koma Ísak Snær Þorvaldsson og Guðmundur Magnússon. Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað hálft tímabilið þá er Frederik Schram sá markvörður sem hefur komið í veg fyrir flest mörk af markvörðum deildarinnar.
Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, á að hafa borið víurnar í Alex Frey Elísson, leikmann Fram. Var tilboðinu neitað um hæl.
Þrír leikir í Bestu deild kvenna í fótbolta fóru fram í gær, sunnudag. Alls voru 15 mörk skoruð og þau má öll sjá hér að neðan.
Líkt og undanfarin ár heldur WyScout utan um alla tölfræði tengda Bestu deildar karla og kvenna í fótbolta. Þegar tölfræði Bestu deildar karla er skoðuð eru nokkrir hlutir sem koma á óvart, til að mynda að Breiðablik sé með næstflestar langar sendingar í deildinni og að Stjarnan sé aðeins með fjórða lægsta meðalaldurinn.
Í Stúkunni á laugardagskvöld fór Gummi Ben yfir fyrirkomulag úrslitakeppninnar í Bestu deild karla í fótbolta. Verður þetta í fyrsta sinn sem slíkt fyrirkomulag er prófað í efstu deild.
Hannah Tillett lá sárþjáð á grasinu á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga, í tæpar fjórar mínútur í gær áður en liðsfélagar hennar héldu á henni af vellinum. Vonir standa til þess að hún hafi ekki slitið krossband í hné.
Rebekka Sverrisdóttir, fyrirliði KR í knattspyrnu, segir vanta vilja og metnað í umgjörðina hjá félaginu. Metnaðarleysið hafi til að mynda kristallast í því þegar leikmaður meiddist í leik í gær en enginn verið viðbúinn að koma inn á með sjúkrabörur.
Sérfræðingar Stúkunnar gerðu upp tímabilið í Bestu-deild karla í gærkvöldi eftir að hinum hefðbundnu 22 umferðum lauk. Meðal þess sem var á dagskrá var að kynna úrvalslið deildarinnar sem þeri Reynir Leósson og Lárus Orri Sigurðsson settu saman.
Agla María Albersdóttir skoraði tvö marka Blika þegar liðið lagði Aftureldingu að velli með þremur mörkum gegn engu í 16. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld.
Breiðablik fór með sannfærandi 3-0 sigur af hólmi þegar liðið atti kappi við Aftureldingu í 16. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í rigningarsudda á Kópavogsvelli í kvöld.
KR er fallið niður í Lengjudeild eftir tap gegn Selfossi í Bestu deildinni í dag. Lokatölur í miklum marka leik 5-3 gestunum í vil. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Þór/KA fór langt með að halda sér í deildinni með 1-3 sigri á Keflavík. Leikurinn fór rólega af stað en um leið og Þór/KA komst á bragðið fór boltinn að rúlla sem skilaði þremur mörkum. Keflavík minnkaði muninn í 1-3 en nær komust Keflvíkingar ekki og Þór/KA fékk mikilvæg þrjú stig í pokann
Það vakti mikla athygli að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason var ekki í leikmannahópi KR þegar liðið heimsótti Íslands- og bikarmeistara Víkings í Bestu deild karla á sunnudag.
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni Bestu deildar karla í fótbolta fór fram í gær, sunnudag. Alls voru 26 mörk skoruð í leikjunum sex, þar af tólf í Grafarholti þar sem Fram og Keflavík mættust.
Tristan Freyr Ingólfsson, varnarmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á dögunum. Var hann að slíta krossband í annað sinn á jafn mörgum árum.
Ef engar breytingar hefðu verið gerðar á efstu deild karla í knattspyrnu væri Íslandsmótinu nú lokið. Breiðablik væri Íslandsmeistari og FH og ÍA væru á leið niður í Lengjudeildina. Breytingar voru hins vegar gerðar og enn eru eftir fimm umferðir af Bestu-deild karla.
Valskonur gátu komið í það minnsta níu og hálfum fingri á Íslandsmeistarartitilinn með sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn endaði með sannfærandi 0-3 sigri þeirra rauðklæddu.
Fram og Keflavík áttu möguleika á að enda í efri helming Bestu deildar karla en þar sem Stjarnan vann sinn leik gerðist það ekki. Það fór hins vegar svo að Keflavík vann 8-4 í einhverjum ótrúlegasta leik síðari ára í efstu deild. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Íslandsmeistarar Víkings þurftu á sigri að halda þegar liðið tók á móti KR í lokaumferð Bestu-deildar karla áður en úrslitakeppnin tekur við. Víkingur komst í 2-0 en KR kom til baka og jafnaði 2-2 undir blálok leiksins. Mikið högg fyrir Víking sem er átta stigum á eftir toppliði Breiðabliks þegar fimm umferðir eru eftir af mótinu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var þungur á brún eftir tapið fyrir Leikni, 1-2, í fallslag í Bestu deild karla í dag. Skagamenn skoruðu öll þrjú mörk leiksins.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var hreykinn af sínu liði eftir sigurinn á ÍA, 1-2, á Akranesi í dag. Leiknismenn lentu undir en komu til baka og unnu leikinn, þökk sé tveimur sjálfsmörkum Skagamanna.
Leiknir komst upp úr fallsæti Bestu deildar karla með 1-2 sigri á ÍA á Norðurálsvellinum á Akranesi í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Skagamenn skoruðu öll mörk leiksins.
KA gerði góða ferð á Hlíðarenda og vann 1-0 útisigur gegn Val í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark KA á 75.mínútu en Akureyringar sitja nú í 3.sæti deildarinnar og eru jafnir Víkingum að stigum.
„Ég geri ráð fyrir að fyrri hálfleikurinn hafi ekki verið mikil skemmtun. Það var hægt tempó en svo vorum við mjög sterkir í seinni hálfleik og ég er ánægður með liði að hafa klárað þennan leik. ÍBV-liðið er gott lið. Þannig þetta var bara flott,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á ÍBV í dag.
FH-ingar enda 22 leikja deildarkeppni í 11. og næst neðsta sæti eftir tap gegn Stjörnunni í Garðabænum í lokaumferðinni í dag. FH-ingar fara því í neðri hluta úrslitakeppninnar og þurfa að leika einum útileik meira en flest önnur lið. Eiður Smári Guðjonhsen, þjálfari FH, sér eftir þessum auka heimaleik en FH-ingar þurfa að heimsækja ÍBV til Eyja í fyrsta leik úrslitakeppninnar.
Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, vann 3-0 sigur á móti ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Liðið er í kjörstöðu fyrir skiptingu deildarinnar en Víkingur og KA eru átta stigum á eftir Blikum í dag.
Stjarnan endar fyrsta leiktímabil Bestu-deildarinnar í 6. sæti og leikur því í efri hluta úrslitakeppninnar eftir 2-1 sigur á FH í lokaumferð deildarkeppninnar. Á sama tíma enda FH-ingar deildarkeppninna í fallsæti. Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði bæði mörk Garðbæinga í dag.
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni í Bestu deild karla í fótbolta fer fram í dag. Eftir umferð dagsins verður deildinni skipt upp og leikið um Íslandsmeistaratitilinn annars vegar og hvaða lið falla hins vegar. Töluverð spenna er fyrir umferðinni sem verður flautuð á klukkan 14.00.
Tindastóll og FH, topplið Lengjudeildar kvenna í fótbolta gerðu 2-2 jafntefli i kvöld en bæði lið höfðu þegar tryggt sér sæti í Bestu deildinni að ári.