

Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Grískur körfuboltamaður mun hjálpa Tindastólsmönnum í vetur að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn sem Stólarnir misstu til Valsmanna síðasta vor.
Bandaríska körfuboltakonan Cailtin Clark getur varla farið út úr húsi lengur án þess að það hópist að henni fólk enda í dag einn frægasti íþróttamaður Bandaríkjanna.
Myndband með körfuboltagoðsögninni Michael Jordan vakti athygli fyrir meira en tveimur áratugum síðan en fór síðan aftur á flug á dögunum þegar fólk áttaði sig á því hver var þarna með honum.
Gamla körfuboltastjarnan og sjónvarpsmaðurinn Charles Barkley segist hafa gefið eftir háar fjárhæðir til að halda tryggð við TNT sjónvarpsstöðina.
Franski körfuboltamaðurinn Guerschon Yabusele var ein af spútnikstjörnum körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í París en frammistaða hans átti mikinn þátt í að Frakkarnir fóru alla leið í gullleikinn.
Nýkrýndur Ólympíumeistari í körfubolta, Kevin Durant, virðist hafa líkað veran í París svo vel að hann hefur ákveðið að kaupa minnihluta í knattspyrnuliðinu París Saint-Germain.
A'ja Wilson, sem fór á kostum í úrslitaleik Ólympíuleikanna í körfuknattleik kvenna, sparaði ekki stóru orðin í viðtali eftir leik á NBC sjónvarpstöðinni.
Serbinn Nikola Jokic átti alveg hreint ótrúlega Ólympíuleika þegar tölfræðin er skoðuð. Hann leiddi sitt lið í öllum helstu tölfræðiflokkum og var raunar efstur í flestum flokkum einnig heilt yfir meðal allra leikmanna.
Bandaríska kvennalandsliðið í körfubolta vann sín áttundu gullverðlaun á Ólympíuleikunum í röð í dag þegar liðið lagði Frakkland með minnsta mun í spennuleik, 67-66.
Körfuboltamaðurinn Tyrese Haliburton var hluti af sigurliði Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum og fékk að sjálfsögðu gullmedalíu, þrátt fyrir að hafa fengið fá tækifæri á leikunum.
Bogdan Bogdanović, leikmaður Serbíu á Ólympíuleikunum, náði að hrista hressilega upp í fjölmörgum stuðningsmönnum Bandaríkjanna þegar liðin áttust við í undanúrslitum leikanna.
Bandaríkin tryggðu sér fimmta Ólympíugullið í röð í körfuknattleik þegar stjörnum prýtt lið þeirra lagði Frakkland í úrslitaleik í kvöld, 87-98.
Grindvíkingar hafa samið við hina pólsku Katarzyna Trzeciak um að leika með liðinu í Bónus-deildinni á komandi tímabili en Trzeciak kemur til Grindvíkinga frá Stjörnunni.
Bandaríska kvennalandsliðið í körfubolta er komið í úrslitaleik Ólympíuleikanna eftir nokkuð þægilegan sigur á Ástralíu, 85-64.
Stórleikur Steph Curry kom í veg fyrir sigur Serba gegn Bandaríkjamönnum í undanúrslitum körfuboltans á Ólympíuleikunum. Serbar leiddu nær allan tímann en gáfu eftir undir lokin.
Frakkland er komið í úrslitaleikinn í körfubolta á Ólympíuleikunum í París eftir sigur á Þjóðverjum í spennuleik. Í kvöld ræðst hvort það verða Bandaríkjamenn eða Serbar sem mæta Frökkum í úrslitum.
Körfuboltamaðurinn Steven Adams hefur greint frá því hvað hann gerði til að losna við ruslatal Kevins Garnett, eins þekktasta kjaftasksins í sögu NBA.
Körfuboltakappinn Kevin Durant skráði sig í sögubækurnar í gær er hann varð stigahæsti leikmaður Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum frá upphafi bæði í karla og kvennaflokki.
Bandaríska körfuboltalandsliðið tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum körfuboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í París er liðið vann afar öruggan 35 stiga sigur gegn Brasilíu.
Serbíu tókst að tryggja sig áfram í undanúrslit á Ólympíuleikunum með 95-90 sigri í framlengdum leik gegn Ástralíu.
Steve Kerr, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í körfubolta sem nú stendur í ströngu á Ólympíuleikunum í París, fékk gagnrýni úr óvæntri átt; frá leikmanni sínum í Golden State Warriors.
Bandarísku körfuboltalandsliðið eru greinilega of góð með sig til að gista í Ólympíuþorpinu í París eins og aðrir íþróttamenn á leikunum. Í stað þess eru leikmenn liðsins á lúxushóteli í París.
Bandaríska körfuboltalandsliðið hélt áfram sigurgöngu sinni á Ólympíuleikunum í París með 21 stigs sigri á Púertó Ríkó, 104-83.
Ný stytta af bandaríska körfuboltamanninum Kobe Bryant og dóttur hans Gianna „Gigi“ Bryant var afhjúpuð við einkaathöfn í Los Angeles í gær. Hún verður síðan fyrst aðgengileg almenningi í dag.
LeBron James er einn besti körfuboltamaður allra tíma. Hann er hins vegar ekki merkilegur dansari, allavega ef marka má dóttur hans.
Dennis Schröder og Franz Wagner fóru mikinn þegar heimsmeistarar Þýskalands unnu heimalið Frakklands, 71-85, í körfuboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París í kvöld.
Höttur hefur ráðið Spánverjann Salva Guardia sem aðstoðarþjálfara karlaliðs félagsins í körfubolta.
Sterkt lið Spánar kemst ekki í átta liða úrslit í körfuboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París. Þetta var ljóst eftir tap fyrir Kanada í dag, 88-85.
Körfuboltalið Grikklands forðaðist það að vera sent heim af Ólympíuleikunum með 77-71 sigri gegn Ástralíu.
Á morgun verður stytta af Kobe Bryant og dóttur hans, Giönnu (Gigi), afhjúpuð fyrir utan heimavöll Los Angeles Lakers, Crypto.com Arena.