
Líkamsárás, innbrot og vesen á stigagöngum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum málum í gærkvöldi og nótt en í mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða einstaklinga eða aðra sem voru að vera til vandræða.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum málum í gærkvöldi og nótt en í mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða einstaklinga eða aðra sem voru að vera til vandræða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir 30 daga skilorðsbundinn dóm yfir lögreglumanni vegna líkamsárásar ekki eiga að rýra traust fólks til lögreglu. Málið hafi verið rannsakað að frumkvæði embættisins.
Vegfarendur í Þórsmörk gengu fram á látinn mann í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið en ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri og segir alvarlega þróun eiga sér stað norður á landi.
Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að láta af myndbirtingum karlmönnum á samélagsmiðlum sem það telur tengjast máli manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfjarðarbæ. Málið er í forgangi og telst enn óupplýst.
Bíl var ekið á verslun Piknik í Kópavogi nú sídegis. Starfsmaður segir verslunina hafa sloppið vel en bíllinn, sem ekið var á verslunina, er illa farinn.
Lögreglunni barst 568 tilkynningar á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrstu þrjá mánuði ársins sem gerir að meðaltali rúmlega sex tilkynningar á dag. Jafnframt hefur beiðnum um nálgunarbann fjölgað á þessu ári en þær eru 33 talsins fyrir sama tímabil.
Ungur lögreglunemi hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Í dóminum er því lýst hvernig hann eltist við brotaþola um miðbæ Reykjavíkur áður en brotaþoli stöðvaði og baðst vægðar. Þá beitti lögregluneminn piparúða ítrekað á manninn.
Lögreglan segir að manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfirði sé enn leitað og málið sé óupplýst þrátt fyrir að karlmaður hafi verið handtekinn í tengslum við það um helgina.
Lögreglumaður hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar bifreiðar sem ók á karlmann um tvítugt á rafhlaupahjóli merktu Hopp á gangbraut á gatnamótum Akurvalla og Burknavalla í Hafnarfirði á milli klukkan tíu og ellefu í morgun.
Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms yfir litháenskum karlmanni sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í Kiðjabergi í apríl. Maðurinn var því ekki úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er þó enn í haldi en hann afplánar nú eldri fangelsisdómi.
Lögreglan á Vestfjörðum segist enn engu nær varðandi dánarorsök sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi á Bolungarvík í síðustu viku. Von er á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku.
Hópur ungmenna réðust á starfsmann veitingastaðar í Mosfellsbæ í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og að barnavernd hafi verið upplýst um málið.
Lögregla hefur til rannsóknar íkveikju í iðnaðarbili við Dofrahellu í Hafnarfirði aðfaranótt þriðjudags. Tívolíbombu var kastað inn um glugga á iðnaðarbilinu þar sem gin er bruggað í miklu magni. Mildi þykir að ekki fór verr.
Lögregla rannsakar nú mál um tuttugu útlendinga sem fóru með sendingar fyrir fyrirtækið Wolt án þess að vera með atvinnuleyfi á Íslandi. Sérfræðingur hjá ASÍ segir ábyrgð fyrirtækisins mikla í málinu.
Mótmælin á vegum félagsins Íslands-Palestína í morgun eru þau hörðustu á síðari árum að sögn lögreglu. Mótmælendur segja lögreglu hafa gengið fram af hörku og ofbeldi og sýnt einbeittan brotavilja. Lögregla segist ekki hafa átt annarra kosta völ og fullyrðir að verklagsreglum hafi verið fylgt. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu muni fá aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum.
Um tuttugu manns sem afhent hafa sendingar á vegum Wolt eiga yfir höfði sér kæru fyrir að starfa án atvinnuréttinda hér á landi. Lögreglan segir ábyrgð atvinnurekenda í málum sem þessa töluverða.
Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni.
Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum.
Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum.
Enn stendur yfir leit á vettvangi við Fnjóská vestast í Dalsmynni að manninum sem féll í ána í gærkvöldi. Þegar maðurinn hvarf ofan í ána hafði hann verið við hana með þremur félögum sínum. Að leitinni koma nú sérfræðingar í straumvatnsleit og búnaði.
Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum.
Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum líst illa á eldgosið nærri Sundhnúki. Hraunið, sem flætt hefur yfir bæði Grindavíkurveg og Nesveg liggi ofan í görðunum og innviðir séu bersýnilega í hættu.
Aðalfundi félagsins Menningartengsl Íslands og Rússlands, sem átti að fara fram í dag, var frestað eftir að til stimpinga kom við húsnæði félagsins og lögregla var kölluð til.
Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést.
Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár.
Við handtöku stýrimanns á fraktskipinu Longdawn, sem talið er að hafa hvolft strandveiðibátnum Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí, var tekið öndunarsýni af honum og það reyndist jákvætt fyrir áfengi. Þá reyndist sýni einnig jákvætt fyrir áhrifum kannabiss og slævandi lyfja.