Drogba: Það hjálpar mér að fá að spila Didier Drogba var maður kvöldsins í Meistaradeildinni því hann skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja í 3-0 sigri Chelsea á Valencia. Chelsea tryggði sér ekki bara sæti í sextán liða úrslitunum heldur einnig sigur í riðlinum. Fótbolti 6. desember 2011 22:32
Barcelona jafnaði markamet Manchester United í kvöld Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, leyfði sér að hvíla lykilleikmenn í leiknum á móti BATE Borisov í Meistaradeildinni í kvöld en það kom ekki að sök því Barcelona vann 4-0 sigur. Fótbolti 6. desember 2011 22:20
Í beinni: Olympiakos - Arsenal Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Olympiakos og Arsenal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 6. desember 2011 19:15
Villas-Boas: Svöruðum gagnrýninni í kvöld Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, svaraði gagnrýninni í kvöld með því að stýra sínu liði inn í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigri á spænska liðinu Valencia. Fótbolti 6. desember 2011 19:15
Bein sjónvarpsútsending: Dortmund - Marseille Vísir er með beina sjónvarpsútsendingu frá viðureign Dortmund og Marseille í F-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 6. desember 2011 19:00
Chelsea stóðst pressuna og vann Valencia | Mörk kvöldsins Chelsea tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og sigur í sínum riðli með 3-0 sigri á spænska liðinu Valenicia á Brúnni í kvöld. Marseille og Zenit St Petersburg komust líka áfram í sextán liða úrslitin í kvöld. Didier Drogba var maður leiksins í kvöld en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 6. desember 2011 19:00
Dortmund - Marseille í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi Lesendur Vísis eiga von á góðu í kvöld því að viðureign Borussia Dortmund og Marseille í Meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni sjónvarpsútsendingu á vefnum í kvöld. Fótbolti 6. desember 2011 15:30
Ferguson lærir af reynslunni Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri segist ekki geta vanmetið riðlakeppni Meistaradeildarinnar í framtíðinni í ljósi þess að auðugir fjárfestar fjárfesti í auknum mæli í liðum annarra landa. Sport 4. desember 2011 18:45
Platini vill færa Meistaradeildina til að geta spilað HM í Katar um vetur Michel Platini, forseti UEFA, er til í að gera sitt til þess að Heimsmeistarakeppnin í Katar árið 2022 verði spiluð um vetur í staðinn fyrir í sjóðandi eyðurmerkurhita í júní. Til þess þarf að færa til keppnistímabilið í Evrópu og Platini sættir sig við það. Fótbolti 3. desember 2011 19:30
Maradona: Klúðraði Pele kannski lyfjaskammtinum sínum Fjölmiðlarifildi Diego Maradona og Pele eru heimsfræg og nú er eitt í gangi í tengslum við furðulegar yfirlýsingar Pele um að brasilíski leikmaðurinn Neymar væri mun betri en Argentínumaðurinn Lionel Messi. Fótbolti 2. desember 2011 16:45
Pele: Neymar er mun betri en Messi Brasilíumaðurinn Pele heldur áfram að tala niður Argentínumanninn Lionel Messi sem flestir nema kannski hann telja Messi vera besta knattspyrnumann heims. Fótbolti 1. desember 2011 17:30
Fabio Capello: Lét Zlatan að horfa á myndband með Van Basten Fabio Capello, núverandi landsliðsþjálfari Englendinga, var þjálfari Juventus árið 2004 þegar liðið keypti sænska framherjann Zlatan Ibrahimović á sextrán milljónir evra frá Ajax. Fótbolti 1. desember 2011 16:45
Cruyff: Xavi á að fá Gullboltann frekar en Messi Johan Cruyff, fyrrum leikmaður og þjálfari Barcelona og goðsögn innan Katalóníufélagsins, vill frekar sjá Xavi fá Gullbolta FIFA í ár en að Lionel Messi vinni verðlaunin einu sinni enn. Fótbolti 1. desember 2011 16:00
Þetta eru 55 bestu fótboltamenn í heimi Alþjóðaknattspyrnsambandið, FIFA, hefur gefið það út hvaða 55 leikmenn koma til greina í heimslið sambandsins fyrir árið 2011. FIFA mun síðan tilkynna það 9. janúar næstkomandi hvaða ellefu leikmenn komast í úrvalslið ársins. FifPro, sem eru regnhlífarsamtök atvinnuknattspyrnumanna, stendur fyrir kjörinu í samstarfi við FIFA. Fótbolti 1. desember 2011 14:45
Kaka vill ekki fara frá Real Madrid Brasilíumaðurinn Kaka hefur verið orðaður við franska liðið Paris Saint-Germain að undanförnu en spænska blaðið hefur það eftir manni innan herbúða Kaka að leikmaðurinn vilji ekki fara frá Real Madrid. Fótbolti 30. nóvember 2011 17:30
AC Milan mun bara reyna að fá Tevez á láni Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, viðurkenndi það í viðtali við ítalska stórblaðið Gazetta dello Sport að ítalska félagið muni ekki geta keypt Carlos Tevez frá Manchester City. Fótbolti 28. nóvember 2011 13:00
Mancini: Ekki nógu góðir til að vinna Meistaradeildina Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur að því virðist misst trúna á sitt lið í Meistaradeildinni en City-menn þurfa að hafa heppnina með sér ætli þeir sér að komast áfram í sextán liða úrslitin. Fótbolti 25. nóvember 2011 22:30
Carlos Tevez: Ég yrði ánægður að komast til Ítalíu Carlos Tevez er spenntur fyrir því að spila með ítalska liðinu AC Milan ef marka má nýjustu yfirlýsingu umboðsmanns hans Kia Joorabchian en sá umdeildi maður var í viðtali á heimasíðunni Football Italia í dag. Enski boltinn 25. nóvember 2011 18:00
Villas-Boas: Það er til svokallaður Fergie-tími í leikjum Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, gefur ekki mikið fyrir þær fullyrðingar að hann þurfi hjálp í starfi sínu á Stamford Bridge en Chelsea-liðið hefur tapað fjórum af sex síðustu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni. Enski boltinn 25. nóvember 2011 17:20
Petr Cech: Ekki kenna Villas-Boas um þetta Petr Cech, markvörður Chelsea, hefur komið stjóra sínum, Andre Villas-Boas, til varnar en Chelsea-liðið tapaði í fjórða sinn í sex leikjum í deild og Meistaradeild í Leverkusen í gær. Fótbolti 24. nóvember 2011 18:00
Villa-Boas: Ensku liðin eiga erfitt í Meistaradeildinni Pressan á Andre Villa-Boas, þjálfara Chelsea, er orðinn enn meiri eftir 2-1 tap á móti Bayer Leverkusen í Þýskalandi í kvöld en Chelsea-liðið hefur þar með tapað fjórum af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni: Fótbolti 23. nóvember 2011 22:45
Van Persie skaut Arsenal áfram í 16 liða úrslitin - Chelsea tapaði Robin van Persie skoraði bæði mörk Arsenal í 2-1 sigri á þýska liðinu Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld en Arsenal var eitt af þremur liðum sem komust áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:15
Alex Song: Ég vona að Van Persie meiðist ekki Alex Song og félagar í Arsenal tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og sigur í sínum riðli með því að vinna 2-1 sigur á Borussia Dortmund í kvöld. Song lagði upp fyrra mark Robin van Persie en hollenski framherjinn skoraði bæði mörkin. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Michael Ballack: Chelsea á enn góða möguleika Michael Ballack fagnaði sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld ásamt félögum sínum í Bayer Leverkusen eftir dramatískan 2-1 sigur á gömlu félögum hans í Chelsea. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins en Chelsea komst yfir í byrjun seinni hálfleiks. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Í beinni: AC Milan - Barcelona Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign AC Milan og Barcelona í H-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Götze verður ekki seldur í janúar Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund, hefur ítrekað í aðdraganda leiksins gegn Arsenal að ungstirnið Mario Götze sé ekki til sölu. Fótbolti 23. nóvember 2011 16:45
Nani: Við óttumst ekki stóru liðin Jafnteflið gegn Benfica í gær gerir það að verkum að Man. Utd er ekki öruggt um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það sem meira er þá mun liðið væntanlega enda í öðru sæti riðilsins ef það á annað borð kemst áfram. Fótbolti 23. nóvember 2011 10:00
Spilla þýsku liðin fyrir Lundúnaliðunum? Mest spennandi leikur kvöldsins í Meistaradeildinni verður ekki í Mílanó þar sem stórliðin AC Milan og Barcelona mætast heldur í Leverkusen þar sem Chelsea og Bayer Leverkusen geta bæði tryggt sér sæti í 16 liða úrslitunum. Fótbolti 23. nóvember 2011 06:00
Mancini: Við áttum ekki skilið að tapa í kvöld Roberto Mancini, stjóri Manchester City, sá sína menn tapa 2-1 á móti Napoli í Meistaradeildinni í kvöld og gera með því nánast út um möguleika sína á því að komast áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Napoli er nú með stigi meira en enska liðið og nægir sigur á botnliði Villarreal í lokaumferðinni til þess að komast áfram á kostnað Mancini og félaga. Fótbolti 22. nóvember 2011 22:40
Ferguson: Fengum á okkur furðuleg mörk Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ánægður með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 2-2 jafntefli á móti Benfica á Old Trafford í Meistaradeildinni í kvöld. Jafnteflið nægði Benfica til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum en United þarf að fara til Sviss og mæta Basel í hreinum úrslitaleik um sæti í sextán liða úrslitunum. Fótbolti 22. nóvember 2011 22:31