Ólæti á pöllunum í Róm Óeirðir brutust út á áhorfendapöllunum á Ólympíuleikvanginum í Róm eftir að Paul Scholes var rekinn af velli í leik Roma og Manchester United. Stuðningsmenn liðanna skutu flugeldum á milli sín og að lokum réðust Rómverjarnir að ensku stuðningsmönnunum. Lögregla blandaði sér í átökin og mátti sjá nokkur blóðug andlit eftir að gæslumenn náðu að róa stuðningsmennina niður. Fótbolti 4. apríl 2007 19:53
Ensku liðin undir í hálfleik Chelsea og Manchester United eru undir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureignunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeildinni. Chelsea er 1-0 undir á heimavelli gegn Valencia þar sem Silva skoraði á 30. mínútu og Manchester United er í hvað verri málum í Róm þar sem heimamenn hafi yfir 1-0 með marki Taddei skömmu fyrir hlé. Þá var Paul Scholes vikið af leikvelli eftir að hann fékk sitt annað gula spjald og gestirnir því manni færri. Fótbolti 4. apríl 2007 19:30
Solskjær í byrjunarliði United Leikur Roma og Manchester United verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 18:30. Ole Gunnar Solskjær er í byrjunarliði enska liðsins og þeir Louis Saha og Darren Fletcher eru óvænt á varamannabekknum. Fótbolti 4. apríl 2007 17:59
Van Buyten: Milan er betra á útivöllum Belgíski landsliðsmaðurinn Daniel van Buyten var hetja Bayern Munchen í gær þegar liðið náði fræknu 2-2 jafntefli við AC Milan á útivelli í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Van Buyten skoraði bæði mörk þýska liðsins og kom því í vænlega stöðu fyrir síðari leikinn á heimavelli. Fótbolti 4. apríl 2007 16:30
Kromkamp: Þetta er búið Jan Kromkamp, leikmaður PSV Eindhoven, viðurkennir að einvígið við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sé þegar búið þó liðin eigi eftir að mætast öðru sinni á Anfield í Liverpool. Enska liðið vann öruggan sigur í fyrri leiknum í Hollandi í gærkvöld, 3-0. Enski boltinn 4. apríl 2007 16:00
Giggs: Vonbrigði ef við vinnum ekki Meistaradeildina Vængmaðurinn Ryan Giggs hjá Manchester United segir að allt annað en að vinna Meistaradeildina í ár yrðu vonbrigði fyrir félagið. Giggs er einn sigursælasti knattspyrnumaður í sögu Manchester United og vill ólmur bæta enn einum titlinum í safnið í vor. Fótbolti 4. apríl 2007 15:09
Edu: Við erum ekki hræddir við Chelsea Brasilíski miðjumaðurinn Edu hjá Valencia, sem áður lék í fjögur ár með Arsenal, segir spænska liðið alls ekki hrætt við Chelsea fyrir leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld. Edu er meiddur og getur ekki tekið þátt í leiknum, sem sýndur verður beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Fótbolti 4. apríl 2007 12:02
Ferguson: Við verðum að skora á útivelli Sir Alex Ferguson segir að hans menn í Manchester United verði nauðsynlega að ná að skora á útivelli í kvöld þegar þeir mæta Roma í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Róm. Fótbolti 4. apríl 2007 11:55
Borgarstjórinn í Róm ósáttur við hræðsluáróður Man. Utd Borgarstjórinn í Róm, Walter Veltroni, er langt frá því að vera sáttur við forráðamenn Manchester United. Ástæðan er að enska félagið varaði stuðningsmenn sína við því að vera á helstu ferðamannastöðunum í Róm þar sem þeir ættu á hættu að vera lamdir af öfgafullum stuðningsmönnum Rómarliðsins. Fótbolti 4. apríl 2007 00:01
Aurelio er með slitna hásin Fabio Aurelio, leikmaður Liverpool, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið á tímabilinu. Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum við PSV í Hollandi í kvöld og var honum skipt sárþjáðum af velli. Grunur lék strax á um að hann væri með slitna hásin og sá grunur hefur nú verið staðfestur. Þetta þýðir væntanlega að Brasilíumaðurinn verður frá keppni eitthvað fram á næstu leiktíð. Fótbolti 3. apríl 2007 22:06
Hargreaves: Við erum í betri stöðu Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen sagði sína menn svekkta með vítaspyrnudóminn sem færði AC Milan annað markið í 2-2 jafntefli liðanna í kvöld. Hann segir þýska liðið þó klárlega í vænlegri stöðu fyrir síðari leikinn í Munchen. Fótbolti 3. apríl 2007 21:44
Crouch: Við erum að toppa á réttum tíma Peter Crouch skoraði þriðja og síðasta mark Liverpool í kvöld þegar liðið burstaði PSV Eindhoven 3-0 í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í mjög vænlega stöðu fyrir síðari leikinn. Crouch sagði sína menn hafa virkað mjög ferska í kvöld og telur liðið vera að toppa á hárréttum tíma, en fyrirliðinn Steven Gerrard vill ekki fara að hugsa um næstu umferðina strax. Fótbolti 3. apríl 2007 21:37
Dramatík í Mílanó AC Milan og Bayern Munchen skildu jöfn 2-2 í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Daniel van Buyten sem var hetja gestanna þegar hann skoraði jöfnunarmark liðsins nokkrum sekúndum áður en flautað var af. Hann skoraði bæði mörk þýska liðsins í kvöld eftir að Pirlo og Kaka höfðu tvisvar komið Milan í vænlega stöðu. Fótbolti 3. apríl 2007 20:37
Auðveldur sigur Liverpool á PSV Liverpool er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir fádæma öruggan 3-0 útisigur á hollenska liðinu PSV Eindhoven í kvöld. Steven Gerrard, John Arne Riise og Peter Crouch skoruðu mörk enska liðsins og var sigurinn aldrei í hættu. Síðari leikur liðanna á Anfield ætti því að vera formsatriði fyrir Liverpool eftir þennan frábæra sigur í kvöld. Fótbolti 3. apríl 2007 20:31
Kaka kemur Milan yfir á ný Brasilíski miðjumaðurinn Kaka er búinn að koma AC Milan yfir á ný gegn Bayern 2-1 í leik liðanna á San Siro. Markið var það sjöunda hjá Kaka í Meistaradeildinni í vetur, en það skoraði hann úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Vítaspyrnudómurinn var afar strangur og hætt við að Þjóðverjarnir eigi eftir að láta í sér heyra eftir leikinn, enda óttuðust þeir mjög reynsluleysi rússneska dómarans fyrir viðureignina í kvöld. Fótbolti 3. apríl 2007 20:24
Bayern jafnar í Mílanó Bayern Munchen er búið að jafna metin í 1-1 gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það var Daniel van Buyten sem skoraði þetta gríðarlega þýðingarmikla mark fyrir þýska liðið og ljóst að heimamenn verða að sækja stíft síðustu 10 mínúturnar í leiknum. Fótbolti 3. apríl 2007 20:21
Crouch klárar dæmið fyrir Liverpool Liverpool er komið í 3-0 gegn PSV í Meistaradeildinni. Markið skoraði Peter Crouch með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Steve Finnan frá hægri og nú er útlitið orðið mjög dökkt hjá hollenska liðinu, sem á útileikinn eftir á Anfield. Markið kom á 63. mínútu, en staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 1-0 fyrir Milan. Fótbolti 3. apríl 2007 20:10
Þrumufleygur frá Riise - Liverpool komið í 2-0 Norðmaðurinn John Arne Riise hefur komið Liverpool í 2-0 gegn PSV í Hollandi. Markið kom í upphafi síðari hálfleiks og var þar á ferðinni dæmigert mark fyrir bakvörðinn knáa - bylmingsskot af löngu færi í bláhornið. Fótbolti 3. apríl 2007 19:50
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Liverpool hefur yfir 1-0 á útvelli gegn PSV Eindhoven með marki Steven Gerrard og Andrea Pirlo kom AC Milan í 1-0 gegn Bayern Munchen í Mílanó. Leikirnir eru sýndir beint á rásum Sýnar. Fótbolti 3. apríl 2007 19:30
Pirlo kemur Milan yfir Andrea Pirlo hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Pirlo skoraði með góðum skalla á 40. mínútu, en skömmu áður hefði Milan líklega átt að fá vítaspyrnu þegar Kaka var brugðið í teignum. Fótbolti 3. apríl 2007 19:26
Mourinho: Við erum hættir að spreða Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að það sé liðin tíð að liðið spreði milljörðum í leikmenn eins og tíðkaðist fyrr í stjórnartíð hans. Stjórinn segir að einmitt þess vegna muni félagið ekki kaupa spænska framherjann David Villa frá Valencia í sumar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram. Enski boltinn 3. apríl 2007 19:15
Gerrard kemur Liverpool yfir Steven Gerrard er búinn að koma Liverpool í 1-0 gegn PSV í Hollandi. Hann skoraði með skalla eftir laglega fyrirgjöf frá Steve Finnan eftir um 27 mínútur. Staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 0-0. Báðir leikir eru í beinni útsendingu á rásum Sýnar, en áskrifendur VefTV geta séð leik Liverpool í beinni útsendingu hér á Vísi. Fótbolti 3. apríl 2007 19:13
Þrjár breytingar á liði Liverpool Rafa Benitez hefur gert þrjár breytingar á byrjunarliði Liverpool sem sækir PSV heim í Meistaradeildinni í kvöld. Alvaro Arbeloa, Jermaine Pennant og Mark Gonzalez detta út úr liðinu og í stað þeirra koma inn bakverðirnir John Arne Rise, Steve Finnan og framherjinn Dirk Kuyt. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 3. apríl 2007 18:18
Ferguson: Við verðum að stöðva Totti Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að hans menn verði að finna leið til að halda aftur af Francesco Totti ef þeir ætli sér að leggja Roma í Meistaradeildinni annað kvöld. Þetta er fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitunum og verður hann að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Fótbolti 3. apríl 2007 17:11
Stórveldin slást í beinni á Sýn Extra Evrópustórveldin AC Milan og Bayern Munchen mætast í kvöld í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á San Siro í Mílanó. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. Þetta eru tvö af sigursælustu liðum Evrópuknattspyrnunnar og hafa unnið titilinn tíu sínum samtals. Fótbolti 3. apríl 2007 12:48
PSV - Liverpool í beinni á Sýn í kvöld Fyrri leikur PSV Eindhoven og Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 18:30. Þetta verður þriðja viðureign liðanna í vetur þar sem þau léku saman í riðlakeppninni. Liverpool ætti að vera klárt í slaginn eftir frábæran sigur á Arsenal um helgina, en hollenska liðinu hefur ekki gengið sérlega vel í deildinni undanfarið. Fótbolti 3. apríl 2007 12:39
Cole stefnir á endurkomu á miðvikudaginn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea hefur sett stefnuna á að vera með liði sínu á ný í Meistaradeildarleiknum gegn Valencia á miðvikudagskvöldið. Cole hefur verið frá keppni í fjóra mánuði og vonast til að fá að spila nokkrar mínútur sem varamaður í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitunum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra. Fótbolti 2. apríl 2007 20:20
Rafa: Vanmetum ekki PSV Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til leikmanna sinna að láta ekki blekkjast af slöku gengi PSV Eindhoven í hollensku deildinni undanfarið. Liverpool sækir PSV heim í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Fótbolti 2. apríl 2007 16:45
Villa: Mitt hlutverk að nýta færin Spænski landsliðsframherjinn David Villa hjá Valencia segir að hann og hans menn séu meira en klárir í slaginn við Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Fótbolti 2. apríl 2007 15:23
Rummenigge ósáttur við dómaraval Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, hefur lýst yfir áhyggjum sínum í kjölfar þess að lítt reyndur rússneskur dómari var settur á leik liðsins gegn AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinna. Rummenigge segir rússneska dómara ekki hafa reynst liði sínu vel í keppninni til þessa. Fótbolti 2. apríl 2007 14:59