Frank að taka við Detroit Pistons Samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar ætlar Detroit Pistons að bjóða Lawrence Frank þjálfarastöðu félagsins en þjálfarastaðan hefur verið laus í rúman mánuð eftir að John Kuester var rekinn. Körfubolti 22. júlí 2011 13:15
Kobe í viðræðum við Besiktas Tyrkneska félagið Besiktas er í viðræðum við umboðsmenn Kobe Bryant en Bryant er opinn fyrir því að spila í Evrópu á meðan það er verkbann í NBA-deildinni. Körfubolti 21. júlí 2011 17:45
Shaq móðgar Chris Bosh í fyrsta sjónvarpsinnslaginu Frumraun Shaquille O´Neal sem NBA-sérfræðings í sjónvarpi hefur vakið óskipta athygli. Í fyrsta þættinum talaði Shaq um stjörnurnar tvær hjá Miami en ekki stjörnurnar þrjár. Shaq setur Chris Bosh ekki í sama hóp og LeBron James og Dwayne Wade. Körfubolti 20. júlí 2011 20:15
Ming leggur skóna á hilluna Stærsta íþróttastjarna Kínverja, Yao Ming, hefur tilkynnt að hann sé hættur í körfubolta. Þrálát meiðsli gerðu það að verkum að Ming neyðist til þess að leggja skóna á hilluna. Körfubolti 20. júlí 2011 14:00
Sumir eru bjartsýnir - NBA gefur út leikjadagskránna fyrir næsta tímabil Forráðamenn NBA-deildarinnar gáfu í kvöld út leikjadagskrána fyrir tímabilið 2011-2012 þrátt fyrir að allt bendi til þess að verkfall komi í veg fyrir að leikirnir fari yfir höfuð fram. Það hefur lítið gengið í samningaviðræðum eigenda og leikmannasamtaka NBA-deildarinnar og það er því ólíklegt að fyrrnefnd leikjadagskrá muni halda í óbreyttri mynd. Körfubolti 19. júlí 2011 22:00
Odom farþegi í bíl sem lenti í árekstri Lamar Odom, framherji Los Angeles Lakers, var farþegi í bíl sem keyrði á mótorhjól og gangandi vegfaranda í New York síðasta fimmtudag. Körfubolti 18. júlí 2011 23:30
Howard íhugar að fara til Kína Leikmenn NBA-deildarinnar eru margir farnir að velta fyrir sér hvar þeir eigi að spila körfubolta í vetur en það er verkbann í NBA-deildinni. Eins og staðan er núna verður ekkert spilað í deildinni í vetur. Körfubolti 18. júlí 2011 14:15
Aguero tekur ákvörðun í vikunni Argentínumaðurinn Sergio Aguero mun taka ákvörðun um framtíð sína í vikunni. Aguero hefur verið upptekinn með Argentínu á Copa America en þar sem Argentína er úr leik getur leikmaðurinn farið að vinna í sínum málum. Fótbolti 18. júlí 2011 12:45
Durant útilokar ekki að leika utan Bandaríkjanna í verkbanninu Kevin Durant, leikmaður Oklahoma City Thunders, útilokar ekki að hann muni leika í annarri deild ef kemur til verkbanns í NBA-deildinni í byrjun næsta tímabils. Körfubolti 17. júlí 2011 12:30
Dirk Nowitzki valinn íþróttamaður ársins af ESPN NBA leikmaðurinn, Dirk Nowitzki , fékk í síðustu viku afhent virtu ESPY verðlaunin fyrir frammistöðu sína á tímabilinu með Dallas Mavericks, en Dallas varð NBA-meistari og Nowitzki var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins gegn Miami Heat. Körfubolti 16. júlí 2011 12:30
Ibaka fær spænskan ríkisborgararétt Serge Ibaka, framherji Oklahoma Thunder, hefur fengið spænskan ríkisborgararétt og mun hjálpa Spánverjum að verja Evrópumeistaratitil sinn í sumar. Körfubolti 15. júlí 2011 21:15
Shaq verður með Barkley í sjónvarpinu Shaquille O´Neal ætlar ekki að sitja auðum höndum næsta vetur þó svo skórnir séu farnir upp í hilluna góðu. Shaq er búinn að skrifa undir samning við TNT og verður með þeim Charles Barkley og Kenny Smith í þættinum Inside the NBA. Körfubolti 14. júlí 2011 20:00
Rambis rekinn frá Minnesota NBA-liðið Minnesota Timberwolves er búið að reka þjálfara félagsins, Kurt Rambis, sem hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár. Körfubolti 12. júlí 2011 20:45
Óvíst hvort Yao Ming sé hættur Umboðsmaður NBA-leikmannsins Yao Ming, John Huizinga, vildi ekki staðfesta við fjölmiðla ytra að leikmaðurinn væri búinn að leggja skónna á hilluna. Körfubolti 10. júlí 2011 23:30
Yao Ming leggur skóna á hilluna Kínverski körfuknattleiksmaðurinn Yao Ming hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ming hefur glímt við erfið meiðsli undanfarið og missti af nánast öllu síðasta tímabili hjá Houston Rockets í NBA deildinni. Körfubolti 10. júlí 2011 10:30
Kobe gæti farið til Tyrklands Svo gæti farið að fjölmargir leikmenn NBA-deildarinnar spili í Evrópu í vetur. Það er nefnilega verkbann í NBA-deildinni sem stendur og ef það ílengist munu margir fara til Evrópu í millitíðinni. Körfubolti 8. júlí 2011 18:30
Real Madrid með risatilboð í Fernandez Spænski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Rudy Fernandez, sem nýverið fór til meistaralið Dallas Mavericks í NBA deildinni í leikmannaskiptum gæti staldrað stutt við í Dallas ef marka má fregnir spænskra fjölmiðla. Fernandez hefur fengið risatilboð frá Real Madrid í heimalandinu og ef af þessu verður yrði Fernandez tekjuhæsti leikmaður spænsku deildarinnar frá upphafi. Körfubolti 4. júlí 2011 16:45
Kobe sagður hafa farið í aðgerð í Þýskalandi Los Angeles Times greinir frá því í dag að körfuboltamaðurinn Kobe Bryant hafi farið í aðgerð í Þýskalandi til þess að styrkja á sér hægra hnéð. Körfubolti 2. júlí 2011 20:30
Fyrrum leikmaður Jazz handtekinn með fullt hús af kannabisplöntum Lögreglan í Púerto Ríkó hefur handtekið Jose Ortiz, fyrrum leikmann NBA-liðsins Utah Jazz, en 218 maríjúana-plöntur fundust á heimili hans. Körfubolti 1. júlí 2011 18:00
NBA leikmenn í verkfall - deilan í hnút Leikmannasamtökin í NBA deildinni í körfubolta gefa ekkert eftir í kjaraviðræðum við NBA deildina og það er ljóst að á miðnætti í kvöld skellur á verkfall – það fyrsta í 13 ár. David Stern framkvæmdastjóri NBA deildarinnar tilkynnti í gær að þriggja tíma samningafundur hefði ekki skilað árangri og næsta skref væri verkfall leikmanna sem hefst á miðnætti. Körfubolti 1. júlí 2011 12:45
Gríðarlegur taprekstur hjá 22 NBA liðum Forráðamenn NBA deildarinnar standa í ströngu þessa dagana í viðræðum sínum við leikmannasamtök deildarinnar. Núgildandi samningur NBA við leikmannasamtökin er að renna út og hafa viðræður gengið hægt um nýjan samning. NBA liðin töpuðu samtals um 300 milljónum bandaríkjadala á síðasta rekstrarári, eða rétt um 35 milljörðum kr. og er ljóst að eigendurnir vilja draga úr launakostnaði og hagræða í rekstrinum. Körfubolti 30. júní 2011 12:45
Arenas farinn að planka Körfuboltastjarnan óstýriláta, Gilbert Arenas, fylgir straumnum og hann er nú farinn að planka líkt og óður væri. Hann birtir ansi skemmtilegar myndir af sér að planka á Twitter-síðu sinni. Körfubolti 28. júní 2011 14:30
Artest vill heita Metta World Peace Körfuboltakappinn Ron Artest hjá Los Angeles Lakers fer sínar eigin leiðir og nú hefur hann formlega sótt um að breyta nafni sínu í "Metta World Peace." Körfubolti 24. júní 2011 23:30
Irving valinn fyrstur í nýliðavali NBA Cleveland Cavaliers átti fyrsta valrétt í nýliðavali NBA og það kom fáum á óvart að félagið valdi leikstjórnandann Kyrie Irving frá Duke-háskólanum. Körfubolti 24. júní 2011 11:30
Fer Steve Nash til New York Knicks? Steve Nash, sem tvívegis hefur verið valinn besti leikmaður NBA deildarinnar, hefur ekki náð því að vinna meistaratitil líkt og fyrrum liðsfélagi hans hjá Dallas – Dirk Nowitzki. Nash hefur leikið með Phoenix Suns undanfarin ár og samningur hans við félagið rennur út eftir næstu leiktíð. Körfubolti 21. júní 2011 15:00
Kynlífsmyndband með Shaq nefnt í tengslum við mannrán Þótt körfuboltastjarnan Shaquille o'Neal hafi lagt skóna á hilluna er hann ekki horfinn af forsíðum dagblaðanna. Nú hefur nafn hans verið nefnt í kæru á hendur sjö mönnum sem rændu og börðu Robert nokkurn Ross árið 2008. Ross segir mennina hafa verið á höttunum eftir kynlífsmyndbandi með O'Neal. Körfubolti 17. júní 2011 16:00
Fá leikmenn Dallas ekki meistarahringa? Mark Cuban eigandi Dallas Mavericks sem varð NBA-meistari á dögunum segist ekki ætla að láta framleiða hringa fyrir leikmenn sína. Sigurvegarar í NBA-deildinni hafa frá upphafsárum deildarinnar fengið hringa frá eigendum sínum sem tákn um afrekið. Cuban segir hringa vera gamaldags. Körfubolti 16. júní 2011 23:30
Dagblað óskar Miami Heat til hamingju með titilinn Tap Miami gegn Dallas í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitilinn fór framhjá fæstum í sólskinsfylkinu Flórída. Þó tókst dagblaðinu The Miami Herald að klúðra málinu. Blaðið birti auglýsingu þar sem liðinu var óskað til hamingju með titilinn, sem það vann ekki. Körfubolti 15. júní 2011 09:45
Kidd elsti leikstjórnandinn til þess að vinna NBA Með NBA-meistaratitli Dallas Mavericks varð Jason Kidd elsti leikstjórnandi meistaraliðs í sögu deildarinnar. Kidd sem er 38 ára bætti aldursmet Ron Harper frá árinu 2000. Körfubolti 14. júní 2011 22:00
Þjóðverjar fagna árangri Nowitzki Aldrei þessu vant komst körfubolti á forsíðu íþróttablaðs Bild, mest lesna dagblaðs Þýskalands, í gær. Ástæðan að sjálfsögðu sigur Dallas Mavericks í NBA-körfuboltanum með Þjóðverjann Dirk Nowitzki fremstan í flokki. Körfubolti 14. júní 2011 11:00