San Antonio aftur undir - ótrúleg endurkoma Portland Þrír leikir fóru í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og því nóg um að vera í úrslitakeppninni en fyrsta umferðin stendur nú sem hæst. Körfubolti 24. apríl 2011 11:00
NBA: Indiana Pacers neitar að fara í sumarfrí Indiana Pacers vann í kvöld fjórða leikinn gegn Chicago Bulls, 89-84, í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA. Staðan í einvíginu er því 3-1 fyrir Bulls og enn á brattann að sækja fyrir Pacers. Körfubolti 23. apríl 2011 23:15
NBA: Boston í lykilstöðu - Lakers settist í bílstjórasætið Boston Celtics kom sér heldur betur í góða stöðu gegn New York Knicks í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA, en þeir grænklæddu unnu sannfærandi sigur, 113 -96, í Madison Square Garden og leiða einvígið 3-0. Fjóra sigra þarf til að komast í næstu umferð og því vantar Boston aðeins einn sigur til viðbótar. Körfubolti 23. apríl 2011 11:00
Stuðningsmenn Portland grýttu Cuban Hinn skrautlegi eigandi Dallas Mavericks, Mark Cuban, fékk það óþvegið frá stuðningsmönnum Portland Trailblazers í nótt. Eftir að hafa staðið í orðaskiptum við þá var Cuban grýttur. Körfubolti 22. apríl 2011 22:45
Ming vill ekki fara frá Houston Það er talsverð óvissa um framtíð Kínverjans stóra, Yao Ming, en samningur hans við Houston Rockets rennur út í sumar. Sjálfur segist hann vilja vera áfram hjá félaginu. Ming hefur verið mikið meiddur í vetur og tók ekki þátt nema í fimm leikjum með Rockets. Körfubolti 22. apríl 2011 22:00
Slam-blaðið: Michael Jordan sá besti frá upphafi Bandaríkska körfuboltablaðið Slam, sem er vel þekkt hér á landi, hefur valið 500 bestu NBA-leikmenn allra tíma og þeir setja Michael Jordan í fyrsta sætið á undan þeim Wilt Chamberlain og Bill Russell. Körfubolti 22. apríl 2011 14:45
Tilþrifin sem kveiktu í Miami-liðinu í nótt - myndband Dwyane Wade og LeBron James voru saman með 56 stig og 25 fráköst í 100-94 sigri Miami Heat á Philadelphia 76ers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en það voru flestir á því að troðsla Wade eftir skrautlega stoðsendingu frá James hafi kveikt í liðinu þegar þeir voru 68-62 undir í þriðja leikhlutanum. Körfubolti 22. apríl 2011 11:15
NBA: Chicago og Miami komin í 3-0, Portland vann Dallas NBA: Chicago og Miami komin í 3-0, Portland vann DallasChicago Bulls og Miami Heat stigu stórt skref í átt að annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar þau komust bæði í 3-0 í einvígum sínum. Portland Trail Blazers tókst hinsvegar að minnka muninn í 2-1 á móti Dallas Mavericks. Körfubolti 22. apríl 2011 11:00
NBA: Lakers og San Antonio jöfnuðu metin - Denver í vandræðum Meistaralið LA Lakers lagði New Orleans Hornets 87-78 í gær í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA deildarinnar í körfubolta og er staðan í einvíginu 1-1. Þrír leikir fóru fram í gær og náði San Antonio Spurs að jafna metin gegn Memphis Grizzlies með 93-87 sigri á heimavelli. Oklahoma er 2-0 yfir gegn Denver Nuggets eftir 106-89 sigur liðsins í gær. Sport 21. apríl 2011 09:00
Odom valinn besti varamaðurinn í NBA Lamar Odom, leikmaður LA LAkers, var í nótt útnefndur besti varamaðurinn í NBA-deildinni í körfubolta eða besti sjötti leikmaðurinn eins og verðlaunin eru kölluð. Körfubolti 20. apríl 2011 10:15
NBA í nótt: Orlando jafnaði metin Orlando Magic jafnaði í nótt metin í rimmunni við Atlanta Hawks í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta. Staðan er nú 1-1. Körfubolti 20. apríl 2011 09:00
NBA í nótt: Chicago og Miami á sigurbraut Chicago Bulls og Miami Heat eru bæði búin að taka 2-0 forystu í einvígum sínum í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Körfubolti 19. apríl 2011 09:00
Howard besti varnarmaðurinn þriðja árið í röð Dwight Howard, leikmaður Orlando Magic, var í dag valinn besti varnarmaður NBA-deildarinnar þriðja árið í röð. Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA sem hlýtur þessa nafnbót þrjú ár í röð. Körfubolti 18. apríl 2011 17:45
NBA í nótt: Allen tryggði Boston sigur Ray Allen var hetja Boston þegar að hann tryggði sínum mönnum sigur á New York eftir æsispennandi leik í NBA-deildinni í nótt. Boston er því komið í 1-0 forystu í rimmu liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 18. apríl 2011 09:07
NBA: Hornets vann Lakers óvænt í Staples Center New Orleans Hornets byrjar úrslitakeppnina í NBA-deildinni af miklum krafti, en þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu meistarana í L.A. Lakers, 109-100, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni og hafa því tekið forystu í einvíginu 1-0. Til að koma sér í næstu umferð í keppninni þarf að vinna fjóra leiki. Körfubolti 17. apríl 2011 23:36
NBA: Memphis kom á óvart og vann San Antonio Memphis Grizzlies kom verulega á óvart í kvöld þegar liði lagði San Antonio Spurs, 101-98, á útivelli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Vesturdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik. Sport 17. apríl 2011 20:30
Kidd og Nowitzki sáu um landa sigrinum gegn Portland Jason Kidd og Dirk Nowitzki eru án efa mjög einbeittir þegar úrslitakeppnin í NBA deildinni er að byrja en þeir hafa á löngum ferli sínum aldrei náð að landa meistaratitli. Liðsfélagarnir vita að tíminn er að hlaupa frá þeim og þeir fá ekki mörg tækifæri til viðbótar. Kidd og Nowitzki voru allt í öllu í 89-81 sigri liðsins í gær gegn Portland í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Vesturdeildinni. Kidd skoraði alls 24 stig, flest í fyrri hálfleik, og Nowitzki skoraði 18 af alls 28 stigum sínum í fjórða leikhluta. Sport 17. apríl 2011 12:00
Howard skoraði 46 stig en það dugði ekki til gegn Atlanta Larry Drew þjálfari Atlanta Hawks tók áhættu sem borgaði sig vel í gær þegar liðið sótti Orlando Magic heim í úrslitakeppninni. Drew leyfði Dwight Howard miðherja Orlando að leika lausum hala í sóknarleiknum enda skoraði hann 46 stig en Atlanta gætti þess vel að þriggja stiga skyttur Orlando fengju engin frí skot – og það gafst vel enda sigraði Atlanta 103-93. Liðin enduðu í 4. og 5. sæti Austurdeildar og verður næsti leikur einnig í Orlando en fjóra sigra þarf til þess að komast í undanúrslit. Sport 17. apríl 2011 11:15
Miami Heat þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Philadelphia Chris Bosh skoraði 25 stig og tók 12 fráköst í 97-89 sigri Miami Heat gegn Philadelphia í fyrstu umferð úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Sigur Miami var alls ekki auðveldur og leikmenn Philadelphia gáfu ekkert eftir á lokakaflanum. Dwyane Wade skoraði alls 17 stig fyrir Miami og þar af 5 á síðustu tveimur mínútum leiksins. LeBron James skoraði 21 stig fyrir Miami. Sport 16. apríl 2011 23:00
Derrick Rose skoraði 39 stig í naumum sigri gegn Indiana Derrick Rose var að venju atkvæðamikill þegar Chicago Bulls lagði Indiana Pacers 104-99 í fyrsta leiknum í úrslitakeppni NBA deildarinnar á þessu tímabili. Rose skoraði alls 39 stig fyrir Bulls sem náði bestum árangri allra liða í deildinni og er því með heimaleikjaréttinn í gegnum alla úrslitakeppnina. Sport 16. apríl 2011 20:55
Þessi lið mætast í úrslitakeppni NBA-deildarinnar Í nótt fóru fram síðustu leikir deildarkeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta og nú er því orðið endanlega ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst um næstu helgi. Körfubolti 14. apríl 2011 09:15
NBA: Chicago Bulls endaði eitt á toppnum Chivago Bulls vann sinn 62. leik á tímabilinu og tryggði sér heimavallarrétt út úrslitakeppnina þegar síðustu leikir deildarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta fóru fram í nótt. San Antonio Spurs missti af tækifærinu á því að vera með Chicago í efsta sætinu þegar liðið tapaði fyrir Phoenix Suns. Los Angeles Lakers þurfti framlengingu til þess að vinna Sacramento Kings en tryggði sér með því annað sætið í Vestrinu. Miami Heat vann án þeirra LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh og Boston Celtics vann New York Knicks í upphitun, án flesta aðalleikaranna, fyrir einvígi liðanna í fyrstu umferð. Körfubolti 14. apríl 2011 09:00
Kobe sektaður um 11 milljónir króna Kobe Bryant var í dag sektaður um ellefu milljónir króna fyrir að hreyta fúkyrðum að dómara sem gaf honum tæknivillu í leik LA Lakers gegn San Antonio Spurs í gær. Körfubolti 13. apríl 2011 23:45
NBA: Chicago og San Antonio jöfn á toppnum fyrir síðasta leik Chicago Bulls komst upp að hlið San Antonio Spurs á toppi NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt eftir að Bulls-liðið vann New York Knicks og San Antonio tapaði fyrir Los Angeles Lakers. Verði liðin áfram jöfn eftir síðustu leikina í kvöld verður dregið um hvort liðið fær heimavallarrétt mætist þau í úrslitunum þar sem að innbyrðisárangur þeirra er jafn. Chicago tekur á móti New Jersey Nets í lokaleik sínum í nótt en San Antonio fer í heimsókn til Phoenix. Körfubolti 13. apríl 2011 09:00
NBA: Miami Heat tryggði sér annað sætið í Austrinu Miami Heat tryggði sér annað sætið í Austurdeildinni í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann sigur á Atlanta Hawks á meðan að Boston Celtics tapaði fyrir Washington í framlengingu. Oklahoma City Thunder vann sinn fimmta leik í röð og Dallas Mavericks komst upp fyrir Los Angeles Lakers í baráttunni um annað sætið í Vestrinu. Körfubolti 12. apríl 2011 09:00
NBA: Meistaralið Lakers tapaði fimmta leiknum í röð Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær en deildarkeppninni fer senn að ljúka og verða síðustu leikirnir á miðvikudag. Úslitakeppnin er handan við hornið og liðin sem þangað eru komin keppast nú við að sýna andlegan styrk sinn á lokasprettinum. Chicago lagði Orlando á útivelli i gær 102-99, Miami átti ekki í vandræðum með Boston á heimavelli 100-77, og það vekur kannski mesta athygli að Oklahoma rúllaði meistaraliði Lakers upp á útivelli 120-106 – en þetta er fimmti tapleikur Lakers í röð. Körfubolti 11. apríl 2011 08:00
NBA: Spurs gefur ekkert eftir Topplið Vesturdeildar NBA, San Antonio Spurs, vann í nótt sinn fjórða leik er það lagði Utah Jazz sem hefur tapað tíu af síðustu ellefu leikjum sínum í NBA-deildinni. Körfubolti 10. apríl 2011 11:00
Detroit Pistons fær nýjan eiganda Detroit Pistons tilkynnti í gær að milljarðamæringurinn Tom Gores hefði ákveðið að kaupa félagið sem er í miklum fjárhagsvandræðum. Karen Davidson eignaðist félagið 2009 er eiginmaður hennar, Tom, dó en hún vildi selja. Körfubolti 9. apríl 2011 21:00
Chicago tryggði sér sigur í Austurdeildinni Chicago Bulls tryggði sér sigur í Austurdeild NBA-deildarinnar í nótt er liðið vann útisigur á Cleveland. Carlos Boozer atkvæðamestur hjá Bulls með 24 stig og 11 fráköst. Chicago mætir Indiana í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 9. apríl 2011 11:00
Móðir LeBron lamdi bílastæðavörð Þráðurinn á Gloriu James, móður LeBron James, er ansi stuttur. Það sannaði hún með því að ráðast á bílastæðavörð þar sem henni fannst taka of langan tíma að ná í bílinn hennar. Körfubolti 8. apríl 2011 23:30