

Stjórnmál
Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.

Segir aðgerðaleysi ríkisstjórnar bitna mest á almenningi
Þingkona Samfylkingarinnar segir áríðandi að ríkisstjórnin bregðist við erfiðu efnahagsástandi í landinu. Eina ráðið geti ekki verið stýrivaxtahækkanir. Hún kallar eftir alvöru aðgerðum sem virki núna fyrir heimilin í landinu.

María Rut snýr aftur til Þorgerðar
María Rut Kristinsdóttir mun snúa aftur sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar. Síðasta ár hefur hún starfað sem kynningarstýra UN Women, en þar á undan var hún aðstoðarmaður Þorgerðar í fjögur ár.

Jöfnum leikinn
Vaxandi ójöfnuður á Íslandi er staðreynd. Pólitískar ákvarðanir ýta undir þá þróun. Það er hægt að snúa þessari þróun við ef pólitískur vilji leyfir. Ástæðurnar blasa við fólki sem skilur hvernig gott og öruggt samfélag virkar best fyrir flesta og sér á hvaða sviðum er brýnt að grípa til aðgerða.

„Nánast engar líkur“ á áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna
Ríkisstjórnin hefur ekki mælst með lægra fylgi frá kosningum, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst með minna fylgi hjá Maskínu, í 13 ár.

Svandís hafi gerst sek um valdníðslu í hvalveiðimálinu
Þingmenn í atvinnuveganefnd eru ekki par sáttir við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um stöðvun hvalveiða skömmu fyrir vertíð. Ný skýrsla um efnahagsleg áhrif breyti engu þar um.

Segir ráðherra „fabúlera“ um opin fangelsi og vill nefndarfund
Fulltrúi Pírata í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskar eftir fundi um málefni hælisleitenda sem eru sviptir þjónustu með ráðherrum. Hann sakar dómsmálaráðherra um að „fabúlera“ um opin fangelsi á sama tíma og engar lausnir séu lagðar fram.

Situr í gæsluvarðhaldi lengur en lög gera ráð fyrir: „Það einfaldlega gengur ekki í réttarríki“
Undanfarnar vikur hafa reglulega birst fréttir af því að fallist hafi verið á framlengingu gæsluvarðhalds manns sem grunaður er um að hafa banað ungri konu í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi út ágúst og mun þá hafa verið í haldi í átján vikur.

Dekur við bankana og atlaga að íslenskum heimilum
Ýmis samtök og verkalýðsforingjar lýsa þungum áhyggjum vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Hækkunin er sögð atlaga að íslenskum heimilum.

Svandís svarar umboðsmanni: Ekki unnt að ná markmiðum með öðru en frestun
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur svarað bréfi umboðsmanns Alþingis þar sem óskað er eftir svörum vegna ákvörðunar ráðherra um að banna hvalveiðar tímabundið. Í svörunum segir meðal annars að ekki hafi verið talið unnt að ná markmiðum um dýravelferð með öðrum hætti en frestun upphafs veiðitímabils.

Við erum að bregðast bændum!
Verði nýjar gjaldskrárbreytingar Matvælastofnunar (MAST) innleiddar mun það vera byrjunin að endalokum landbúnaðar á Íslandi eins og við þekkjum hann í dag.

Lög eða ólög?
„Með lögum skal land vort byggja, en eigi með ólögum eyða.“ Þessi fleygu orð Norðurlandabúa komu upp í hugann þegar afleiðingar mannvonskulaga fyrrum dómsmálaráðherra komu í ljós á dögunum. Hann og þingheimur höfðu verið vöruð við, en eru nú farin að bregðast við eigin afglöpum með því að íhuga „búsetuúrræði með takmörkunum“ eftir að hafa reynt að vísa Svarta-Pétri til sveitarfélaganna án árangurs.

„Hvers vegna ætti annað að gilda um útlendinga?“
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur svarað gagnrýni á vinnubrögð stjórnvalda í útlendingamálum í aðsendri grein á Vísi. Nánar tiltekið tekur hún pistil Láru Pálsdóttur í Heimildinni fyrir og kallar innlegg hennar í umræðuna „lofsöng um lygina“ því hún styðjist ekki við staðreyndir.

Lofsöngur um lygina
Í Heimildinni birtist á dögunum grein undir fyrirsögninni „Lágkúra illskunnar“ eftir Láru Pálsdóttur, félagsráðgjafa. Greinin er dæmigerð fyrir málflutning margra þeirra sem ekki vilja una niðurstöðu Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála (og í sumum tilvikum einnig dómstóla).

Leggja til sameiningu Reykjavíkur og Malmö
Heimdellingar leggja til að Reykjavík verði færð undir Malmö í sameinuðu sveitarfélagi Malmövíkur. Þannig megi bæta fjárhag borgarinnar.

Ný reglugerð um íbúakosningar „ákveðin tilraunastarfsemi“
Kosningabifreiðar og sextán ára kosningaaldur er á meðal þess sem opnað er á í nýrri reglugerð innviðaráðherra um íbúakosningar í sveitarfélögum. Skrifstofustjóri ráðuneytisins segir um ákveðna tilraunastarfsemi að ræða.

Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða lítil og greinin ekki arðbær síðustu ár
Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða á Íslandi eru ekki mikil í þjóðhagslegu samhengi. Þá verður ekki séð að hvalveiðar hafi verið arðbær atvinnugrein á síðustu árum. Þrátt fyrir mikla andstöðu gagnvart hvalveiðum meðal almennings erlendis virðist það ekki hafa efnahagsleg áhrif á Ísland.

Sextán ára kosningaaldur og færanlegir kjörstaðir í nýrri reglugerð
Ef ný reglugerð innviðaráðherra nær fram að ganga munu íbúakosningar í sveitarfélögum fara fram á tveggja til fjögurra vikna tímabili, með möguleika á hreyfanlegum kjörstöðum, til að mynda kosningabifreiðum.

Lögbrotin hafi verið ásetningur en ekki mistök
Bankastjóri Íslandsbanka ætlar að gera sitt besta til að endurnýja traust hjá þeim viðskiptavinum sem snúið hafa baki við bankanum. Ekki sé þó að vænta frekari breytinga á næstunni á stjórn eða starfsmannahaldi. Forseti ASÍ segir lögbrot bankans hafa verið alvarlegur ásetningur og því hafi samtökin ákveðið að hætta viðskiptum við hann.

Er Ísland þriðja heims ríki?
Þegar við hugsum um þriðja heims ríki dettur mönnum líklega Ísland alls ekki í hug. Líklega myndi fæstum láta sér detta til hugar að setja Ísland í þann hóp ríkja.

Soffía Svanhvít kjörin forseti Hallveigar
Soffía Svanhvít Árnadóttir var kjörin forseti Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík á föstudag. Hún tekur við af Pétri Marteini Urbancic Tómassyni sem hefur gengt stöðunni undanfarin tvö ár.

Taldi jafnvel líkur á að eiga ekki afturkvæmt til Íslands eftir starfið í Rannsóknarnefnd Alþingis
„Mér fannst þetta stór ákvörðun að taka og velti henni alvarlega fyrir mér. Enda hafði ég á tilfinningunni að ég myndi jafnvel ekki eiga afturkvæmt til Íslands ef ég þæði boðið,“ segir Sigríður Benediktsdóttir hagfræðingur þegar talið berst að setu hennar í Rannsóknarnefnd Alþingis á sínum tíma.

Dagur B og blaðafulltrúarnir
Smjörklípa er vel þekkt aðferð í stjórnmálum. Í henni felst að í stað þess að ræða um lausnir á óþægilegu máli á opinberum vettvangi þyrlar valdhafi upp moldviðri um önnur mál í fjölmiðlum í því skyni að draga athygli almennings frá því máli sem valdhafanum er þungt í skauti.

Skuldir fljótar að safnast upp ef nokkrir mánuðir fara í ranga átt
Formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar segir fimleikafélag bæjarins þurfa að sameinast öðru íþróttafélagi svo laga megi reksturinn. Bærinn mun sjá til þess að fimleikastarfið hefjist aftur í haust, sama hvað, en félagið skuldar um tuttugu milljónir.

Fyrsta skipti í seinni tíð sem stjórnvöld hendi fólki meðvitað á götuna
Áfram ríkir óvissa um það hver eigi að aðstoða flóttafólk sem hefur verið svipt þjónustu eftir að hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Ráðherrar funduðu með fulltrúum sveitarfélaganna um stöðuna í gær en engin niðurstaða fékkst í málið.

Ríkisstjórnin eins og þrír bátar sem stefna í ólíka átt
Þrjár ríkisstjórnir virðast starfandi í landinu að mati prófessors í stjórnmálafræði. Hann segir óskýrleika í kringum nýju útlendingalögin enn eina birtingarmynd þess að flokkarnir eigi erfitt með að koma sér saman um stór málefni.

Margrét nýr framkvæmdastjóri þingflokks Pírata
Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og sérfræðingur í sjálfbærni, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Pírata.

Guðni Th. og Jón Gunnarsson tekjuhæstu stjórnmálamennirnir
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands var tekjuhæsti stjórnmálamaður landsins árið 2022. Næst á eftir koma Jón Gunnarsson, alþingismaður og þáverandi dómsmálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

„Krossbrá“ þegar krafa Isavia barst í sumar
Borgarstjóri segir ekki halla á borgina, sem hafi uppfyllt sína samninga og átt í góðu samstarfi við Isavia undanfarin ár. Honum hafi því krossbrugðið þegar krafa barst um að fella tæplega þrjú þúsund tré í Öskjuhlíð vegna flugöryggis. Málið verði ekki notað sem tól í baráttunni um að fá flugvöllinn burt úr Reykjavík.

Enn engin niðurstaða í máli þjónustusvipts flóttafólks
Enn er engin niðurstaða komin í máli flóttafólk sem hefur fengið endanlega synjun og misst rétt á þjónustu, framfærslu og búsetu. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir ríkið nú vinna að því að skilgreina þá þjónustu sem fólkið eigi að fá og hvar hún eigi að vera.

„Það er neyð á götunum og það er alvarlegt mál“
Reykjavík mun ekki þjónusta flóttafólk sem svipt hefur verið þjónustu án samtals eða verklags um verkefnið. Formaður borgarráðs segir verkefnið risavaxið og að það muni aðeins vaxa.