Hættir sem borgarfulltrúi sósíalista Trausti Breiðfjörð Magnússon er hættur sem borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins. Hann hefur átt við veikindi að stríða síðasta árið og segist ætla að setja heilsuna í forgang. Andrea Helgadóttir tekur sæti Trausta í borgarstjórn. Innlent 4. september 2024 15:47
„Við vorum eiginlega bara í þrætum við formann nefndarinnar“ Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda vísa ummælum fjármálaráðherra um að fullnægjandi samráð hafi verið haft við alla hagaðila á leigumarkaði, við gerð frumvarps um húsaleigulög, alfarið á bug. Formaður Samtaka leigjenda segist hafa fengið boð á einn hálftímalangan fund sem fór allur í þrætur við formann nefndarinnar. Innlent 4. september 2024 14:36
Málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum Málmleitartæki verða notuð í öryggisgæslu á framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forsvarsmanns Go öryggi. Fyrirtækið hafi séð um öryggi á slíkum böllum um árabil og leitast sé við að nemendum líða vel. Tónlistarhátíð í Árbæ hefur verið frestað vegna álags hjá lögreglu. Innlent 4. september 2024 13:22
Pælingar eldri kylfings á Spáni ekki efstar á vandræðalista flokksins Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ummæli Bolla Kristinssonar í hádegisfréttum Bylgjunnar birtingarmynd vanda í Sjálfstæðisflokknum. Eldri karlar sem trúi ekki á yngri konur. Innlent 4. september 2024 12:47
Flokkurinn þurfi ekki „nýútskrifaðar stúlkur sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig“ Sjálfstæðismaður segir stofnun nýs framboðs tengdu flokknum vera mikilvægt til að sækja þá kjósendur sem hafa yfirgefið flokkinn síðustu ár undir núverandi forystu. Einungis þeir sem hafa áorkað eitthvað í lífinu fengju sæti á lista framboðsins. Innlent 4. september 2024 11:52
Fölsk loforð í boði HMS Jæja, hvað er að frétta af næstu úthlutun hlutdeildarlána HMS til fyrstu kaupenda? Einhverja hluta vegna benda allir hver á annan og enginn hefur svör. Og því spyr ég hér opinberlega – hvað er að frétta? Getur fjármálaráðherra, innviðaráðherra eða forstjóri HMS svarað? Skoðun 4. september 2024 11:32
Segir Þórarin Inga hafa niðurlægt þingræðið Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur sent inn erindi til forsætisnefndar/siðanefndar Alþingis þar sem hann kærir Þórarin Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins, formann atvinnuvegnefndar vegna afskipta hans af búvörulögum. Þórarinn Ingi megi teljast bullandi vanhæfur til að hafa afskipti af málinu vegna hagsmunatengsla. Innlent 4. september 2024 10:14
Alvarlegt þegar harðkjarninn íhugar að kjósa ekki flokkinn Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir alvarlega stöðu komna upp í flokknum þegar harðkjarna Sjálfstæðismenn hugsi um að kjósa hann ekki í næstu kosningum. Páll var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og ræddi möguleikann á DD framboði í næstu Alþingiskosningum. Innlent 4. september 2024 08:41
40 ára tilraun sem mistókst Nýtt kvótaár hófst í dag og mér varð hugsað til þess, að þegar kvótakerfið var sett á 1984 þá var ég aðeins 19 ára gamall og ekki byrjaður í útgerð og kannski má að mörgu leyti segja að stærsta vandamálið við að breyta þessu fáránlega kvótakerfi sé einmitt unga fólkið í dag sem einfaldlega skilur þetta ekki. Skoðun 3. september 2024 23:31
Það hafi víst verið haft samráð og samtal Fyrrverandi innviðaráðherra hafnar því að ekki hafi verið haft samráð við húseigendur og leigjendur þegar unnið var að breytingum á húsaleigulöggjöfinni. Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda hafa lýst yfir mikilli óánægju með breytingarnar og kalla eftir nýrri löggjöf. Innlent 3. september 2024 20:46
Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár. Innlent 3. september 2024 19:33
Öll ríki Evrópu eru smáríki í alþjóðlegu samhengi Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu segir öll ríki Evrópu vera smáríki, sem verði undir í alþjóðlegri samkeppni vinni þau ekki nánar saman. Mikilvægi Íslands og Noregs hafi aukist eftir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Innlent 3. september 2024 19:21
Fjórar myndir af Íslandi Á undanförnum árum hefur ríkisstjórnin hrósað sér í hástert fyrir að hafa bætt ráðstöfunartekjur og kaupmátt fólks í landinu. Nýlega kom út skýrsla Nordregio sem sýnir þróun kaupmáttar á Norðurlöndunum. Skoðun 3. september 2024 18:31
Ákvörðun handan við hornið Dómsmálaráðherra ætlar að tilkynna ákvörðun sína varðandi Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara á allra næstu dögum. Þetta sagði hún eftir fund ríkisstjórnar í morgun. Innlent 3. september 2024 16:30
Undrandi að enn séu seldar íshellaferðir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir það koma sér á óvart að enn sé verið að selja ferðir í íshella, eftir slysið í íshellinum á Breiðamerkurjökli í síðasta mánuði. Hann spurði á ríkisstjórnarfundi í morgun hvort ástæða væri til að stöðva slíkar ferðir að sumarlagi. Innlent 3. september 2024 13:55
„Við erum búin að sitja í ríkisstjórn þar sem við höfum gefið ýmislegt eftir“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn þurfa að leita í ræturnar. Óánægju kjósenda megi meðal annars rekja til þess að flokkurinn hafi þurft að lúffa í ýmsum málaflokkum í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi. Innlent 3. september 2024 12:36
Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Sérfræðingur hjá Alþýðusambandinu telur frumvarp fjármálaráðherra um upptöku kílómetragjalds koma verst niður á tekjulægri hópum. Þá hefur hún áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka gróðann. Neytendur 3. september 2024 12:32
Afneitun alkans Mér finnst ég oft geta heimfært afneitun alkóhólistans upp á íslenskt samfélag. Þá sérstaklega þegar rætt er um íslensku krónuna og hvort hún geti mögulega verið rót þeirra vandamála sem upp koma í íslensku samfélagi aftur og aftur. Skoðun 3. september 2024 11:30
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Innlent 3. september 2024 10:58
Húseigendur og leigjendur vilja nýja löggjöf og kalla eftir samráði Leigjendur og húseigendur lýsa yfir mikilli óánægju með breytingu á húsaleigulögum. Forsvarsfólk þeirra segir að lítið sem ekkert samráð hafi verið haft við þau meðan lögin voru í smíðum. Kallað er eftir nýrri húsaleigulöggjöf. Innlent 2. september 2024 21:00
Þræleðlilegt að reka ríkissjóð í halla í heimi „Litla-Miðflokksins“ Þingmaður Viðreisnar segir furðulegt að hafa fylgst með flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fór fram um helgina. Hún gagnrýnir ábyrgðarleysi á sögulega lágu fylgi flokksins í því sem hún kallar „Litla-Miðflokknum“. Innlent 2. september 2024 17:57
Vextir án vaxtar Stýrivaxtastefna Seðlabankans (hávaxtastefnan) hefur reynst heimilum landsins og fyrirtækjum erfiður ljár í þúfu. Hávaxtastefnan kyndir undir og viðheldur hárri verðbólgu. Hávaxtastefnan hækkar verð á vörum og þjónustu ekki einungis á markaði heldur einnig hjá opinberum aðilum. Skoðun 2. september 2024 15:00
Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“ Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga. Innlent 2. september 2024 09:21
Á leið í flug og vildarpunktarnir eru útrunnir Óánægju gætir meðal ungra Sjálfstæðismanna í garð forystu flokksins ef marka má skrif Franklíns Ernis Kristjánssonar, sem situr í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Innlent 2. september 2024 08:35
Vildarpunktarnir eru runnir út Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn um helgina og er eitt sem stendur upp úr að fundi loknum. Vildarpunktar forystu Sjálfstæðisflokksins eru runnir út. Markmið fundarins var að ræða stöðu flokksins við forystuna. Ég spyr þá: Hvar átti sú umræða sér stað? Skoðun 2. september 2024 08:03
Fréttamaðurinn hafi vart getað varist hlátri Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis fer um víðan völl í viðtali á Sprengisandi í dag. Hann ræðir grundvallarréttindi borgaranna og spyr hvort viðhorf stjórnvalda hafi breyst eftir tíma heimsfaraldurs og eldsumbrota. Fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi vart getað varist hlátri fyrir tveimur árum við lestur fréttar um að umboðsmaður hefði sett spurningarmerki við samkomutakmarkanir. Innlent 1. september 2024 16:16
Er ekki allt í gulu? Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Um er að ræða mikilvæga og árlega vitundarvakningu þar sem fjölmargir taka höndum saman og vekja athygli á mikilvægi geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna. Í gulum september sameinumst við á þeirri vegferð að vekja upp von. Skoðun 1. september 2024 08:02
Smelltu Kristrúnu í hitasætið og kalla eftir aðgerðum Ungt jafnaðarfólk kallar eftir „verulegum skattahækkunum“ á stórtæka íbúðaeigendur, stóraukinni aukningu á uppbyggingu óhagnaðardrifinna leiguíbúða, og að fólk fái hundrað prósent launa sinna greidd í fæðingarorlofi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun landsþings Ungs jafnaðarfólks sem fram fór í Hafnarfirði í dag. Innlent 31. ágúst 2024 21:38
Treystir sér til formennsku ef Bjarni hættir Formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki búinn að ákveða hvort hann sækist eftir áframhaldandi setu á formannsstól, en varaformaðurinn kveðst tilbúinn að taka við keflinu ef svo ber undir. Ungliðahreyfingin sendi forystu flokksins væna pillu vegna sögulega lítils fylgis í könnunum. Innlent 31. ágúst 2024 20:45
Sósíalistar næðu manni inn Sósíalistaflokkurinn mælist með tæplega sex prósent fylgi í þjóðarpúsli Gallúp, nóg til að ná manni inn á þing. Lítill munur er á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Innlent 31. ágúst 2024 15:41