Azealia Banks aflýsir tónleikum á Íslandi Tónleikum Azealiu Banks sem halda átti í Vodafonehöllinni þann 6. júní nk. hefur verið aflýst. Söngkonan hefur aflýst um 25 tónleikum í júní og júlí. Ástæðan er samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni söngkonunnar er að vegna mikilla anna hefur hún ekki náð að ljúka vinnu við væntanlega hljómplötu. Því miður var ekki hægt að fá nýja dagsetningu á þessu ári. Tónlist 24. apríl 2012 09:30
Spila þungarokk á skemmtiferðaskipi "Það er óhætt að segja að þetta verður fullkominn endir á skemmtilegu ári hjá okkur,“ segir Aðalbjörn Tryggvason söngvari Sólstafa sem spila í sérstakri skemmtiferðasiglingu fyrir þungarokksaðdáendur í lok árs. Skemmtiferðasiglingin ber heitið Barge To Hell og eru Sólstafir ein af fjörutíu sveitum sem spila á skipinu. Lagt er af stað frá Míamí þann 3. desember næstkomandi, þar sem siglt er til Bahama-eyja og komið aftur til Míamí fjórum dögum síðar. "Þetta verður okkar fyrsti Ameríku-túr og hverjum hefði grunað að við mundum byrja á því að spila á skemmtiferðaskipi. Þetta verður án efa mikið ævintýri og ég veit ekki hvaða hálfvita datt í hug að skella 3.000 þungarokkurum saman á rúmsjó,“ segir Aðalbjörn, eða Addi eins og hann er kallaður, hlæjandi. Tónlist 23. apríl 2012 11:00
Bjuggu til teknó í frístundum Ólafur Arnalds og Janus Rasmussen úr Bloodgroup hafa nýlokið sínu fyrsta tónleikaferðalagi með teknóhljómsveit sína, Kiasmos. Um þrenna tónleika í Þýskalandi var að ræða og gengu þeir fyrstu, sem voru í Hamborg á fimmtudaginn, mjög vel. Þeir síðustu voru í Dresden á laugardagskvöld. Tónlist 23. apríl 2012 11:00
Vöðum í djúpri reggítjörn "Þetta hefur verið dálítið langt og hægt ferli. Það má eiginlega segja að við séum eins og risaskjaldbaka," segir Arnljótur Sigurðsson, bassaleikari, söngvari, og einn lagahöfunda reggísveitarinnar Ojba Rasta, en sveitin á eitt allra vinsælasta lag landsins um þessar mundir, Baldursbrá, sem situr meðal annars í efsta sæti á vinsældalista Rásar 2. Alls eru meðlimir sveitarinnar ellefu og þar með talin þrjú systkini Arnljóts: Unnur Malín (kölluð Malla), sem leikur á barítónhorn, trommarinn Gylfi Freeland og Valgerður Freeland, sem spilar á klarínett. Tónlist 22. apríl 2012 22:30
Urður og Högni syngja með Nýdanskri Stórhljómsveitin Nýdönsk mun halda upp á 25 ára afmæli sitt með tveimur tónleikum í september, í Hörpu þann 22. september og í Hofi á Akureyri þann 29. september, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Tónlist 14. apríl 2012 11:00
Axl vill ekki vera með Rokkarinn Axl Rose afþakkaði inntöku hans í Rock and Roll Hall of Fame um helgina sem leið. Söngvarinn, sem sló í gegn með Guns N‘ Roses í lok níunda áratugarins, bað aðdáendur hljómsveitarinnar afsökunar á synjun sinni. Tónlist 14. apríl 2012 06:00
Saknar White Stripes en gefur út fyrstu sólóplötuna Spjátrungurinn Jack White úr hljómsveitinni White Stripes sendir frá sér sólóplötu á næstunni. Lögin urðu til þegar rapparinn RZA sveikst um að mæta í upptökur ásamt White. Tónlist 12. apríl 2012 20:00
RetRoBot spilar á Iceland Airwaves Tilkynnt hefur verið um fleiri listamenn sem koma fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár. Hátíðin hefst 31. október næstkomandi og stendur til 4. nóvember. Tónlist 12. apríl 2012 14:30
Of Monsters and Men í sjötta sæti á Billboard Platan My Head Is an Animal með hljómsveitinni Of Monsters and Men fór beint í sjötta sæti bandaríska Billboard-listans, en listi sem nær yfir plötusölu í síðustu viku var birtur síðdegis í gær. Þetta er besti árangur sem íslensk hljómsveit hefur náð á listanum, sem hefur haldið utan um plötusölu í Bandaríkjunum frá árinu 1945. Tónlist 12. apríl 2012 09:00
Ný tónlistarútgáfa Color Me Records er nýtt útgáfufyrirtæki sem sérhæfir sig í íslenskri raftónlist. Það eru fjórmenningarnir Áskell Harðarson, Björn Gauti Björnsson, Jón Eðvald Vignisson og Steindór Grétar Jónsson sem standa að útgáfunni. Tónlist 11. apríl 2012 11:00
Of Monsters and Men selur 55 þúsund plötur á viku "Við lifum á tónlistinni. Það er pottþétt draumur hvers tónlistarmanns,“ segir Ragnar Þórhallsson, annar söngvara hljómsveitarinnar Of Monsters and Men. Platan My Head Is an Animal með Of Monsters and Men hefur selst í um 55 þúsund eintökum frá því að hún kom út í Bandaríkjunum 3. apríl, samkvæmt vefritinu Hits Daily Double. Tónlist 11. apríl 2012 11:00
Franska Eurovision-lagið á flakki Flytjandi franska framlagsins til Eurovision þetta árið, Anggun, notar lúmskar leiðir til að koma sér á framfæri fyrir keppnina í lok maí. Tónlist 7. apríl 2012 11:30
Jason Mraz Syngur um ást á nýrri plötu Popparinn Jason Mraz gefur á næstunni út sína fjórðu plötu þar sem ástin verður umfjöllunarefnið. Tónlist 5. apríl 2012 15:00
Falk aðstoðar U2 Írsku rokkararnir í U2 eru sagðir hafa haft samband við sænska lagahöfundinn Carl Falk um að hann aðstoði hljómsveitina við gerð næstu plötu. Tónlist 5. apríl 2012 11:30
Nýtt lag á þessu ári Adele ætlar að gefa út nýtt lag á þessu ári og kemur það líklega út í lok ársins. Hún segir að það fari allt eftir því hversu fljót hún er að semja önnur lög. Tónlist 3. apríl 2012 16:00
Ætlar að toppa síðustu tónleika "Þetta verður alveg geggjað. Ég held að við toppum þetta frá því í fyrra," segir Helgi Björnsson. Hann ætlar að endurtaka leikinn á þjóðhátíðardaginn og halda tónleika í Eldborg 17. júní undir nafninu Íslenskar dægurperlur. Þar mun stórskotalið íslenskra söngvara stíga á svið og flytja þekkt íslensk popplög undir stjórn Samúels J. Samúelssonar. Hann hefur sér til fulltyngis vaska sveit tónlistarmanna, þar á meðal lúðra- og fiðlusveit. Tónlist 3. apríl 2012 11:00
Skjótur frami Nicki Minaj Nicki Minaj sendir þessa dagana frá sér sína aðra plötu. Frægðarsól hennar hefur risið hratt upp á skömmum tíma. Önnur plata söngkonunnar Nicki Minaj, Pink Friday: Roman Reloaded, kemur í verslanir 3. apríl. Grípandi danspoppið er allsráðandi í fyrsta smáskífulaginu, Starships, sem kom út í febrúar og næsta lag, Right By My Side sem hún syngur með Chris Brown, er nýkomið í loftið. Lífið 2. apríl 2012 23:00
Músíktilraunir í 30. sinn Músíktilraunir hefjast í þrítugasta sinn í Austurbæ í kvöld. 48 hljómsveitir taka þátt. Margir þekktir tónlistarmenn hafa verið í sigursveit keppninnar. Tónlist 23. mars 2012 15:00
Á sviði með Springsteen Bruce Springsteen og hljómsveitin Arcade Fire stigu á svið saman á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas. Tónlist 22. mars 2012 22:30
Stafrænir Bítlar Teiknimynd Bítlanna, Yellow Submarine, frá árinu 1968 hefur verið endurunnin stafrænt og verður gefin út á mynddiski 28. maí. Plata með tónlist myndarinnar verður endurútgefin sama dag. Tónlist 22. mars 2012 21:00
Uppselt á Bryan Ferry - Aukatónleikum bætt við Miðsalan á tónleika Bryan Ferry í Hörpu, á hvítasunnudag 27. maí, hófst á hádegi í dag og er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið framúrskarandi. Uppselt er á tónleikana og því hefur öðrum tónleikum verið bætt við. Tónlist 22. mars 2012 15:33
Syngja saman Leikarinn Johnny Depp tekur lagið með vini sínum, tónlistarmanninum Marilyn Manson, á væntanlegri plötu þess síðarnefnda. Vinirnir syngja saman slagarann You're So Vain sem Carly Simon gerði frægan árið 1972. Tónlist 22. mars 2012 14:00
Meðalaldur væntanlegra tónlistarmanna um sextugt Enski tónlistarmaðurinn Bryan Ferry bættist fyrir skömmu í stóran hóp eldri tónlistarmanna sem sækja Ísland heim á þessu ári. Meðal annarra sem stíga hér á svið eru James Taylor, Tony Bennett, Don McLean og Manfred Mann, sem eiga það allir sameiginlegt að vera komnir vel yfir sextugt. Inni á milli leynast yngri flytjendur en langyngst er þó Azealia Banks sem er rétt skriðin yfir tvítugt. Hún dregur meðalaldur þeirra sem hingað koma mikið niður en hann hljómar upp á 58,6 ár. Tónlist 22. mars 2012 11:00
Miðasala á Bryan Ferry hefst á hádegi Miðsalan á tónleika Bryan Ferry í Hörpu, á hvítasunnudag 27. maí, hefst á hádegi í dag á midi.is, harpa.is og í miðasölu Hörpu. Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir miðum og því má gera ráð fyrir að þeir verði fljótir að rjúka út. Tónlist 22. mars 2012 11:00
Frítt á Airwaves-tónleika á laugardag Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves býður upp á fría tónleika á NASA laugardagskvöldið 31. mars. Fram koma Sóley, Agent Fresco og breska gítarrokksveitin All the Young. Útvarpsstöðin XFM í London nefndi hljómsveitina eina af tólf bestu sveitunum sem stíga fram í dagsljósið á þessu ári, auk þess sem hún var tilnefnd sem efnilegasta sveitin hjá verslunum HMV. Tónlist 21. mars 2012 12:30
Bryan Ferry til Íslands Hvítasunnudaginn 27. maí mun Bryan Ferry, einn farsælasti dægurtónlistarmaður samtímans, koma hingað til lands ásamt hljómsveit og halda tónleika í Hörpu. Tónleikarnir eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og munu þeir marka upphaf alþjóðlegra Nelson Mandela daga á Íslandi, Nelson Mandela Days 2012, sem haldnir eru til heiðurs Mandela og hugsjónum hans. Tónlist 20. mars 2012 15:30
Ummi gefur út Bergmálið Tónlistarmaðurinn Ummi Guðjónsson sendir á morgun frá sér smáskífulagið Bergmálið. Það verður að finna á annarri plötu listamannsins sem kemur út seinna á þessu ári. Tónlist 20. mars 2012 08:00