Birna Brjánsdóttir

Annar sakborninganna hringdi í íslenska vinkonu meðan Birna var í bílnum
Annar skipverjanna sem grunaðir eru um aðild að máli Birnu Brjánsdóttur reyndi ítrekað að ná tali af íslenskri vinkonu að morgni 14. janúar.

Útgerðarstjóri Polar Seafood: „Treysti því að þeir séu saklausir“
Útgerðarstjóri Polar Seafood segir mál Birnu Brjánsdóttur leggjast þungt á starfsmenn fyrirtækisins.

Björgunarsveitarmaður skrifar til Birnu: „Þú áttir ekki skilið að vera rænd framtíðinni“
Viktor Klimaszewski, starfsmaður Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði og björgunarsveitarmaður lýsir reynslu sinni af leitarstarfi helgarinnar

Konur óttast um öryggi sitt í miðbæ Reykjavíkur: Ganga í tvennum sokkabuxum og með lykla milli fingranna
Konur eru líklegri en karlar til að upplifa óöryggi í miðbæ Reykjavík að kvöld- eða næturlagi. Þá grípa konur oft til ráðstafana ef ske kynni að ráðist yrði á þær.

Áhöfn Polar Nanoq sakar Enoksen um að nýta sér mál Birnu í stjórnmálalegum tilgangi
Grænlenski sjávarútvegsráðherrann vill kanna hvort eigi að heimila að hægt verði að takmarka veiðiheimildir grænlenskra skipa sem hafa verið notuð til eiturlyfjasmygls.

Geta verið í gæsluvarðhaldi í allt að þrjá mánuði á grundvelli rannsóknarhagsmuna
Alls gætu skipverjarnir setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna í þrjá mánuði, en lengur ef krafist er gæsluvarðhalds á grundvelli almannahagsmuna.

Fjallað um Birnu víða um heim
Síðustu daga hafa erlendir fréttamiðlar um heiminn allan fjallað um andlát Birnu Brjánsdóttur og þá umfangsmiklu leit sem fram fór um helgina.

Hinir grunuðu gætu mætt hörku á Hrauninu
Áhyggjur eru uppi um öryggi grænlensku fanganna tveggja, sem grunaðir eru um að bana Birnu Brjánsdóttur.

Skilríki Birnu um borð í Polar Nanoq
Eiga að hafa fundist í ruslatunnu í togaranum.

Dánarorsök Birnu ekki gefin upp
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á dauða Birnu Brjánsdóttur, segir að lögreglan hyggist ekki tjá sig um bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu á líki hennar sem gerð var í gærkvöldi.

Vísbendingar komnar um dánarorsök
Bráðabirgðakrufning réttarmeinafræðings lögreglunnar, sem lauk í gærkvöld, færði lögreglu nær því að vita hver dánarorsök Birnu Brjánsdóttur er.

Gætu borið mismikla ábyrgð í málinu
Mennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, hafa setið nánast afskiptalausir í einangrun í þrjá daga. Þeir verða yfirheyrðir í dag. Lögregla rannsakar hlut hvors þeirra fyrir sig í málinu.

Togarinn Polar Nanoq var tollafgreiddur fyrir hassfundinn
Grænlenski togarinn Polar Nanoq var tollafgreiddur eins og önnur útlensk skip sem koma til hafnar á Íslandi. Ekki var um sérstakt tolleftirlit að ræða eða leit í skipinu.

Minningarathöfn um Birnu um helgina
Óhætt er að segja að þjóðarsorg ríki á Íslandi eftir að lík Birnu Brjánsdóttur fannst í gær.

Doða tilfinning og tómleiki er hjá skipuleggjendum leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur, eftir að hún fannst
"Við hefðum gjarnan viljað að málalyktir yrðu aðrar."

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni
tarlega verður fjallað um rannsókn lögreglu á láti Birnu Brjánsdóttur í fréttatíma Stöðvar tvö

Útgerð Polar Nanoq styrkir Landsbjörg um 1,6 milljónir
Vilja þakka sjálfboðaliðum í björgunarsveitum félagsins fyrir framlag sitt, þrautseigju og óeigingjarnt starf við leitina að Birnu Brjánsdóttur.

Munu óska eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi ef þurfa þykir
Grímur Grimsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn á máli Birnu Brjánsdóttur segir að lögreglan muni óska eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir mönnunum tveimur sem taldir eru tengjast hvarfi hennar ef þurfa þykir fyrir þann tíma sem tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir mönnunum renni út.

Hæstiréttur féllst ekki á lengra gæsluvarðhald yfir skipverjunum tveimur
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir skipverjunum tveimur sem grunaðir eru um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana.

Lögreglan þakkar öllum sem aðstoðuðu við leit að Birnu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu aðila sem aðstoðuðu við leitina að Birnu Brjánsdóttur.

Forsetinn sendir samúðarkveðju til fjölskyldu Birnu: „Orð fá ekki linað hina miklu sorg“
Forsetinn segir minninguna um Birnu, unga og bjarta stúlku sem tekin var í blóma lífsins, muni ætíð lifa með íslenskri þjóð.

Áhöfn Polar Nanoq full samúðar: Vona að hægt verði að sækja sakamenn til saka
Áhöfnin á Polar Nanoq senda fjölskyldu Birnu Brjánsdóttur þeirra innilegustu samúðarkveðjur í yfirlýsingu.

Sprenging um helgina í fjölda þeirra sem styrkja björgunarsveitirnar
Bakvarðasveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fékk rækilegan liðsauka um helgina.

Könnuðu hvort tengsl væru milli mála Birnu og hinnar dönsku Emilie
Polar Nanoq var ekki í höfn í Danmörku á þeim tíma sem Emilie Meng hvarf og því hafi ekkert bent til þess að málin væru tengd.

Huldumaður krafðist þess að fá að fylla bílinn hjá leitarfólki á Blönduósi
"Það gefur manni mjög mikið að geta hjálpað og aðstoðað þá sem eru í vanda,“ segir Hjálmar Björn Guðmundsson, formaður Blöndu.

Utanríkisráðherra Grænlands sendir Íslendingum samúðarkveðjur
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra barst í gærkvöldi samúðarbréf frá starfsbróður sínum á Grænlandi, Vittus Qujaukitsoq.

Líkið krufið síðar í dag
Skipverjarnir tveir verða yfirheyrðir í kvöld eða á morgun.

Þjóðin syrgir Birnu: „Birna er ég og allar vinkonur mínar“
Íslendingar minnast Birnu Brjánsdóttur um allt land.

Kári vill aðstoða lögreglu við greiningu lífsýna
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskar erfðagreiningar, hyggst leggja fram tillögu þess efnis að heimilt verði að greina lífsýni í sakamálum hér á landi.

Vill takmarka veiðiheimildir skipa sem notuð eru til fíkniefnasmygls
Sjávarútvegsráðherra Grænlands vill að grænlenska þingið takið málið til umfjöllunar.